Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 171. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Skipstjóri á
skemmtibát
Til sjós á ný eftir alvarlegt slys
fyrir 2 mánuðum | Minn staður 22
Fólkið og Íþróttir í dag
Fólkið | Sumarstörf í sólinni Hátalarar í vasann
Grínstuttmynd Íþróttir | Fremsti og frægasti
dómarinn Völler hættur Fyrsta mark Veigars
HINN herskái al-Qaeda-tengdi hópur Jórdanans
Abu Mussab al-Zarqawi sendi frá sér yfirlýsingu,
sem birt var á vefsíðu íslamista í gær, þar sem
hann lýsir ábyrgð á hendur sér á hrinu hryðju-
verkaárása í Írak sem bönuðu a.m.k. 92 mönnum.
„Með hjálp Guðs hrintu bræður okkar í Tawhid
wa al-Jihad [Sameiningu og heilögu stríði] í fram-
kvæmd umfangsmikilli árás í nokkrum héruðum
landsins,“ segir í yfirlýsingunni, sem var und-
irrituð af „hernaðararmi „Tawid wal Jihad“ í
Írak“. Ekki reyndist unnt að ganga strax úr
skugga um sannleiksgildi yfirlýsingarinnar.
Talsmenn hernámsyfirvalda sögðu að minnsta
kosti 92 menn hafa týnt lífi í árásunum, sem hóf-
ust í dögun í gærmorgun í borginni Baquba og
breiddust síðan eins og eldur í sinu til fleiri staða í
„súnní-þríhyrningnum“ norður og vestur af Bag-
dad. Bílsprengjur sprungu í Mosul í N-Írak.
Sveitir róttæka klerksins Moqtada Sadr lýstu
yfir vopnahléi í gær og sögðust tilbúnar til að
tryggja að ekki verði framin hryðjuverk á mik-
ilvægum stöðum næstu tvær vikur.
Reuters
Íraskur unglingur ber slasaðan dreng frá vett-
vangi bílsprengjutilræðis í Mosul í N-Írak í gær.
Menn Zarqaw-
is lýsa ábyrgð
á árásum
Dubai. AFP.
Hátt í 100/16
FERÐIR vegna læknisaðgerða
erlendis voru 153 í fyrra en
Tryggingastofnun (TR) greiðir
allar slíkar ferðir, læknismeð-
ferðir, ferðakostnað og uppihald
sjúklings og samþykktra fylgd-
armanna. Kostnaður almanna-
trygginga vegna þessara að-
gerða nam tæplega hálfum
milljarði króna eða um 493
milljónum króna. Flestar að-
gerðirnar erlendis í fyrra voru
vegna hjartasjúkdóma eða líf-
færa- og beinmergsígræðslna.
28 einstaklingar fóru utan
vegna hjartaaðgerða á síðasta
ári, þar af 18 börn. TR er í sam-
starfi við ýmis erlend sjúkrahús
og hefur auk þess gert samn-
ferðir hingað heim en ferðum út
hafi engu að síður fjölgað und-
anfarinn áratug, m.a. vegna
þess að hægt er að framkvæma
aðgerðir sem ekki var mögulegt
áður. Hlutfall læknisaðgerða
sem Íslendingar njóti erlendis
hafi þó væntanlega lækkað.
Þetta sé líka spurning um lífs-
gæði einstaklingsins, ekki að-
eins það hvort hann sé frískur
eða veikur. Lífsgæðin hvað
þetta varðar séu orðin miklu
meiri en áður var.
Spurð um ferðakostnað
vegna aðstandenda segir Guð-
laug að hann sé greiddur fyrir
sjúklinginn og síðan fyrir sam-
þykkta fylgdarmenn.
inga við nokkur þeirra um að-
gerðir fyrir Íslendinga.
Í fyrra fóru 132 Íslendingar í
aðgerðir á sjúkrahúsum erlend-
is, samanborið við 123 einstak-
linga 2002 og 134 árið 2001 en
þá var fjöldi ferða 163 sem út-
skýrir mikil útgjöld á því ári.
Sjúklingarnir sem sendir eru
utan eru á öllum aldri, allt frá
nokkurra daga gömlum börnum
og upp í áttrætt en algengast er
þó að fólkið sé á miðjum aldri
eða yngra en mun sjaldgæfara
er að aldraðir fari í aðgerðir er-
lendis.
