Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 17

Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 17 Kraftaverk með hráfæði Boutenko fjölskyldan (Victoria, Igor, Sergei og Valya) verður með kynningu á hráfæði nk. mánudag kl. 16-18 í Odda 201, Háskóla Íslands. Þau segja þau frá margra ára reynslu sinni af þessu fæði og hvernig þau hafa getað hjálpað sér og öðrum af margs konar kvillum og vandræðum. Sýnishorn af hráfæði í boði. Allir velkomnir. Aðgangseyrir kr. 1.000. Boutenko fjölskyldan mun einnig verða með kennslu í hráfæðis- matargerð í fundaherbergi félagsvísindadeildar Háskóla Íslands nk. þriðjudag kl. 16-18. Þar munu þau kenna hvernig hægt er að gera hráfæðismatargerð einfalda, auðvelda og fjölbreytta. Aðgangseyrir kr. 3.000. Máltíð fylgir. T aílenskur efnahagur hefur náð sér á strik eftir fjármálakreppuna miklu í Asíu en hún hófst með hruni taí- lenska bahtsins árið 1997. Upphaf nýrrar aldar lofar góðu fyrir framtíð Taílands því hagvöxtur hefur verið mikill og við- skiptatengsl við önnur lönd aukin til muna. Ný ríkisstjórn undir forystu hins fimm ára gamla stjórnmálaflokks Thai Rak Thai (sem út- leggst á íslensku „Taílendingar elska Taílend- inga“) tók við völdum árið 2001. Dr. Kantathi Suphamongkhon, kallaður „Kan“, er einn af stofnendum flokksins og gegnir nú embætti ann- ars tveggja farandviðskiptaráðherra Taílands. Hann er einnig sérlegur sendifulltrúi forsætis- ráðherrans og helsti ráðgjafi taílensku prinsess- unnar. Embætti farandviðskiptaráðherra er aðeins þriggja ára gamalt og tilheyrir ekki sérstöku ráðuneyti en á samstarf við ólík ráðuneyti, allt eftir áætlunum stjórnarinnar, og heyrir undir forsætisráðherrann. Kan hefur yfirumsjón með viðskiptatengslum Taílands við 120 lönd í Evr- ópu, Ameríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi og er því á stöðugum ferðalögum um heiminn. „Efnahagsástandið í Taílandi er mjög gott, það besta í Suðaustur-Asíu í fyrra og það næst- besta í Asíu allri. Hagvöxturinn var mjög góður í fyrra eða 6,3 % og gengi gjaldmiðilsins er stöð- ugt. Við vonumst til þess að hagvöxturinn fari í 7% á þessu ári,“ segir Kan. Það sýni að stjórnin hafi tekið rétta stefnu með því að efla fram- leiðslu í sveitum og styrkja smærri og miðlungs- stór fyrirtæki. Ætlar ekki að kaupa Liverpool „Þar sem við lifum á tímum hnattvæðingar þá viljum við viðhalda viðskiptatengslum okkar en að sama skapi opna dyrnar fyrir nýjum vinum,“ segir Kan og nefnir sem dæmi nýgerða versl- unarsamninga við Litháen, Rúmeníu og Búlg- aríu. Kan hefur orð á því að um 800 manns af taí- lenskum uppruna búi á Íslandi og finnst mikið til þess koma. Ákveðin tengsl hafi því þegar orð- ið með löndunum. Taíland sé leiðin að stórum markaði Suðaustur-Asíu og það sé því ástæða til þess að Íslendingar skoði betur hvernig hægt sé að auka vöruflutninga og viðskipti milli land- anna. „Ég leit á innflutningstölur og sá að Ís- land er í 129. sæti á lista yfir lönd sem flytja vörur til Taílands. Það er ekkert sérstaklega gott,“ segir Kan og hlær að því að það sé meira flutt inn af vörum frá Liechtenstein en Íslandi. Innflutningur á taílenskum vörum sé að sama skapi mjög lítill á Íslandi, það séu aðallega föt, bifreiðar