Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Side 11

Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Side 11
Margslungið mynztur gljúfra breiðir hér úr sér fyrir ljósopi myndavélarinnar i Mariner 9 eins og risavaxiö skordýr á Mars-svæðinu Nontis Lacus. Myndin var tekin 10. jan. 1972 og nær yfir svæöi, sem er 426 sinnum 542 km að flatarmáli. Hvorteru þetta hryggireða gjár —snúið myndinn fyrirykkur. frumstæð hin tæknilegu hjálpartæki eru, sem dugðu til þess að komast i þennan stóráfanga mannsandans. Brahe hafði til að mynda aldrei séð sjónauka. Hann gerði allar athuganir sinar á stjörnum himinsins með ber- um augum, og allir útreikningar Kepl- ers til þess að finna braut Mars, voru gerðir án lógaritma-taflna. Sjónauk- inn og lógaritminn kom til sögunnar skömmu siðar. Árið 1611 var heimili Keplers i Prag aftur komið i upplausn. Astandið i landinu var mikil ringulreið vegna styrjaldar. Kepler komst i mikil fjár- hagsvandræði og varð þunglyndur. Max Caspar, prófessor i Munchen, fullyrðir i hinu mikla verki sinu um Kepler, en þangað eru sóttar margar upplýsingar i þessa grein, að árið 1616 hafi verið mesta óhamingjuárið i lifs- ferli Keplers. 1 febrúar lézt sex ára gamall sonur þeirra hjóna úr misling um og siðar á árinu dó kona Keplers i farsótt sem geisaði um landið. Hamingjudögunum i Prag var lokið. Þó tókst Kepler að ljúka merkum visindaáfanga i ljósfræði. Kepler hafði alllengi haft i hyggju að flytjast frá Prag. Þegar hér var komið fékk hann stöðu sem landbúnaðar- stærðfræðingur og kennari i Linz i Austurriki. Þangað fluttist hann 1617 og kvæntist öðru sinni árið eftir. Þrátt fyrir vandkvæði þau, sem hon- um stöfuðu af mótmælendasöfnuöum og ofsóknum kaþólskra, dvaldist hann i Linz allt til 1626. Þar lauk hann rit- verki þvi, sem hann taldi sjálfur geyma meginverk lifs sins. — „Hinir samræmdu heimar”. Bókin kom út 1619 og færði heimin- um meðal annars nýjan visindaárang- ur, sem hafði mikilvæga þýðingu og hefur verið kallaður þriðja lögmál Keplers. Það er á þá lund, að hlutfallið milli brautartima reikistjörnu i öðru veldi og meðaltalsfjarlægð frá sól i þriðja veldi sé ákveðin tala og hin sama fyrir allar reikistjörnur. Þetta lögmál tengirsólkerfið beinlinis saman i samræmda heild, og það varð for- senda Newtons að þyngdarlögmálinu. Meðan Kepler fékkst við þessar rannsóknir, bárust honum slæmar fréttir frá systur sinni. Aldurhnigin móðir þeirra, Katrin Kepler hafði ver- ið ákærð fyrir galdra. Þetta var um jólaleytið 1615, og nú brá Kepler hart við og sparaði hvorki tima né fé til þess að reyna að bjarga henni frá bál- inu, og það tókst honum eftir nær sex ára baráttu. Hann varð hvað eftir ann- að að gera hlé á rannsóknarstarfi sinu til þess að fara móður sinni til hjálpar. 1 annað sinn, sem hann fór til Wiirten- berg — en þar sat móðir hans i fang- elsi — hann var að heiman og fjarri starfi sinu i Linz i heilt ár. Sýknudómur var kveðinn upp yfir Katrinu Kepler 1621. Árið 1626 var Linz hertekin i annað skipti á dvalarárum Keplers þar, og þegar hann hafði verið i eins konar stofufangelsi i borginni rúma þrjá mánuði, fékk hann loks að fara brott i nóvember. Hann fór þá með fjölskyldu sina — konu og þrjú börn — til Regens- burg, og þar lézt Kepler 15. nóvember 1630. Eitthvert skýrasta visindamanns- einkenni Keplers var sú gleði sem hann tendraðist, þegar hann fékkst við erfið og miklvæg úrlausnarefni. Seigla og þolgæði voru þó sterkustu eiginleik- ar hins mikla hugsuðar. Sannleiksleit Keplers er og allsráðandi. Hann lagði ekki fullan trúnað á annað en það, sem honum virtist fullsannað. Hann var þvi ætið reiðubúinn að breyta hugmyndum sinum i samræmi við rannsóknar- niðurstöðum. Visindaviðhorf hans hafði þvi mikil og góð áhrif á þróun náttúruvisinda. Það, sem skipar Johannesi Kepler þó fyrst og fremst i sérstakan sess i sögu visindanna er hinn þroskaði hæfi- leiki hans til þess að sameina dulrænt hugarflug og virðingu fyrir staðreynd- um og athugunum. Þetta gerir hann mikinn brautryðjanda á breytinga- tima milli miðalda og hugsunarháttar siðari tima. Framfarir þær, sem átt hafa sér stað i stjörnufræði á siðustu þremur öldunum, hafa að miklu leyti orðið fyr- ir stórskref i visindalegri tækni. En enn þá eru lögmál þau, sem Kepler fann með ristilnum einum og hugar- styrk sinum, grundvöllur sá, sem sú háborg tækninnar stendur á. Og þau lögmál — útreiknuð vitneskja um hreyfingar reikistjarnanna — munu lengi standa. Þegar við og óteljandi kynslóðir, sem á eftir okkur koma hafa safnazt undir græna torfu, munu reiki- stjörnurnar enn þjóta brautir sinar um himingeiminn eftir þeim lögmál- um óbreyttum, sem Jóhannse Kepler reiknaöi þeim. Þess er vert að minnast á yfirstandandi Mars-árum. (A.K. endursagði, að mestu eftir grein Nils Holte). Sunnudagsblað Tímans 35

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.