Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 12

Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki ástæðu til íhlut- unar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa í kjöl- far samruna Fréttar ehf. við Norðurljós hf. frá því í janúar. Samkeppnisráð lítur svo á að Frétt, sem gefur út Fréttablaðið og DV, og Ís- lenska útvarpsfélagið, sem rekur m.a. Stöð 2 og Sýn, Bylgjuna og fleiri sjónvarps- og útvarps- stöðvar, starfi á ólíkum mörkuðum. Samkeppn- isráð telur ekki ástæðu til að ógilda samruna Fréttar og Norðurljósa, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Alla jafna ekki skaðleg áhrif Í fréttatilkynningu frá Samkeppnisstofnun, sem send var út vegna ákvörðunar samkeppn- isráðs, segir að Íslenska útvarpsfélagið, dótt- urfélag Norðurljósa, og Frétt starfi á ólíkum samkeppnismörkuðum fjölmiðlunar, þ.e. annars vegar í útvarps- og sjónvarpsrekstri og hins vegar í útgáfu dagblaða. Afleiðingin af samruna Fréttar og Norðurljósa að þessu leyti sé því hvorki sú að saman renni raunverulegir eða hugsanlegir keppinautar (láréttur samruni) né tengsl í þeim skilningi að annar þessara aðila framleiði vörur eða þjónustu sem hinn notar í starfsemi sinni (lóðréttur samruni). Þótt slíkur samruni sé alla jafna ekki talinn hafa skaðleg áhrif á samkeppni, bendir samkeppnisráð þó á að í undantekningartilvikum hafi verið talið að um neikvæð samkeppnisáhrif gæti verið að ræða, svonefnd samsteypuáhrif, þar sem öflugt fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu á einhverjum markaði (mörkuðum) nýtir sér stöðu sína til þess að ná sterkri stöðu á öðrum markaði. Tvenns konar sjónarmið Í ákvörðun samkeppnisráðs segir að meðal fræðimanna í samkeppnisrétti Evrópusam- bandsins séu tvenns konar sjónarmið um það að hvaða marki grundvöllur kunni að vera til að banna samruna vegna samsteypuáhrifa. „Fyrra viðhorfið er það að eina mögulega ástæðan fyrir slíkri niðurstöðu sé að samruninn geri mögu- legt að nýta markaðsráðandi stöðu á einum markaði til hegðunar á öðrum markaði sem hafi skaðleg áhrif á neytendur, þ.e. vogaraflshegðun (e. leveraging). Í vogaraflshegðun getur t.d. fal- ist samtvinnun (e. tying) eða sú háttsemi að selja í einu lagi sem „pakka“ ólíkar vörur (e. bundling). Samkvæmt þessu viðhorfi er mat á samsteypuáhrifum því sambærilegt mati á lóð- réttum samruna og felur í sér greiningu á möguleikum á því að nýta sér markaðsráðandi stöðu á ákveðnum markaði til að styrkja stöðu sína á ótengdum markaði og áhrif þessa á neyt- endur. Síðara sjónarmiðið er að samsteypuáhrif geti verið víðtækari og nái einnig til þess hvort hið sameinaða fyrirtæki hafi samkeppnislegt for- skot vegna yfirburða í fjárhagslegri stöðu (e. deep pockets) eða stærðarhagkvæmni. Flestir hallast þó að því að eina réttmæta ástæðan til að ógilda samruna vegna samsteypuáhrifa séu vogaraflshegðun, enda hafi samkvæmt öðrum kenningum ekki tekist að sýna fram á tengsl milli samruna og skaðlegra áhrifa á neytendur.