Tíminn Sunnudagsblað - 04.11.1972, Blaðsíða 21
I n 1111
úrunnar
_ mSshOGNSF&SZLH
Til eru fuglar sem kuuna að steypa, eru múrarar
og hreinustu snillingar i múrverki — til að
mynda nashyrningsfuglinn með stóra múrskeiðar-
nefnið. Frúin múrar sig sem sé inn i hreiðurhúsi,
áður en hún verpir og fer að unga út.
Húsið er oftast skúti f gömlu tré.
Frúin hreinsar liann að öllu rusli
frá síðasta ári, og siðan múrar hún
upp i dyrnar, en hefur þó gat á, og
bóndi hennar stingur þar að henni
aldinum og smádýrum til matar.
Þctta heimili er miðdepillinn i fifi og bústangi
nashyrningsfuglanna. Öll fjölskyldan er á ferli umhverfis
það. Ilver fjölskyldufugl á þar ákveðið náttból. Setjist
tvær fjöiskyldur á sama bletti, til að myuda sín i hvoru tré,
sem standa saman, skerst i odda, og fuglarnir heyja
striðiö meö fjaðrafoki og óhljóðum.
Bóndinn færir henni einnig leir og
hálm, sem hún klistrar sarnan meö
nefinu. Fuglarnir eru fundvisir á
jarðefni, sem loða vel saman og
harðna vel við þurrk.
En þetta er seinlegt verk, og
hjónin eru stundum nokkrar vikur
að þessu. Bóndinn er aðeins „hand-
langari”, en frúin cr múrara-
meistarinn. Allt er þetta haglega
gert og traust scm húsveggur.
Þegar fyllt hefur verið upp i
dyrnar, svo að nefsrifa ein er I
miðju, fer fniin að verpa. Hún
liggur lengi á, og heldur sig inni hjá
ungunum, unz þeir eru flevgir og
færir. Þessi inniseta getur oröið allt
að hundrað dagar.
Wi
Þarna inni eru móðir og ungar
örugg. Rándýr vinna ekki á
..hurðinni” með klónum, og unga-
inóöirin á það til að stinga hvössu
nefi út um rifuna og særa óboðna
loppu.
En jafnvel i frumskógunum
getur orðið húsnæðisekla hjá
nashyrningsfuglum, þvi að góðir
skútar i tré eru vandfunduir. i
Kóngó má sjá húsnæðisleysingja i
biöröðum biða þess, að fjölskylda
opni og ungarnir fljúgi út.
V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
Sunnudagsblaö Tímans
861