Tíminn Sunnudagsblað - 11.02.1974, Side 16
Skúli
Thoroddsen.
segir i bréfi, að það hafi verið rétt gert
að láta drenginn sigla, en ekki veit
hann hvort hann getur hjálpað Sig-
hvati ,,ef yður bæri uppá sker”.
Sighvatur Grimsson var oft i bók-
söluferðum og getur hann þess oft i
dagbókum sinum. Seldi hann m.a.
bækur fyrir Björn bókbindara á Is-
afirði og Þorvald lækni á Þingeyri,
ennfremur verzlunarstjórann Vendel
á sama stað. Sighvatur tók að sér i
umboðssölu bækur er Skúli Thorodds.
lét prenta i prentsmiðju sinni á Isafirði
og gaf út. — Árið 1895 tekur Sighvatur
fyrir hann 12 eintök af Sögusafni I. Ár-
ið eftir, 1896, tekur Sighvatur aftur -i
umboðssölu frá honum 50 eintök af
beinamálsþættinum. Sá þáttur mun
vera eftir Gisla Konráðsson, en Sig-
hvatur hafa búib hann undir prentun.
(Það mun vera sami bæklingurinn og
dr. Hannes Þorsteinsson gagnrýndi i
Þjóbólfi fyrir þá sök ab Sighvatur
eignaði sér hann). Eintakið var selt á
25 aura ,,og i sölulaun hafið þér 1/5”.
Skúli getur oft um mál það.er lands-
höfðingi háði móti honum. og Lárus H.
Bjarnason var settur i og ávann sér lit-
inn orðstir fyrir. Allir kannast vib
Skúlamálið og endalok þess. /ón
Guðnason ræðir það ýtarlega i fyrra
bindi ævisögu Skúla. Ennfremur ræðir
Skúli ýmsar fréttir úr Djúpi. Segir t.d.
14. febr. 1896: „Kaupfélagsfúndur er
nýlega um garð genginn, og urðu fiski-
loforð frek 2 þús. skpd., og er það litið
brot af þeim afla, sem hér er”.
Með bréfi dags. 27. marz 1896 fær
Sighvatur kr. 50, sem þá var mikill
peningur, til styrktar við Pétur, sem
þá var enn ytra ,,svo .að hann geti
dvalið rétt einum mánuðinum lengur
ef hann telur sér það að einhverju
iiði”.
Sama árið sem þetta er, segir Skúii i
einu bréfa sinna, að honum hafi borizt
tvö bréf, þar sem dróttað hafi verið að
Sighvati og fréttagreinum hans úr
Dýrafirði, er komu i Þjóðviljanum.
Segir Skúli svo (bréfið dags. á tsafirði
18. nóv. 1896): ,,Þér eruð ekki vel séð-
88
ur hjá öllum sveitungum yðar, eða
kafnið eigi i vinsældum, þykið of ber-
máll á stundum um margt það er kyrrt
skyldi liggja. Hefi ég oft fengið að
heyra þetta, og jafnvel verið talið
mjög athugavert að skrifast á við slik-
an mann”. — Skúli býður þvi næst Sig-
hvati pláss i blaði sinu, ef hann þurfi
að bera hönd fyrir höfuð sér og verj-
ast. Segir þvi næst: ,,Ég rita yður sið-
ar, og vænti fastlega bréfa og frétta-
pistla öðru hverju i vetur, hvað sem
Dýrafjarðarhöfðingjarnir segja, helzt
að það varði samt ekki við lög. Vin-
samlegast, yðar Skúli Thoroddsen”.
En Sighvatur karl hefur vist þagað
að mestu i fréttum úr Dýrafirði næstu
mánuði, þvi að réttu ári siðar (15.
des.1897) segir Skúli: „Nú er farið að
verða langt siðan „Þjóðv. ungi” hefur
fengið að flytja fréttapistla frá fregn-
ritara sinum i Dýrafirði, og þykir mér
það miður þó að ætla megi að Dýra-
fjarðarhöfðingjunum sumum sé það
litið hryggðarefni. Ég vona þvi að
karlinn láti bráðum heyra eitthvað frá
sér”. Þvi næst segist Skúli vera búinn
að fá sér hraðpressu i prentsmiðjuna,
sem hann ætli ekki að sleppa alveg
strax. Ennfremur segist hann hafa i
huga ab gefa út Sturlungu, ,,sem nú
má heita nær ófáanleg, og er það hugs-
un min að gefa hana út i 4 deildum á 4
árum, svo að almenningi verði auð-
veldara að eignast hana. Nýja útgáfan
ætti ekki að fara framúr 8-10 krónum,
en gamla útgáfan kostaði sem kunnugt
er 20 krónur”.