“ Fram kemur í ákvörðun samkeppnisráðs að í frumathugun Samkeppnisstofnunar hafi verið bent á að þær samkeppnishömlur, sem hugs- anlega gæti orðið um að ræða í þessu máli, myndu væntanlega fela í sér misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu. Þess vegna hefði ekki verið nauðsynlegt í þessu máli að fjalla um þann möguleika, þar sem bannregla 11. gr. sam- keppnislaga ætti við í slíkum tilvikum óháð þessum samruna. Ekki ástæða til íhlutunar vegna samsteypuáhrifa Samkeppnisstofnun telur að ekki hafi verið ástæða til að ógilda samruna Norðurljósa og Fréttar vegna skaðlegra áhrifa á neytendur ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI SÍMINN hefur undanfarið eitt ár sett upp móðurstöðvar eða senda fyrir farsíma í sextán ferjum og far- þegaskipum í Evrópu. Stöðvarnar tengjast símakerfi í landi gegnum gervihnött og gera farþegum skip- anna kleift að tala í farsíma þótt skipið sé utan þjónustusvæða síma- fyrirtækja í landi. Birgir Óskarsson hjá Símanum sagði í samtali við Morgunblaðið að í raun mætti segja að þarna væri hluti af venjulegu farsímakerfi Símans kominn á flot. „Kerfið virkar þannig að í raun er eins og viðkomandi far- þegar séu staddir á Íslandi og tali í gegnum farsímanet Símans,“ segir Birgir. „Í augnablikinu er það meira að segja svo að merki Símans kemur upp á skjá farsíma farþeganna, en við erum að reyna að breyta því í þá átt að merki viðkomandi skipafélags birtist í staðinn.“ Birgir segir að vegna samninga við önnur símfyrirtæki megi far- símasendarnir ekki starfa á þjón- ustusvæðum annarra fyrirtækja. „Þess vegna eru nemar í stöðvunum sem slökkva á þeim þegar skipið siglir inn í þjónustusvæði annarra fyrirtækja og kveikir á þeim þegar siglt er út aftur.“ Hagnaður Símans af þessu kemur í gegnum svokallaða reikisamninga sem fyrirtækið hefur gert við erlend farsímafyrirtæki, sem þýðir að Sím- inn fær greitt fyrir hverja einingu sem berst í gegnum móðurstöðv- arnar. Eins og stendur er aðallega um að ræða ferjur og farþegaskip á innhöfum í Evrópu, á Adríahafi, Eystrasalti og Norðursjó, en Birgir segir töluverðan vöxt í þjónustunni og að Síminn leitist nú við að fjölga skipum með farsímasenda frá fyr- irtækinu. Morgunblaðið/Kristinn Nýr markaður Síminn lítur á farþegaskip sem nýjan markað. Síminn leggst í víking Boðið upp á farsímaþjónustu um borð í ferjum og farþegaskipum í Evrópu ● ADIDAS Roteiro-boltinn, sem not- aður er í Evrópumeistarakeppninni í knattspyrnu, er nú þegar orðinn mest seldi fótbolti í heimi, að sögn Adidas í Þýzka- landi. Í frétta- tilkynningu segir að gert sé ráð fyr- ir sex milljónir Ro- teiro-bolta verði seldar á árinu. Adidas hefur framleitt bolta fyrir flest stærstu knattspyrnumót heimsins frá 1970 og segir Roteiro-boltann slá alla aðra út í vinsældum. Boltinn er sá fyrsti, sem Adidas framleiðir fyrir stór- mót, sem er ekki saumaður heldur bræddur saman. Günter Pfau, framkvæmdastjóri hjá Adidas, segir að hinir frábæru leik- ir í keppninni sýni hvað fagmenn geti gert með boltann. „Við höfum fram- leitt fótbolta frá 1963 og erum sann- færð um að þessi sé sá bezti sem við höfum búið til,“ segir Pfau. Sex milljón Roteiro- boltar seldir Fótboltastjarnan David Beckham með metsöluboltann. ● ÍSLENDINGURINN Jón Stephenson von Tetzchner, stofnandi netvafrafyr- irtækisins Opera, hefur efnazt bezt af þeim ungu at- hafnamönnum, sem stofnað hafa upplýsingatækni- fyrirtæki í Noregi á undanförnum árum, að sögn Finansavisen. Blaðið