Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 16
AÐ MINNSTA kosti 89 manns biðu
bana og um 320 særðust í árásum
íraskra uppreisnarmanna á bæki-
stöðvar írösku lögreglunnar og
Bandaríkjahers í nokkrum borgum
í Írak í gær. Aðgerðirnar virðast
hafa verið rækilega samhæfðar en
talið er að þeim sé ætlað að skapa
glundroða í aðdraganda fyrirhug-
aðs valdaframsals í landinu nk. mið-
vikudag. Íraskir og bandarískir
embættismenn í Bagdad fordæmdu
árásirnar í gær en vöruðu jafnframt
við því að vænta mætti frekari árása
á næstu dögum.
Mest var mannfall í Mosul í
Norður-Írak en þar dóu 44 og 216
særðust þegar nokkrar bílsprengj-
ur sprungu í borginni, fréttum bar
ekki saman um fjölda þeirra en þær
eru taldar hafa verið á bilinu fjórar
til sjö.
Zarqawi sagður ábyrgur
Fyrstu fregnir af árásum í gær
bárust hins vegar frá Baquba, rétt
norðan við Bagdad. Gerðu upp-
reisnarmenn, sem báru höfuðklúta
og voru vopnaðir árásarrifflum og
sprengjuvörpum, árás á lögreglu-
stöð borgarinnar, að sögn AFP-
fréttastofunnar og biðu tveir banda-
rískir hermenn bana og allt að tutt-
ugu Írakar. Flestir Írakanna voru
liðsmenn lögreglunnar, sem átt hef-
ur samstarf við Bandaríkjamenn.
Einnig var gerð árás á ráðhúsið í
Baquba og heimili lögreglustjórans.
Bandaríkjaher brást við aðgerðun-
um með því að varpa sprengjum á
vígi uppreisnarmannanna.
Félagsskapur Abu Mussabs al-
Zarqawis, sem er jórdanskur og er
sagður hafa tengsl við al-Qaeda-
hryðjuverkasamtökin, birti í gær
yfirlýsingu á Netinu þar sem hann
gengst við ábyrgð á árásunum.
Íbúar Fallujah flýja borgina
Baquba tilheyrir súnní-þríhyrn-
ingnum svokallaða, svæði skammt
norður og suður af Bagdad þar sem
styrkur uppreisnarmanna er mest-
ur. Það gera líka borgirnar Ramadi
og Fallujah en þar voru einnig gerð-
ar árásir í gærmorgun á íraskar ör-
yggissveitir og bækistöðvar Banda-
ríkjahers. Biðu a.m.k. 20 manns
bana í aðgerðum uppreisnarmanna
í borgunum tveimur. Kom til skot-
bardaga kom milli bandarískra
landgönguliða og uppreisnarmanna
á götum Ramadi. Þá sögðu vitni að
lögreglan hefði skotið til bana mann
sem hugðist koma fyrir sprengju
fyrir framan lögreglustöð í borg-
inni.
Skammt frá Fallujah tókst upp-
reisnarmönnum að skjóta niður
eina af þyrlum Bandaríkjahers en
áhöfn þyrlunnar komst lífs af.
Bandaríkjamenn gerðu í kjölfarið
árásir á meintar bækistöðvar upp-
reisnarmanna í borginni. Sjá mátti
hvar óbreyttir borgarar flýðu borg-
ina eftir skærur morgunsins. Síð-
degis var þó allt með kyrrum kjör-
um að sögn Mohammeds Abduls
Latifs, yfirmanns írösku öryggis-
sveitanna í Fallujah.
Vilja skaða lýðræðisþróun
Ónafngreindur fulltrúi banda-
rískra ráðamanna í Bagdad sagði að
líklegt væri talið að aðgerðirnar í
borgunum fjórum hefðu verið sam-
hæfðar en árásirnar áttu sér allar
stað eldsnemma í gærmorgun.
„Þetta er í fyrsta sinn sem þeir
[uppreisnarmenn] ná að samræma
aðgerðir sínar svo nákvæmlega,“
sagði Brian Paxton, majór í Banda-
ríkjaher. „Þeir hafa haft áhuga á að
setja strik í reikninginn hvað valda-
framsalið varðar og nú loksins tókst
þeim að ná saman mannskap til að
láta til skarar skríða.“
Fréttaskýrendur segja að upp-
reisnarmennirnir hafi með aðgerð-
um sínum tekist að sýna að þeir búi
yfir talsverðum styrk og að þeir séu
færir um að valda uppnámi. Þetta
hljóti að vera áhyggjuefni fyrir
bandarísku hernámstjórnina í Bag-
dad og forsætisráðherra írösku
bráðabirgðastjórnarinnar, Iyads
Allawis, sem heitið hefur því að
tryggja öryggi íraskra borgra.