Það má að likindum teljast rétt, að á
þessum árum hafi blöð aimennt ekki
greitt fyrir efni er i þeim birtist, má þó
vera ab undantekningar hafi verið þar
á. Að visu veit ég ekki hvort Sighvatur
fékk nokkuð fyrir fregnpistla sina i
blaði Skúla greitt i peningum. En alla
vega fær hann samt nokkuð fyrir snúð
sinn, þvi i september 1898 sendir Skúli
honum ,,til gamans”, ,,200 pd. rúg, 100
pd. bankabygg, kg. kandis, 12 pd. kaffi
og 6 pd. export”. ,,Þetta er litið og
óverulegt, en þó áskil ég, að þér við
nágranna yðar látið svo heita, sem þér
hafið greitt mér borgun fyrir þessu
fyrirfram”. Sending þessi kom svo til
Þingeyrar frá tsafirði með e/s Skál-
holti. í þessu sama bréfi ræðir Skúli
nokkuð Bessastaðakaup sin og segir að
hús og jörð þurfi lagfæringa og endur-
bóta við.
' P.t. Þingeyri 26. júni 1901. Skúli er
þar staddur á suðurleið, frá Isafirði, til
að sitja Alþingi, er þá fór i hönd. Send-
ir Sighvati ..litilfjörlega sendingu”.
Skýrir þvi næst frá að nú sé fjölskylda
hans komin suður að Bessastöðum og
sömuleiðis prentsmiðjan, og að hún
muni áður langt liði komast i gang.
Þar hélt Skúli áfram útgáfu Þjóðvilj-
ans og Sighvatur að senda honum
fregngreinar úr Dýrafiröi, en blaðið
mun talsvert nafa verið útbreitt á
Vestfjörðum.
Bréf frá Skúla er dags. á ísafirði 14.
ágúst árið 1900. Hann ræðir þar um
væntanlegar kosningar og segir að
Hannes Hafstein heimsæki suma kjós-
endur tvisvar og þrisvar til að hafa
áhrif á þá. Hann var þá i kjöri i tsa-
fjaröarsýslum. Skúli heitir enn sem
fyrr á Sighvat um stuðning og segir:
,,Þér sjáið nú af þessu að ekki mun
veita af liðveizlu allra góðra manna,
svo sem frekast er auðið, og myndi
mér þykja miklu skipta, að þér gætuð
komið með 5-6 til liðs við okkur sr.
Sigurð’, og gotthvað betur reittist. Ég
legg hér innan i 25 kr. sem ég ætlast til
að þér verjið til fargjalda eða farar-
eyris handa fátækum kjósendum úr
vorum flokki”. Má af þessu marka að
ekki hefur verið minni harka i
kosningum þá en nú til dags. Á þessum
árum var atkvæði greitt I heyrenda
hljóði svo sumir þorðu ekki að kjósa
samkvæmt sannfæringu sinni, sér-
staklega átti það við um fátæka menn,
en konur fengu ekki kosningarétt fyrr
en um 1915, svo sem kunnugt er.
Tveim árum siðar var enn gengið til
alþingiskosninga og þá styður Sig-
hvatur Skúla og lætur ekki sitt eftir
liggja að smala i sinum hreppi. Þá
voru á kjörskrá á öllu landinu 7539, af
þeim greiddu 3968 eða 52,6% atkvæði.
Þab voru 9,5% kjós. af allri ibúatölu
landsins.
Áður er minnzt á styrk til Sighvats
úr landssjóði fyrir ritstörf. Skúli studdi
það mál drengilega i þinginu og i bréfi
dags. i Rvik 21. júni 1901 sjáum við
hvað hann hefur um framgang þess
máls að segja:
„Þegar mér barst styrktarbeiðni yð-
ar til alþingis útvegaði ég mér með-
mæli frá dr. Finni Jónssyni og lagði
svo hvort tveggja fyrir þingið. Mál
þetta var siðan borið fram i fjárlaga-
nefnd neðri deildar, en átti þar örðugt
uppdráttar, og þó mér að lokum, eftir
að nefndin hafði neitað allri ásjá, tæk-
ist til að fá hana til að samþykkja 200
kr. f.á. i eitt skipti fyrir öll, þá er ekki
ab vita hvernig gengur þegar til at-
kvæða i deildinni kemur. En hvað ég
get, mun ég gera til þess að þessar
krónur standi gegnum þingið, ef ske
kynni að það yrbi yður styrkur að
dvelja litinn tima i Reykjavik”.
Sama er uppi á teningnum 1904, en
þá sækir Sighvatur enn um styrk til
ritstarfa. til að ljúka Prestaævunum,
Skúli skrifar honum 20. nóv. 1904:
..Ekki hefi ég miklar vonir um að
þér fáið styrk til að fullsemja presta-
l-'lutt á 1)1 s. XI.
Sunnudagsblaö Timans