Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 20

Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Metaðsókn í Fjölbraut | Gengið hefur verið frá inntöku nemenda í dagskóla Fjöl- brautaskóla Suðurlands. Alls bárust 909 fullgildar umsóknir, fleiri en nokkru sinni áður í sögu skólans. 25 nemendum var synj- að um skólavist á næstu önn vegna ítrek- aðrar lélegrar ástundunar og lítils náms- árangurs en 884 nemendur fá tilboð um skólavist næsta vetur. Ekki er ólíklegt að nemendur verði um 20 til 30 fleiri í haust en áður hafa verið í skól- anum. Frá því gengið var frá þessum mál- um um miðja síðustu viku hafa borist nokkrar umsóknir til viðbótar og fara þær á biðlista, að minnsta kosti fyrst um sinn.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Nýr oddviti | Sigurbjartur Pálsson úr Þykkvabæ var kjörinn oddviti Rang- árþings ytra á síðasta fundi hrepps- nefndar. Hann er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem er í meirihluta í hreppsnefnd og tekur við af félaga sín- um, Valtý Valtýssyni, sem verið hefur oddviti frá sam- einingu. Varaoddviti var kjörinn Engilbert Ol- geirsson í Holtum. Þá var Ingvar Pétur Guðbjörnsson á Hellu kjörinn formaður hreppsráðs og með honum í ráðinu eru Sigurbjartur Pálsson og Viðar H. Stein- arsson á Kaldbak.    Gáfu 1.600 pylsur | Pylsuvagninn á Selfossi hélt upp á tvítugsafmæli sitt síð- astliðinn sunnudag. Í tilefni dagsins fengu gestir veitingar og gáfu eigendur fyrirtækisins 1.600 pylsur og 1.700 gos- dósir auk þess sem gefnar voru blöðrur og bolir. Þá var ýmislegt til skemmtunar gert. „Þetta var alveg óskaplega gaman,“ sagði Ingunn Guðmundsdóttir, eigandi Pylsuvagnsins, í samtali við Fréttavef Suðurlands, sudurland.net. Hún sagði viðskiptin mikil og sífellt vaxandi. Mest sé þó að gera í góðu veðri þegar fólk vilji frekar vera úti en fara inn og elda. Eyrbekkingar efnatil Jóns-messuhátíðar á Eyrarbakka laugardaginn 26. júní. Á dagskrá verða meðal annars ljós- myndasýningar þar sem Erlingur Bjarnason sýnir í búðargluggum, Magnús Karel Hannesson sýnir í Rauða húsinu og Linda Ásdísardóttir í Sjóminja- safninu. Í Óðinshúsi er sýning fjögurra myndlist- arkvenna. Jörg Sonder- mann leikur á orgel Eyr- arbakkakirkju og gengið verður um götur með leið- sögn. Þá eru Byggðasafnið og Sjóminjasafnið opin til kl. 22. Almennur söngur verður í Húsinu og kveikt verður í Jónsmessubrennu um kl. 22 vestan við bryggjuna á Eyrarbakka. Hátíð Njarðvík | Hópur af dug- legum unglingum tók áskorun umhverf- issamtakanna Bláa hers- ins og vann að hreinsun á strandlengju og tjörn- unum á Njarðvíkurfitjum. Krakkarnir sem unnu að hreinsuninni unnu sér inn ákveðna fjárhæð vegna ferðar á vinabæjarmót í körfubolta sem fram fór í vikunni í Trollhattan í Svíþjóð. Þau stóðu sig jafnvel þar og við hreins- unarstarfið og sigruðu í mótinu, bæði stúlkna- og drengjaliðið. Fitjarnar hreinsaðar Jói í Stapa fór í ferðIðunnar um liðnahelgi og líkaði vel: Indæla ég átti stund er því kært að lýsa. Kaffið mína kætir lund, kannski fæðist vísa. En fæðingin gengur ekki alltaf jafn greiðlega fyrir sig, – hann orti: Bý ég einn við sorg og sút sáru háður gjaldi þarf að skipta öllum út orðunum sem ég valdi. Þegar fór að síga á seinni hlutann orti Bjarni Valtýr Guðjónsson: Okkur gengur allt í haginn er mín djarfa fullyrðing. Sígur nú á sunnudaginn, sólin