Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SENDISKRIFSTOFA Íslands í Úg- anda var opnuð hinn 22. júní síðast- liðinn. Er það í samræmi við ákvörðun utanríkisráðuneytisins og Þróunarsamvinnustofnunar Ís- lands (ÞSSÍ) að gera umdæm- isskrifstofur stofnunarinnar í Úg- anda og Malaví að sendiskrifstofum Íslands. Markmiðið með breyting- unum er að efla enn frekar tengsl Íslands við Úganda og Malaví í þró- unarsamvinnu og styrkja stöðu um- dæmisskrifstofa ÞSSÍ og starfs- manna þeirra gagnvart stjórnvöldum. Umdæmisstjórar ÞSSÍ, Ágústa Gísladóttir í Úganda og Þórdís Sig- urðardóttir í Malaví, hljóta titil staðgengils sendiherra en sendi- herra Íslands gagnvart þessum ríkjum, Benedikt Ásgeirsson, verð- ur eftir sem áður staðsettur í Mós- ambík. Árni Magnússon félags- málaráðherra mun fyrir hönd utanríkisráðherra opna send- iskrifstofu Íslands í Malaví form- lega hinn 30. júní næstkomandi en hann verður staddur þar í op- inberri heimsókn. Tvær sendi- skrifstofur í Afríku HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær 19 ára pilt í hálfs árs fangelsi fyrir skjalamisnotkun, vopnalagabrot, umferðarlagabrot, fíkniefnabrot sem varðaði tilraun til smygls á 125 grömmum af kók- aíni, nytjastuld og þjófnað á ár- unum 2002 og 2003. Dómurinn gerði upptæk járnkylfu, hníf og loftskammbyssu. Tekið var tillit til ungs aldurs ákærða og sam- vinnufýsi hans við að upplýsa mál- ið. Þá kom fram í málinu að hann væri hættur fíniefnaneyslu og leit- aðist við að bæta ráð sitt. Hins veg- ar varð ekki litið fram hjá því að smygltilraun hans var alvarlegt brot. Málið dæmdi Gunnar Alexand- ersson héraðsdómari. Verjandi ákærða var Sigmundur Hannesson hrl. og sækjandi Sigríður Josefs- dóttir saksóknari hjá ríkissaksókn- ara. Hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot ÍSLENSKAR leiðbeiningar skorti með 19 af 24 öryggishjálmum til at- vinnunota, sem skoðaðir voru í úrtakskönnun sem Vinnueft- irlitið fram- kvæmdi í sam- starfi við Löggilding- arstofu. Úrtaks- könnunin fór fram árið 2003 í tengslum við samnorrænt verkefni um markaðseftirlit með persónu- hlífum. Heimsóttir voru 14 sölustaðir þar sem skoðaðar voru 24 tegundir ör- yggishjálma til atvinnunota og 12 hjálmar til einkanota, segir á vef- síðu Vinnueftirlitsins. Af 24 hjálm- um til atvinnunota kom í ljós að með 19 hjálmum (79%) fylgdu ekki notkunarleiðbeiningar á íslensku. Á vefsíðu Vinnueftirlitsins segir jafnframt að könnunin hafi leitt það í ljós að veruleg breyting til batn- aðar hafi orðið á markaðnum miðað við fyrri samnorræn verkefnin sem gerð voru árin 1995–1996 og 2000– 2001. Leiðarvísi vantar á öryggishjálma KRISTJÁN Ra. Kristjánsson, sem dæmdur var í 2 ára fangelsi fyrir hylmingu í Landssímamálinu á mið- vikudag, mun áfrýja dómi sínum til Hæstaréttar. Ekki hefur verið ákveðið hvort dómi Ragnars Orra Benediktssonar verður áfrýjað en hann fékk 8 mánaða fangelsi. Ekki náðist í Helga Jóhannesson, lög- mann Sveinbjörns Kristjánssonar, sem er erlendis. Áfrýja héraðsdómi MIKILLAR óvissu gætir meðal íbúa í Þingeyj- arsýslum þar sem ekki hefur enn tekist að ljúka fjármögnun nýrrar starfsemi við Mývatn sem koma átti á fót í kjölfarið á lokun Kísiliðj- unnar. Á fundi forsvarsmanna stéttarfélaganna og framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar í vikunni kom fram að stefnt er að því að ljúka fjármögn- uninni sem fyrst en óvíst er hvenær það verður. Óvissan hefur slæm áhrif á fólk og dæmi um að það sé komið með aðra vinnu Að sögn Aðalsteins Baldurssonar, formanns Verkalýðsfélags Húsavíkur, gætir mikillar óvissu meðal íbúa í Þingeyjarsýslum vegna málsins. „Þessi óvissa hefur slæm áhrif og fólk er farið að hugsa sér til hreyfings og dæmi eru um að menn séu komnir með aðra vinnu. Óviss- an er nú þegar farin að hafa áhrif á atvinnu- ástandið og verður einungis verri eftir því sem lengri tími líður. Við munum fylgjast vel með þessu máli og viljum fá niðurstöðu sem fyrst,“ segir Aðalsteinn. Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútu- staðahrepps, segir að sú óvissa sem ríki sé vissulega til óþæginda, jafnt fyrir íbúana og sveitarfélagið. „Það eru ávallt einhverjar breyt- ingar á högum fólks en þetta hefur auðvitað áhrif og veldur óróa sem veldur því að fólk er farið að leita fyrir sér annars staðar. Því má ekki gleyma að það liggur fyrir að kísilgúrverk- smiðjan hættir starfsemi og öllum verður sagt þar upp störfum. Þá hafa forsvarsmenn Kís- iliðjunnar sagt að þó að nýtt fyrirtæki hefji hér starfsemi sé ekki tryggt að það ráði sama starfsfólkið aftur. Um er að ræða nýtt fyrirtæki og annars konar störf að einhverju leyti,“ segir Sigbjörn og bætir því við að hann sé bjartsýnn á að það takist að fjármagna hina nýju starf- semi. „Almennt séð langar fólk ekkert til þess að flytjast héðan en þegar fólk hefur ekki vinnu hlýtur það að leita annað. Það hefur þó mikil áhrif fyrir svo lítið samfélag,“ segir Sigbjörn en í Skútustaðahreppi búa um 450 manns. „Fólk er farið að leita fyrir sér annars staðar“ Kísilgúrverksmiðjunni við Mývatn verður lokað. Atvinnuástand ótryggt því fjármögnun duftverksmiðju við Mývatn er ólokið GESTUR, elsti sérsmíðaði vélbát- urinn sem varðveist hefur hér á landi var sjósettur til reynslu í Bolungarvík fyrr í vikunni eftir viðgerðir sem hafa staðið yfir í tvö ár. Hátíðarsigling um Djúpið Heimir Hansson, hjá Byggða- safni Vestfjarða, segir í samtali við Morgunblaðið að báturinn hafi reynst mjög vel. Gestur fer svo í formlega vígsluferð á morgun og fer bát- urinn þá í sérstaka hátíðarsigl- ingu frá Bolungarvík kl. 10 á laugardagsmorgun til Ísafjarðar, Súðavíkur og síðan út í Vigur, sem er hin gamla heimahöfn Gests. Þar verður boðið upp á há- tíðarkaffi af þessu tilefni. Að sögn Heimis mun bátur frá ferða- þjónustu á Vestfjörðum sigla með Gesti og flytja boðsgesti út í Vig- ur. Gestur var smíðaður í Bolung- arvík árið 1906. Elsti sérsmíðaði vélbáturinn sjósettur Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Gestur frá Vigur á reynslusiglingu. EKKI er talið nauðsynlegt að breyta landabréfum og fræðibókum þegar í stað vegna niðurstaðna nýrra mælinga á hæð Hvannadals- hnúks, hæsta tinds Íslands. Komið hefur í ljós, að hnúkurinn er 2.111 metrar á hæð, en hingað til hefur verið stuðst við 100 ára gamla mælingu danska landmælinga- mannsins J. P. Koch á vegum danska herforingjaráðsins, en hann mældi Hvannadalshnúk 2.119 metra háan. Magnús Tumi Guðmundsson, for- maður Jöklarannsóknafélags Ís- lands, segir