og varahlutir, veiðarfæri og unnar sjávarafurðir en mun fleira væri hægt að flytja inn. „Ísland er land sem við ættum að auka tengsl okkar við,“ segir Kan. Blaðamaður stenst ekki mátið og spyr Kan hvort vinur hans forsætisráðherrann ætli að kaupa enska knattspyrnufélagið Liverpool. „Á þessari stundu held ég að hann ætli að láta einkafyrirtækjum það eftir. Ákveðið fyrirtæki hefur áhuga á því, ekki stjórnin, fyrirtæki í skemmtanaiðnaðinum sem tengist honum ekki. Hann hefur gaman af knattspyrnu, að ég held,“ segir Kan. Taíland vilji vera sýnilegt í al- þjóðlegu viðskiptalífi og hluti þess sé að kaupa þekkt vörumerki. Land brossins Nú hafa Taílendingar orð á sér fyrir að vera með eindæmum glaðlyndir og gestrisnir. Hver er leyndardómurinn á bak við þá gleði? „Taíland hefur alla tíð gengið undir viðurnefn- inu ,,land brossins“ og það tengist sennilega búddhatrúnni og menningu landsins. Trúin á endurholdgun er sterk og því er alltaf von um betri framtíð. Ef einhver er t.d. fátækur á hann von um ríkidæmi í næsta lífi láti hann gott af sér leiða í þessu lífi,“ segir Kan. Hann segir hefð vera fyrir gestrisni í landinu og því að líta á björtu hliðarnar. Taílendingar trúi mikið á spádóma, fari til að mynda frekar til stjörnuspekings en sálfræðings. „Þú getur alltaf litið hlutina björtum augum, þetta er spurning um skynjun frekar en atburðina sjálfa,“ segir Kan að lokum brosandi, enda frá „landi brossins“. „Alltaf von um betri framtíð“ Dr. Kantathi Suphamongkon, farandviðskiptaráðherra Taí- lands, kom í brúðkaupsferð til Íslands í vikunni. Helgi Snær Sigurðsson ræddi við hann um hagvöxt, Liverpool og leynd- ardóminn á bak við taílenska brosið. Morgunblaðið/Ásdís Farandviðskiptaráðherra Taílands, dr. Kant- anthi Suphamonkhon og eiginkona hans, Sop- arvan ‘Nook’ Chanta. helgisnaer@mbl.is ÞAU Christer og Ulla eru með elgskúabú í Norður- Svíþjóð og framleiða aðeins osta, um 300 kíló á ári. Það er að vísu ekki mikið en verðið er hátt, um 72.000 ísl. kr. kg. Er osturinn, sem er að sjálfsögðu hið mesta lost- æti, aðeins seldur til dýrustu hótela og veitingahúsa. Þau hjónin eru með 14 elgi en aðeins þrjár mjólkandi kýr og þær mjólka aðeins frá maí til september, um fjóra lítra hver á dag. Elgir vega oft um 500 kg. Hér er ferðafólk að klappa einni kúnni en þær heita Gullan, Helga og Juna. AP Himinhátt verð fyrir elgsostinn PÓLSKA þingið lýsti í gær stuðningi við ríkisstjórn Mareks Belka for- sætisráðherra, sem tók við til bráða- birgða er Leszek Miller og vinstri- stjórn hans sagði af sér í byrjun maí. Hefði traustsyfirlýsing þingsins ekki fen- gizt nú hefði verið boðað til nýrra þingkosninga hinn 8. ágúst næstkomandi. Alexander Kwasniewski forseti fól Belka að taka við sem forsætisráðherra eftir að hinn vinsældum rúni Miller sagði af sér daginn eftir inngöngu Pól- lands í Evrópusambandið 1. maí sl. Þingið felldi beiðni Belkas um traustsyfirlýsingu er hann bar slíka fyrst upp hinn 14. maí. Síðan þá hef- ur landið verið án fullstarfhæfrar ríkisstjórnar. Aðstæður snerust Belka í hag er klofningsflokkar úr stjórnarflokknum SLD (sem er arf- taki pólska kommúnistaflokksins) fóru illa út úr Evrópuþingkosning- unum 13. júní sl. Þá sáu þeir að það