Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Side 18

Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1973, Side 18
næstum úr hálsliðnum til að sjá Flugu- mýri þar sem Gissur bjó og barg lifi sinu með þvi að fela sig i sýrukeri. Þegar ég var að læra Islandssögu i barnaskóla var mér voðalega illa við Gissur jarl. En þó hafði hann vit á að ganga þann veg frá Gamla sáttmála að einmitt á honum byggðu Islending- ar sjálfstæðiskröfur sinar gegn Dön- um. Við Bólu þar sem Hjálmar bjó og orti i Beethovensstil hafa einhverjir menningarbjánar sem hafa misskilið meistarann reist skáidinu minnis- varða i hörpuliki! En mér hefði þótt betur við hæfi að það væri i mynd steytts hnefa. Reyndar ofsóttu þeir og fyrirlitu skáldið meðan það var ofan- jarðar. I Bólugili bjó skessa, ljót og ódæl og gerði hún bændum i nágrenn- inu margan óleik. Loks tók sauðamað- ur nokkur, ungur og upprennandi sig til og fékk sér nesti og nýja skó og kom flagðinu fyrir kattarnef, i eitt skipti fyrir öll og blés ekki úr nös eftir afrek- ið. Varð hann auðvitað hinn mesti auðnumaður eins og titt er um kraft- idjóta i samkeppnisþjóðfélagi. 1 Giljareitum vestan til á öxnadals- heiði hélt ég niðri i mér andanum og bjóst þá og þegar við þvi að rútan steyptist i gilið og færi þar i þúsund mola. Þá væri ég nú i neðra. En við komumst klakklaust úr þessari svaðil- för eins og úr öllum svaðilförum. Svo komum við i þennan fræga öxnadal. Þar bjó Jónas eins og allir vita og þar skein ástarstjarna hans yfir Hraun- dranga skær og björt þar til hún hvarf á bak við ský eins og allar aðrar ástar- stjörnur. Mér finnst Jónas náskyldur Mozart andlega þótt undarlegt megi virðast. Hins vegar á hann fátt sam- eiginlegt meö Schubert þó þeir hafi verið nær i tima og mótast af svipuð- um menningarhugsjónum. Loks blasir Eyjafjörður við spegil- sléttur eins og lognfrosin isbreiða. Og til Akuryerar komum við kl. 1/2 8 um kvöldið eftir 11 og 1/2 klst. ferð. Hér var ég með öllu ókunnugur og tók þvi leigubil að hótelinu. Hann beygði rétt fyrir næsta horn og stanzaði fyrir framan gamlan og hrörlegan timbur- hjall i Hafnarstræti. Gat þetta verið? Var þetta hótelið sem foreldrar minir höfðu borið hið bezta orð? Mér varð nú ljóst, að mamma hafði haft rétt fyrir sér. En hér var ég kominn og of seint að snúa við. Herbergið sem ég fékk til afnota var nr. 13. Það þótti mér ljót tala. Þar inni var eitt rúm, einn stóll, eitt borð og einn ofurlitill skápur. Það var allt og sumt. En rúmið var gott en borðið aftur á móti alltof lágt og erfitt að skrifa við það. Þetta var á annarri hæð i eldfimu timburhúsi. Hvað gerðist nú ef eldur kæmi upp á neðri hæðinni að nætur- lagi? Ég kikti út i öll horn og i einum afkima herbergisins fann ég bruna- stiga. Ég leit á gluggann. Það var ekki hægtað opna hann nema smárifu allra efst. Mér var þvi ljóst að ég yrði að brjóta rúðuna, ef ég neyddist til að forða mér út um hann. En með hverju? Ekki með höndunum. Það gat haft hinar ægilegustu afleiðingar. Þá kom ég auga á stólinn sem sat þarna þegjandi og hæverskur á gólfinu. Þar var verkfærið sem mig vantaði. En ef stiginn skyldi ekki ná nógu langt niður og ég yrði að láta mig falla siðasta spölinn og hálsbryti mig i fallinu? Það var til litils að bjarga sér undan æð- andi eldslogum en uppskera hálsbrot i staðinn. Það náði engri átt. Það var blátt áfram háðulegt. Ég rakti úr stiganum og breiddi hann á gólfið. Sið- an kiifraði ég upp i gluggakistuna, opnaði rifuna og reyndi að meta hæð- ina niðri og bar hana saman við lengd stigans. Jú, þetta virtist koma heim og saman. Þegar ég hafði lokið þessum var- úðarráðstöfunum skokkaði ég út til að heilsa upp á Hjálmar i Landsbankan- um. Sigrún kona hans sat við