nákvæmni fyrri mæl- ingarinnar ekki meiri en svo að ekki sé hægt að segja fyrir um breytingar á hæð jökulsins miðað við mælinguna núna. Enn samt hærri en Kebnekaise „Óvissa í mælingu Kochs var 5 til 10 metrar, en nú er óvissan ein- ungis um einn metri,“ sagði Magn- ús í samtali við Morgunblaðið. „Til þess að fara út í breytingu á op- inberri hæð Hvannadalshnúks þyrfti að staðfesta þessa hæð með frekari mælingum. Trúlega er ein- hver árstíðasveifla í hæð hnúksins þar sem efsta lag hans er 20–30 metra hjarnfönn, sem breytist ef- laust nokkuð. Það er sjálfsagt að rannsaka þetta betur áður en farið er út í að breyta opinberu tölunni. Hins vegar er varla spurning um hvort tölunni verður breytt, heldur hvenær af því verður,“ sagði Magn- ús ennfremur. Talan 2.119 metrar hefur verið birt víðs vegar, meðal annars í samanburði við hæsta tind Svíþjóð- ar, Kebnekaise Sydtopp, sem lengi vel var talinn 2.117 metra hár, og væri því hærri en Hvannadals- hnúkur telst nú. Svo þarf þó ekki að vera þar sem nýjustu mælingar á Kebnekaise segja hann aðeins 2.104 metra háan, og nær hnúk- urinn því enn að vera hærri. Ákveðið var að framkvæma mæl- inguna nú með GPS-mælitækjum í tilefni af því að hundrað ár voru liðin frá mælingu Kochs. Var hún framkvæmd í árlegri vorferð Jökla- rannsóknafélagsins í byrjun júní. Mælingar voru gerðar með tveimur GPS-mælitækjum, og var viðmið- unarstöð föst GPS-mælistöð Land- mælinga Íslands á Höfn í Horna- firði. Stefnt er að því að stunda frekari mælingar á hæð Hvanna- dalshnúks á vegum Jöklarann- sóknafélagsins í samvinnu við Landmælingar Íslands. Hvannadalshnúkur, hæsti tindur Íslands, er samkvæmt nýjustu mælingum átta metrum lægri en talið var. Hann var áður mældur fyrir öld. Hæð Hvannadalshnúks ekki breytt strax á landakortum Nýjar mælingar segja hæsta tind Íslands 2.111 metra Morgunblaðið/Jónas Erlendsson RÚMLEGA 770 umsóknir hafa borist um nám við Háskólann í Reykjavík. 450 nýnemar munu hefja nám við skólann í haust og því verður að hafna rúmlega 320 umsóknum. Alls munu 1450–1500 nemendur sitja skólann næsta skólaár og er það mesti fjöldi nem- enda frá stofnun skólans. Tvær nýjar brautir verða í boði í Háskólanum í Reykjavík á næsta ári, meistaranám í fjármálum og tungumálatengt viðskiptanám. 33 umsóknir bárust í meistaranám í fjármálum og 34 sóttu um tungu- málatengt viðskiptanám. Gert er ráð fyrir því að 25 nemendur hefji meistaranám í fjármálum og 30 tungumálatengt viðskiptanám. Þá er mikil aukning frá því í fyrra í meistaranám í tölvunarfræði en í fyrra hófu 5 manns nám á þeirri braut en nú hefja 10 manns nám. Mest aðsókn er í lagadeildina en 165 sóttu um en einungis 90 verða teknir inn. Helmingi umsækjenda hafnað Á þessu vori bárust nær nítján hundruð umsóknir um nám við Kennaraháskóla Íslands en ein- ungis helmingi þess hóps verður boðin skólavist. Nemendur við Kennaraháskóla Íslands eru nú um 2.400 og þeim hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Alls bár- ust 1.500 umsóknir um nám í grunndeild og hefur 685 verið boð- ið að hefja nám. 334 umsóknir bár- ust um nám í framhaldsdeild og var 218 umsækjendum boðið að hefja nám. Mikil aðsókn í Kennarahá- skóla Íslands og HR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.