Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ HART var tekist á um tillögur Þórólfs Árna- sonar borgarstjóra um stofnun fimm þjónustu- miðstöðva í hverfum Reykjavíkurborgar í borg- arstjórn í gær, en tillagan var samþykkt með atkvæðum meirihluta R-lista. Þórólfur Árnason borgarstjóri mælti fyrir til- lögunum, og sagði hann markmiðið með því að koma upp þessum þjónustumiðstöðvum að efla og bæta þjónustu við borgarbúa með því að stytta boðleiðir, og nýta skattfé borgarbúa bet- ur með betra skipulagi þjónustunnar. Einnig munu þjónustumiðstöðvarnar gera borgina bet- ur búna til samstarfs við íbúasamtök og aðra aðila sem gjarnan hverfaskipta sinni þjónustu, svo sem löggæslu, heilsugæslu og safnaðar- starf. Þórólfur sagði tillögur um þjónustumiðstöðv- arnar fela í sér gagngera breytingu á skipulagi þjónustu Reykjavíkurborgar, verið væri að færa þjónustu við borgarbúa út í hverfin frá miðlægum stofnunum borgarinnar. Hann sagði víðtækt samráð hafa átt sér stað við starfs- menn borgarinnar um þessa tillögu, og þegar henni verði komið í framkvæmd verði haft fullt samráð við starfsmenn og verkalýðsfélög þeirra. Hann tók fram að ekki yrði um fækkun starfa að ræða. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi R-lista, benti á að tilraunir með þjónustumiðstöð af þessu tagi hafi verið í gangi sl. sjö ár í Graf- arvogi með þjónustumiðstöðinni Miðgarði, og hefðu þær gefið góða raun. Því væri það sjálf- sögð þjónusta við borgarbúa í öðrum hverfum en Grafarvogi að byggja á þessari hugmynd og stofna svipaðar miðstöðvar í öðrum hverfum borgarinnar. „Lagt í ferð án fyrirheits“ Minnihluti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn gagnrýndi tillögurnar harkalega, og sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks, að hann hefði „sjaldan kynnst óskynsamlegri tillögum“, og að þar væri „lagt í ferð án fyrirheits“. Vilhjálmur sagði tillögu borgarstjóra illa ígrundaða og ekki til þess fallna að bæta samskipti við borgarbúa, og lögðu sjálfstæðismenn í borgarstjórn til að af- greiðslu tillögunnar yrði frestað þar til borg- arstjórn kemur úr sumarfríi í september. Þeirri tillögu var hafnað. Vilhjálmur sagði fullyrðingar borgarstjóra um víðtækt samráð ekki réttar. Rétt væri að samráð hefði verið haft við upphaf verkefnisins, en eftir það hefðu tillögurnar verið unnar al- gerlega án samráðs við starfsmenn, en síðan kynntar þeim sem orðinn hlutur áður en til- lagan hefði verið samþykkt í borgarráði. Enn fremur sagðist Vilhjálmur efast um að áætlanir um kostnað vegna þessa verkefnis mundu standast, og sagðist eiga von á meiri kostnaði en borgarstjóri sæi fyrir. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, benti á að eftir breytingar sem gerðar hefðu verið á tillögunni áður en borgarstjóri lagði hana fram væri að mestu um að ræða starfsfólk félagsþjónustunnar sem færðist í þessar hverfamiðstöðvar. Hún sagði starfsfólk uggandi um störf sín þrátt fyrir að sagt hefði verið að störfum yrði ekki fækkað. Þörf á nánara samráði Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjáls- lynda flokksins, tók undir tillögu sjálfstæð- ismanna um að fresta bæri afgreiðslu tillög- unnar þar til eftir sumarleyfi borgarstjórnar, og benti á að þær tillögur sem borgarstjóri lagði fram væru ekki þær sömu og kynntar voru í upphafi. Í bókun Ólafs vegna málsins segir að málið þarfnist nánara samráðs við starfsfólk borgarinnar, auk þess sem þörf sé á umsögn nefnda og ráða um tillöguna. Á fundi borgarstjórnar var full sátt meiri- og minnihluta um þann hluta tillögu borgarstjóra sem laut að aukinni rafrænni þjónustu og því að komið verði upp símaveri til að einfalda samskipti við borgina og nýta betur starfs- krafta sérfræðinga hennar, og var sá þáttur til- lögunnar einnig samþykktur. Tillögur R-listans um þjónustumiðstöðvar samþykktar í borgarstjórn Gagnger breyting á skipu- lagi þjónustu borgarinnar Oddviti sjálfstæðis- manna segist sjaldan hafa kynnst óskyn- samlegri tillögum MEÐALLESTUR Morgunblaðsins síðustu vikuna í maí 2004 mældist 51,2%, meðallestur Frétta- blaðsins var 69,3% og meðallestur DV 19,5%, samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Gallup, sem gerð var dagana 22.–28. maí 2004 og náði til dag- blaða og sjónvarpsstöðva. Ekki var í könnuninni spurt um gæði viðkomandi fjölmiðla. Í úrtaki voru 1.200 Íslendingar á aldrinum 12–80 ára. Svarhlutfall var 62,7%. Í könnun Gallup í mars síðastliðnum var meðallestur Morgunblaðsins 53,4%, meðallestur Fréttablaðsins 66,3% og DV 20,5%. Um 73,9% lásu Morgunblaðið eitthvað í um- ræddri viku, og um 90,7% lásu eitthvað í Frétta- blaðinu. 