af- greiðsluborðið þegar mig bar að garði. Hún rak upp stór augu eins og hún hefði séð draug. En samkvæmt kennar heimsmyndakerfi er ekkert pláss fyrir drauga svo þetta hlaut að vera ég með holdi og blóði. Þá bauð hún mér að skoða sýninguna. Og það gerði ég. Ég er með þeim ágalla fæddur að hafa mjög takmarkaða ánægju af myndlist, Hún skirskotar litið til min. Eigi að siður hafði ég gaman af að skoða þess- ar myndir og þær komu mér meira að segja dálitið á óvart. Svo birtist Hjálmar sjálfur. Hann varð forviða þegar hann sá mig spigspora þarna um saiinn og spurði: „Hvern andskotann ert þú að gera hér?” ,,Ég er að skoða málverk”, svaraði ég. ,,Já, gerðu svo vel”, sagði hann þá og áttaði sig. A eftir, sagði hann mér að hann hefði fremur búizt við dómsdegi,en sjá mig skjóta upp kollinum hér norður við yzta haf. Ég fór snemma að sofa þetta kvöld. Stúderingar urðu að biða betri tima. Miövikudagurinn 14. júni færðist yfir himinhvelfinguna skafheiður og sól- fagur. Ég var á fótum snemma og fór þá i skoðunarferö. Ekki hafði ég lengi farið er ég sá kirkjubákn furðulega mikið trónandi uppi á hárri hæð. Hátt hreykir andleysið sér, datt mér i hug. Þó var þessi steinhöll smásmiði ein og sannkallað listaverk borin saman við Hallgrimskirkjuófreskjuna i Reykja- vik. Siðan hélt ég i Lystigarðinn. Þar voru há tré og falleg blóm. Samt sem áður hafði ég gert mér miklu glæstari hugmyndir um þennan fræga stað. Ég hafði imyndað mér hann sem sann- kallaðan frumskóg með hrekkjóttum öpum og talandi páfagaukum, trjám og kjaftstórum og gráðugum krókódil- um i sikjum og tjörnum. En ég sá að- eins ómerkileg skorkvikindi og einn ástfanginn þröst sem spókaði sig á dá- litlum grasbala og söng viðkvæm ásta- ljóð til sinnar útvöldu. Og svo voru þarna stelpur að vinna, en þær voru ekki einu sinni fallegar og þó var mikið sólskin. Þær voru norðlenzkar. En hafi þessi rómaði skrúðgarður valdið mér vonbrigðum varð andapollurinn mér sannarlegt andlegt áfall. Hann virðist aðeins vera óþokkalegt hrekkjarbragð til að narra að saklausa ferðamenn, ofurlitil forarvilpa þar sem nokkrar værukærar endur syntu i fullkomnu til gangsleysi fram og aftur, en á tjarnar- bakkanum prédikaði geðbiluð gæs og barði saman vængjunum boðskap sinum til áherzlu. Aldrei skal maður leggja trúnað á ferðamannaáróður, hugsaði ég og skundaði niður i bæ til að stúdera götulif Akureyrar. Það var mikil umferð af gángandi fólki i miðbænum. Mikið var á útlend- um túristum. Miðaldra Amerikanar, sem kjósa Nixon, voru i algjörum meirihluta. Þeir gengu i suðrænum sumarklæðnaði sem hefði komið þeim illilega i koll ef hann hefði gert hret á norðan. En nú skein sól i heiði og hitinn var 21 stig svo þessir Nixonistar jöpl- uðu á tyggigúmmii, átu is og góndu skilningslaust á kort af Akureyri sem þeir voru með i höndunum og bentu og pötuðu fálkalega i allar áttir. Dönsk hjón stóðu á götuhorni og þjörkuðu um það hvar þau ættu að fara inn og fá sér hressingu. Kannski hefur þessi deila hitnað og harðnað og kveikt upp i þeim ■* óslökkvandi heift og hatur sem endaði með skilnaði og málaferlum. Verka- menn i samfestingum lötruðu til vinnu sinnar eins og uppgefnir vagnhestar. Þeir voru að byrja enn einn nýjan vinnudag svo þeir gætu haldið lifinu i fjórum æpandi óþekktarormum og úr- illri eiginkonu. Það var daglega lifið og æðsta takmarkið. Aldurhniginn og prúðbúinn góðborgari bar höndina upp að hattinum i kveðjuskyni fyrir mið- aldra frú sem sigldi á fullri ferð eftir Hafnarstræti með þanin segl og hnar- reist baugspjót. Léttlyndar skrifstofu- piur með stór brjóst og spennandi fæt- ur flögruðu um á kjólunum einum, náttúruunnendum eins og mér til Flutt á bls. 46 42 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.