Allawi sagði að markmið ódæð-
ismannanna væri að skaða lýðræð-
isþróunina í landinu. Þeim yrði hins
vegar ekki kápan úr því klæðinu.
„Við munum ráða niðurlögum
þeirra,“ sagði hann.
Hátt í 100 biðu bana í
samhæfðum árásum
Uppreisnarmenn
sagðir vilja skapa
glundroða í að-
draganda valda-
framsals í Írak
Bagdad. AFP, AP.
Íraskir uppreisnarmenn í Fallujah
fögnuðu í gær ákaft eftir að hafa
lent í átökum við bandaríska her-
menn í borginni.
)*#+,& ,#,
& *, %
- .
&+ /,
&#
#,#
%&& %
( &$ #
- . .
)8>
@O8./>J
%3
(0
'
)8.
1
$&
'&&
0 .2# "3 #''
3" *& *"&'"3$ B
%4 !4
3
*
%*& *"B
-!
+
'"+4
'3
+ /$ %4 F5 *%!
'" 4& '"3+ &"3$ B
%4 ! % "##
3
+!
- 2 '3
%!
F (
+
'"+F(3
+ %
4 3 F +5"3 '"
( ((+=%
&' & 5
$ %4 + (
'*&"
3 '*!-( ("3
3%>!%% +*# " # ""
'*& *"&' +!
*
''
3%34-
+ '
'+
: '
&"+ (
3" &'"3
+!
Reuters
Írakar vinna að því að ná brunn-
um líkamsleifum manns út úr
bílflaki í Mosul í gær.
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
OPIÐ HÚS UM HELGINA
BORGARHÓLL - HEILSÁRSEINBÝLISHÚS
VIÐ MEÐALFELLSVATN Í KJÓS
Sveitasæla við Meðalfellsvatn í Kjós, 30 mín. akstur frá Rvík. Ca
90 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 2.500 fm eignarlóð. MÖGU-
LEIKI Á STÆKKUN LÓÐAR. Forstofa, hol, opið eldhús, 2 herbergi,
baðherbergi, stofa og borðstofa. Hellulögð suðurverönd með
skjólvegg. Frábært útsýni yfir sveitina og yfir vatnið. Góðar innrétt-
ingar, parket og flísar. Heilsárshús með tilheyrandi þjónustu frá
Kjósarhreppi, m.a. skóli o.s.frv. Húsbréfalánshæft. Verið að kanna
með hitaveitu frá Hvammsvík. V. 14,9 m. 4043
Eigendur sýna húsið frá kl. 14 til 18
laugardag og sunnudag.
RÍKISFJÖLMIÐLARNIR í Víetnam hafa
varað knattspyrnusjúklinga við að vaka
hálfa eða heilu nóttina yfir leikjum í Evr-
ópumótinu. Segja þeir, að slíkar vökur geti
valdið andlegri og líkamlegri vanheilsu.
„Að vaka á nóttinni og vinna daginn eftir
getur haft alvarlegar afleiðingar í för með
sér, til dæmis mikið lystarleysi,“ sagði víet-
namska ríkisfréttastofan. „Hróp og öskur
geta skaðað hálsinn og jafnvel valdið
berkjubólgu.“
Knattspyrna er vinsælasta íþróttagreinin
í Víetnam. Í heimsmeistaramótinu í Japan
og Suður-Kóreu 2002 neyddust fyrirtæki
og opinberar stofnanir til að leyfa starfs-
fólki að fylgjast með leikjunum í vinnutím-
anum til að koma í veg fyrir miklar fjar-
vistir. Nú fara hins vegar allir leikir fram að
næturlagi að víetnömskum tíma og kvarta
vinnuveitendur hástöfum yfir ömurlegri
frammistöðu svefngenglanna.