42,8% lásu eitthvað í DV. Sjónvarpsáhorf var einnig mælt í könnuninni, og kom þar í ljós að 94,4% horfðu eitthvað á Rík- issjónvarpið í vikunni, 80,2% á Stöð 2 og Stöð 2+ og 72,8% á Skjá einn. 24,8% horfðu eitthvað á Popp Tíví, og 19,3% á Sýn. Vinsælasti dag- skrárliður Sjónvarpsins voru fréttir, íþróttir og veður með 42,3% áhorf, hjá Skjá einum horfðu flestir á CSI, eða 24%, og 30,2% horfðu á fréttir Stöðvar 2. 51,2% lesa Morgunblaðið á hverjum degi                                                                                                ÁTAKSHÓPUR Höfuðborgarsamtakanna og Samtaka um betri byggð afhenti borgarstjórn- arfulltrúum upplýsingar um tillögur hópsins um breytt fyrirkomulag við færslu Hringbrautar við upphaf borgarstjórnarfundar í gær. Samtökin hafa komið fram með málamiðl- unartillögu, en í henni felst að Hringbraut verði lögð í opinn stokk á 600 metra kafla milli Bústaðavegar og Njarðargötu. Borgarstjórn- arfulltrúum voru einnig afhent gögn um tillögu átakshópsins um mislæg gatnamót með hring- torgi á mótum Bústaðavegar og Miklubrautar. Tillögu vísað aftur til borgarráðs Málefni Hringbrautarinnar voru rædd lítillega á borgarstjórnarfundinum sjálfum. Ólafur F. Magnússon, fulltrúi Frjálslynda flokksins í borgarstjórn, lagði til að borgarstjórn vísaði til- lögu hans, um að gerð yrði úttekt á kostnaði og fýsileika hugmynda átakshópsins, til embættis- manna borgarinnar. Hann hafði áður tekið málið upp í borgarráði, en þar var málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar og samgöngu- nefndar. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn studdu tillögu Ólafs, en að tillögu Alfreðs Þorsteins- sonar, fulltrúa R-lista, var málinu vísað aftur til borgarráðs. Afhentu borgarfulltrúum gögn Morgunblaðið/Eggert Dóra Pálsdóttir og Örn Sigurðsson afhenda hér Gísla Marteini Baldurssyni, varaborgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokks, tillögu Höfuðborgarsamtakanna og Samtaka um betri byggð um Hringbrautina. FORSETAKJÖR BALDUR Ágústsson forsetafram- bjóðandi stóð ekki fyrir skipulögðum framboðsfundum í gær en notaði tím- ann í stað þess til að svara fjölmiðlum og mætti m.a. í útvarpsviðtöl á Út- varpi Sögu og FM 957 í gærmorgun. Hrafnhildur Hafberg, kosninga- stjóri Baldurs, segist vera bjartsýn fyrir kosningarnar og ánægð með góða útkomu í skoðanakönnunum að undanförnu. Hún segir Baldur og stuðningsmenn hans alls ekki útiloka sigur í kosningunum, þrátt fyrir að mikill munur hafi verið á Baldri og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís- lands, í könnunum. Hrafnhildur reiknar með að útkoma kosninganna verði önnur en niðurstöður skoðana- kannana segja til um. Í fyrrakvöld stóð Baldur fyrir menningarkvöldi í kosningamiðstöð sinni þar sem trúbadorinn Sigvarður Ari söng frönsk sönglög, Hulda Dögg Proppé söng og Hjalti Rögnvaldsson las upp úr verkum Þórbergs Þórðar- sonar. Í gærkvöldi var svo boðið upp á lif- andi tónlist í kosningamiðstöðinni og léku Dáðadrengir, RVK-Spirits og 107-Raftónlist fyrir gesti. Baldur Ágústsson Baldur Ágústsson var í viðtali hjá Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu í gærmorgun. Stefnt að sigri ÁSTÞÓR Magnússon stóð fyrir fram- boðsfundi á Netinu í fyrrakvöld og þegar Morgunblaðið hafði samband síðdegis í gær var Ástþór að búa sig undir annan slíkan fund um kvöldið. Hann segir fundinn á miðvikudag hafa mælst vel fyrir og fjöldi manns hafi mætt og rætt við hann á Netinu. „Fólk var mjög hrifið af þessu og svona fundir eru dæmi um raunveru- legt lýðræði í hnotskurn,“ segir Ást- þór, sem heimsótti heimilisfólk á Hrafnistu í Hafnarfirði í gær ásamt Natalíu Wium, eiginkonu sinni. Ástþór segist meðal annars hafa gefið vistmönnum bókina Virkjum Bessastaði sem hann gaf út fyrir kosningarnar 1996 og er bókin enn í fullu gildi, að sögn Ástþórs. Hann sýndi gestum einnig bréf frá hjálp- arsamtökum í Betlehem þar sem skorað er á þjóðina að taka undir þær hugmyndir að beita forsetaembætt- inu til að leysa deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs. Spurður hvort hann sé bjartsýnn fyrir kosningarnar segist Ástþór neita að trúa því að fimmtungur kjós- enda ætli að vera svo tómhjartaður að skila auðu þegar þeir geti stutt frið og svarað kalli um hjálp frá Betlehem. Einnig segist hann ekki trúa því að svo margir ætli að kjósa mann með hjarta úr steini sem hafi ítrekað ýtt honum frá sér og ekki viljað lyfta litla fingri til að hjálpa sér í baráttunni fyr- ir friði í heiminum. Ástþór Magnússon Morgunblaðið/Þorkell Ástþór Magnússon hélt kosn- ingafund á Netinu í gærkvöldi og fyrrakvöld. Netfundur dæmi um lýð- ræði í hnotskurn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.