greinir frá því að margir hinna ungu upp- lýsingatæknifrumkvöðla hafi að und- anförnu fengið verðmiða á eignir sín- ar, ýmist af því að þeir hafi sett fyrirtæki sín á markað eða selt þau frá sér. Opera fór nýlega á markað og er í umfjöllun blaðsins talin virði um 800 milljóna norskra króna, eða um 8 milljarða íslenzkra króna. Þar af er eignarhlutur Jóns metinn á um 170 milljónir, yfir 1,7 milljarða ÍSK. Næstir á eftir honum koma Erlend Bruvik, stofnandi Stocknet, sem er talinn eiga um 150 milljónir NOK, og Eilert Hanoa, stofnandi Mamut, sem á um 70 millj. NOK. Jón í Opera efnaðastur             !          !"# $%%&  !"# $" ' (   ) * +% ,- % # .$+% / +% ) * 0 * 0  1* ,# % - 234  2 "3" 1( - + 2&*"3 ' &'4 '- 5 4 6 "   !" #  -*-( - -7* 1 %3 %'" ) * 1( -  - ! % 1*"* ' "'3" " 8"9*- ! :3# ' :*" + 7-3 %'" :*" + 9'" $' + : '- 5 ;9 4- < '+!  .* +%" .&" /-  /- =% 9'" >?4  2)1 2*    *  2*( " -7*2"'" * 2=#* @ @ 5 3 ' &'  A  *" &'  ;! 3 33 B2=+  $ %# & # '( " " +%% 1 % * C5- ' / 3 ) *   2 (* %  @=% -= A( 5 -7*) * 2'   ' % '                B  B   B  B       B  B B B B   B B B B B B  $ 5 - ( -5  ' % '   B B B B B  B   B B B B B B  B B B B B B B B B B B B B B B B B B B D E D E DBE B B DE DBE B DE B D E DBE D E B B DE B D E DE B DE B D  E DB E B B B B B B B B B B B B B B B B B B : *   ' % #  @ *+!'*!%  ."#2*                  B    B    B  B       B  B B B B    B B B B B B                       B         B                                         B     B     B          B  A ' % # F %  1&*  ' % #           B  B  B  B    B   B B B B   B B B B B B  ● MÁR Másson hefur verið ráðinn viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn. Í Stiklum, vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins, segir að í ljósi aukinnar eftirspurnar eftir aðstoð við- skiptaþjónustu ráðuneytisins við ís- lenzka viðskiptaaðila í Danmörku hafi verið ákveðið að endurvekja stöðu viðskiptafulltrúa. Már Másson er með BSc-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptahá- skólanum í Kaupmannahöfn og er að ljúka meist- aranámi í mark- aðsfræði og stjórnun við sama skóla. Hann hefur m.a. verið skrif- stofustjóri Al- þjóðaverzl- unarráðsins á Íslandi og verk- efnastjóri Dansk- íslenzka verzlunarráðsins í Kaup- mannahöfn. Nýr viðskiptafulltrúi í Kaupmannahöfn Már Másson ● Samanlagt markaðsvirði félaga í Kauphöllinni nemur nú u.þ.b. 850 milljörðum króna og hefur því aukist um rúmlega 190 milljarða frá byrjun ársins eða um 29%. Eru þá bæði tal- in félög á Aðallista og Tilboðsmark- aði Kauphallarinnar. Kemur þetta m.a. fram í Hálf-fimm fréttum KB banka frá því í gær. Í fréttabréfinu segir einnig að virð- isaukning markaðarins skýrist fyrst og fremst af hækkun á markaðsvirði KB banka, Landsbankans og Ís- landsbanka en samanlögð verð- mætaaukning bankanna þriggja nemur 132 milljörðum króna frá ára- mótum. Ekki urðu neinar grundvallarbreyt- ingar á erlendum mörkuðum í gær, nema hvað Nikkei vísitalan japanska hækkaði um 1,4%. Markaðir í Evrópu hækkuðu lítillega og bandarískir markaðir lækkuðu um nokkrar kommur. Skráð fyrirtæki um 850 milljarða virði > G 2HI       1@2C JK       LL ,0K      .1K > %%       MLCK J!N<!      

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.