Guðlaug Gísladóttir á sjúkra-
tryggingasviði TR segir að sí-
fellt sé verið að flytja fleiri með-
500 milljónir í
aðgerðir ytra
Fjöldi læknisaðgerða á Íslendingum erlendis skýrist af framförum
ÁSGEIR Haraldsson, yfirlæknir
Barnaspítala Hringsins, segir að í
stórum dráttum megi skipta þeim
börnum sem fara utan í aðgerðir í
þrjá hópa. Hann segir að stærsti
hópurinn séu börn með hjarta-
galla og nefnir
Ásgeir að um
helmingur að-
gerða sé fram-
kvæmdur hér-
lendis, en um
20–30 börn
þurfa að fara í
slíkar aðgerðir
árlega. Næst-
stærsti hópurinn
séu börn sem þurfi á líffæra-
ígræðslum að halda og undir þann
minnsta heyri vandamál sem skoð-
uð eru í hverju tilviki fyrir sig.
Hann segir þróunina vera í þá
átt að fleiri aðgerðir verði hægt
að framkvæma hér.
Stærsti hóp-
urinn börn með
hjartagalla
ÓTRÚLEGA spennandi viðureign Portúgala og Englendinga á EM lauk
með sigri gestgjafanna eftir vítaspyrnukeppni. Ricardo, markvörður
Portúgala, skoraði úr sjöundu spyrnu þeirra og sendi Englendinga heim.
Heimamenn fögnuðu innilega, en, sorg Englendinga var mikil. / Íþróttir
Reuters
Fögnuður Portúgala
TYRKNESKA lögreglan handtók í gær tvo karla
og konu sem grunuð eru um að tengjast spreng-
ingu sem varð í strætisvagni í Istanbúl. Fjórir
létu lífið, þ.á m. kona sem talið er að hafi haldið á
sprengjunni, og um 15 manns særðust. Fyrr í
gær sprakk lítil sprengja nálægt hóteli í höfuð-
staðnum Ankara þar sem búist er við að George
W. Bush Bandaríkjaforseti muni gista er hann
kemur þangað á morgun til viðræðna við tyrk-
neska ráðamenn. Sprengjan olli engum mann-
skaða. Grunur beinist að marxistasamtökum.
Bush mun sækja leiðtogafund Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, er hefst í Istanbúl á mánu-
dag. Talsmenn forsetans sögðu ekki ráðgert að
breyta ferðaáætlun hans, þrátt fyrir tilræðin.
Sprengjutilræði
í Tyrklandi
Istanbúl. AP, AFP.
BAUGUR Group mun í dag ganga
frá samningum um kaup á ráðandi
hlut í brezku tízkuverzlanakeðj-
unni Karen Millen og Whistles,
samkvæmt heimildum brezka
blaðsins The Times, sem birti frétt
þessa efnis á vef sínum í gær-
kvöldi. Að sögn The Times er
kaupverðið rúmlega 100 milljónir
punda, eða yfir 13 milljarðar ís-
lenzkra króna.
Fram hefur komið að Baugur
væri í viðræðum við Kevin Stan-
ford, fyrrverandi maka Karen Mill-
en, hönnuðarins sem keðjan er
kennd við, um kaup á 60% hlut
hans. The Times segir að gera
megi ráð fyrir að söluhagnaður
Stanfords nemi 60 milljónum
punda, tæplega átta milljörðum
króna.
Að fullu í eigu Íslendinga?
Fyrir eiga íslenzkir fjárfestar
40% í fyrirtækinu. Þeirra á meðal
eru KB banki og Sigurður Bollason
og Magnús Ármann, sem samhliða
kaupum sínum í fyrirtækinu árið
2001 réðust til stjórnunarstarfa hjá
fyrirtækinu. Kaupi Baugur allan
hlut Stanfords, eiga íslenzkir fjár-
festar því fyrirtækið að fullu.
Karen Millen rekur um 75 verzl-
anir í Bretlandi undir eigin nafni
og 50 undir nafni Whistles. Þá eru
reknar verzlanir undir nafni keðj-
unnar víða um heim samkvæmt
sérleyfissamningum, m.a. hér á
landi.
Baugur nær Karen Millen