Framsýnir
foreldrar
„ÆVI mín“, minningabók Bill Clintons,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur vakið
nokkra furðu á Nýja-Sjálandi eða öllu held-
ur það, sem hann segir um nafn konu sinn-
ar, Hillary. Heldur hann því fram, að hún
hafi verið skírð í höfuðið á Sir Edmund
Hillary, hinum fræga, nýsjálenska fjall-
göngumanni, sem fyrstur varð til að sigrast
á Everest-fjalli. Sannleikurinn er hins veg-
ar sá, að það afrek vann hann 29. maí 1953,
næstum sjö árum eftir að Hillary Clinton
kom í heiminn. Eru Nýsjálendingar
hneykslaðri á þessu en því, sem Clinton
segir um ævintýri sitt með Monicu Lew-
insky, og grunar, að hann sé að fara dálítið
frjálslega með sannleikann.
Samstaða
á Ítalíuþingi
Á ÍTALSKA þinginu er jafnan hver höndin
uppi á móti annarri og sjaldgæft er, að
stjórn og stjórnarandstaða sameinist um
nokkurn hlut. Það hefur þó gerst núna.
Fulltrúar allra flokka hafa sameinast í for-
dæmingu sinni á ítalska landsliðinu í knatt-
spyrnu og háðulegri útreið þess í Evr-
ópumótinu. Hneykslast þeir einkum á
tveimur mönnum, þeim Francesco Totti,
sem settur var í tveggja leikja bann fyrir að
hrækja á andstæðing, og þjálfaranum,
Giovanni Trapattoni.
„Ég er ánægður með, að liðinu skuli hafa
verið sparkað burt. Í því er allt of mikið af
börnum en of lítið af fullorðnum mönnum,“
sagði einn öldungadeildarþingmaður vinstri
manna. Hægrimaður nokkur sagði, að leik-
mennirnir væru ofdekraðir og oflaunaðir
þótt þeir kynnu lítið fyrir sér. „Tveir þriðju
þeirra eiga ekkert erindi í landslið.“
Vítislogar í neðra
DANI nokkur hefur farið í mál við sjúkra-
húsið í Kjellerup eftir að kviknaði í kynfær-
um hans í aðgerð þegar hann leysti vind.
Læknar voru að fjarlægja fæðingarblett af
afturenda hans með rafeindaskurðhníf þeg-
ar hann leysti vind og neisti hljóp skyndi-
lega í eistu hans sem höfðu verið þvegin
upp úr sótthreinsandi vökva. Maðurinn,
sem er þrítugur, segist ekki geta stundað
kynlíf með eiginkonu sinni og hafa þurft að
taka sér frí frá vinnu. „Þegar ég vaknaði
var eins og vítislogar brenndu liminn og
punginn,“ sagði maðurinn. Hann krefst
bóta vegna tekjumissis og þjáninga.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Fótboltasjúk-
lingar varaðir við
Reuters
KANO, ársgamall órangútankrakki,
fær hér ljúfan koss frá móður sinni er
haldið var upp á afmælið með veislu í
dýragarði í Jakarta í Indónesíu.
Hann á afmæli í dag
VINNUVEITENDUR boðuðu í
gær verkbann á norsku olíubor-
pöllunum og komi til þess, mun öll
olíuvinnsla Norðmanna stöðvast.
Er hún þrjár milljónir fata á dag.
Noregur er þriðja mesta olíuút-
flutningsríki í heimi.
Verkbannið, sem á að koma til
framkvæmda næsta þriðjudag,
var ákveðið eftir að talsmenn
verkfallsmanna höfðu boðað aukn-
ar aðgerðir frá og með mánudegi.
Sagði Per Terje Vold hjá Samtök-
um norska olíuiðnaðarins, að verk-
fallsdeilan, sem hófst fyrir viku,
væri í hnút og engar líkur á lausn.
„Kröfurnar eru óaðgengilegar
og verkbannið þess vegna neyð-
arúrræði af okkar hálfu,“ sagði
Vold en venjulega hafa norsk
stjórnvöld verið fljót að binda
enda á verkföll í þessum mikil-
vægasta atvinnuvegi í landinu.
Þau hafa þó ekki látið neitt uppi
um áform sín nú.
Lífeyrisgreiðslur
og atvinnuöryggi
Deilan snýst einkum um aukn-
ar lífeyrisgreiðslur og atvinnuör-
yggi og lögðu 207 verkamenn
niður vinnu fyrir viku. Á mánu-
dag verða þeir orðnir 325 og
komi til verkbanns leggst öll
vinna niður.
Verð á Norðursjávarolíu
hækkaði lítillega í gær vegna
verkfallsins en almennt er búist
við, að norska stjórnin bindi enda
á það.
Boða verkbann
í olíuvinnslu
Norðmanna
Framleiðsla gæti stöðvast en
búist er við að stjórnin grípi inn í
Ósló. AP, AFP.