yrði þeim ekki hagfellt að þingkosn- ingar færu fram nú og kusu frekar að gefa stjórn Belkas tækifæri. Belka sagðist myndu biðja það um nýja traustsyfirlýsingu viku eftir að stjórnin leggur fram fjárlög næsta árs í október. Belka heldur velli Marek Belka Varsjá. AFP. YFIRVÖLD í Bandaríkjunum hafa ákært tvo menn fyrir að stela 92 milljónum netfanga hjá netþjónustufyrirtækinu Americ- an Online, AOL, en þau átti að nota til að senda fólki alls konar ruslpóst. Mennirnir tveir, sem nú hafa verið handteknir, eru Jason Smathers, hugbúnaðarsérfræð- ingur hjá AOL, og Sean Dun- away, sem keypti netfangalist- ann af Smathers og seldi hann síðan aftur mönnum, sem aug- lýstu náttúrulyf. Átti það að auka kyngetu karla og stækka getnaðarliminn. Dunaway keypti síðar uppfærðan lista af Smathers fyrir 7,2 millj. ísl. kr. og seldi aftur. Málið gegn þeim félögum er eitt það fyrsta, sem höfðað er í krafti laga gegn ruslpósti en þau gengu í gildi í janúar síðast- liðnum. Þeir Smathers og Du- naway eiga yfir höfði sér fimm ára fangelsi og 18 millj. kr. sekt. Við þetta má bæta, að fyr- irtækið sjálft, AOL, hefur verið dæmt og sektað í Frakklandi fyrir ólöglega viðskiptahætti. Voru til dæmis sumir samningar þess þannig, að það gat sagt þeim upp fyrirvaralaust en við- skiptavinurinn ekki nema hann greiddi sekt. Stálu 92 milljónum netfanga Notuð til að senda ruslpóst New York. AFP. RÍKISSTJÓRN sósíalista á Spáni hefur ákveðið að leggja til hliðar mjög umdeilda áætlun um gríðar- mikið kerfi til að flytja vatn frá norðri til suðurs. Áætlunin sem samþykkt var í stjórnartíð José María Aznar, þáver- andi forsætisráðherra Þjóðarflokks- ins, kvað á um að lögð yrði 900 kíló- metra löng leiðsla til að flytja vatn frá Ebro-fljóti í norðausturhluta Spánar til þurrkasvæða í suðaustur- hluta landsins. Þar, einkum í Alm- ería í austurhluta Andalúsíu og í Murcía suður af Valencía, ríkir gríð- arlegur vatnsskortur. Helstu samtök spænskra um- hverfissinna, Ecologistas En Acción, fögnuðu ákvörðun stjórnar José Luis Zapatero, forsætisráðherra Spánar, en sögðu áform stjórnvalda ekki duga til að leysa þann vanda sem mikil vatnsnotkun, m.a. vegna örrar uppbyggingar á þeim slóðum, hefði skapað. Umhverfissinnar hafa undanfarin þrjú ár barist af hörku gegn áætluninni. Í stað vatnsveitunnar hyggjast stjórnvöld byggja 15 sjóeimingar- stöðvar, sem hreinsa salt úr sjó og gera vatnið hæft til notkunar og neyslu, meðfram austurströndinni. Fullyrti María Teresa Fernandez, aðstoðarforsætisráðherra Spánar, að þær ásamt betri nýtingu vatns myndu duga til að bæta ástandið. Stjórn Aznars áætlaði að kostnað- urinn við vatnsveituna yrði rúmir 350 milljarðar króna. Eimingar- stöðvarnar munu kosta minna, trú- lega rétt rúma 300 milljarða, og hyggjast stjórnvöld leita eftir fjár- veitingu frá Evrópusambandinu sem neitaði að koma að fyrri áætluninni. Sósíalistar komust til valda á Spáni eftir kosningar sem fram fóru í mars. Þeir höfðu lýst sig andvíga áætluninni og eitt fyrsta verk Zap- ateros forsætisráðherra var að fresta frekari vinnu á grundvelli hennar. Spænska ríkisstjórnin tekur af skarið Hætt við umdeilda vatnsveitu Madríd. AFP. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.