gyllir Húnaþing. Sigmundur Benediktsson var þakklátur í ferðalok: Ykkur leið mín liggur frá látið margt var flakka. Í sólaryl við sundin blá samfylgdina þakka. Indæl stund pebl@mbl.is TVENNAR kosningar um sameiningu sveitarfélaga fara fram næstkomandi laugardag, samhliða kosningum til emb- ættis forseta Íslands. Verði hvor tveggja sameiningin samþykkt mun sveitarfélög- um á landinu fækka úr 104 í 100, að því er fram kemur á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kosið verður um sameiningu Hríseyj- arhrepps og Akureyrarkaupstaðar á laugardaginn. Þá verður kosið um sam- einingu fjögurra sveitarfélaga á Fljóts- dalshéraði en það eru Austur-Hérað þar sem Egilsstaðir eru stærsti byggða- kjarninn, Fellahreppur þar sem Fella- bær er þéttbýliskjarninn og sveita- hrepparnir Fljótsdalshreppur og Norður-Hérað. Unnt er að greiða atkvæði utan kjör- fundar hjá sýslumönnum um allt land og á kjörstöðum í viðkomandi sveitarfélög- um á kjördag, 26. júní. Tvennar kosningar um sameiningu Reykjanesbær | Bæjarstjórn Reykjanes- bæjar hefur samþykkt að skora á mennta- málaráðherra og stjórnendur Tæknihá- skóla Íslands að huga vel að kostum Reykjanesbæjar við ákvörðun um stað- setningu og upp- byggingu Tæknihá- skóla Íslands. Ályktun þessa efn- is var flutt af Kjart- ani Má Kjartanssyni, bæjarfulltrúa Fram- sóknarflokksins, á fundi bæjarstjórnar á dögunum en allir bæjarfulltrúarnir stóðu að henni. Í ályktuninni segir að á Suðurnesjum sé nægt landrými. Þar séu einnig mörg öflug fyrirtæki og stofnanir sem gætu talist heppilegir samstarfsaðilar skólans, svo sem Hitaveita Suðurnesja og Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja. Auk þess er vakin athygli á því að alþjóðaflugvöllur sé í næsta nágrenni og ýmis stór verkefni í farvatninu, til dæmis í orkugeiranum og á iðnaðarsvæðinu í Helguvík. „Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er því sannfærð um að Reykjanesbær sé mjög vænlegur kostur sem framtíðarstaður fyr- ir Tækniháskóla Íslands,“ segir í álykt- uninni. Litið verði til Reykjanesbæjar um staðsetningu ♦♦♦ Hella | Rangárþing ytra samdi ný- lega við þrjú íþrótta- og ungmenna- félög í sveitarfélaginu, Umf. Heklu, Íþróttafélagið Garp og Umf. Fram- tíðina, um að sveitarfélagið styrkti félögin. Sveitarfélagið leggur fram peningastyrk, lætur í té endur- gjaldslaus afnotum af íþrótta- húsnæði og tækjum og kostar slysa- tryggingar íþróttaiðkenda félaganna upp að 16 ára aldri. Á móti munu félögin taka að sér að efla íþrótta- og æskulýðsstarf, sem er liður í forvörnum fyrir börn í sveitarfélaginu, jafnframt því að taka að sér ýmsa vinnu í sambandi við íþróttakeppnir og mót. Vonast aðilar samninganna til þess að þeir verði til þess að styrkja allt æskulýðs-, tómstunda- og íþróttastarf í Rangárþingi ytra á komandi árum. Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Undirritun: Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sveitarstjóri (t.h.) skrifaði und- ir samninga ásamt fulltrúum íþróttafélaga, Ingvari P. Guðbjörnssyni, Sæ- rúnu Sæmundsdóttur, Berglindi Kristinsdóttur og Nínu Maríu Morávek. Samningar um eflingu íþrótta- og æskulýðsstarfs Vestmannaeyjar | Þýska skemmtiferðaskipið Hanseatic var það fyrsta sem kom til Eyja í sumar þegar það lagðist að bryggju á dögunum. Alls er búist við sex skipum en tvö þeirra munu koma tví- vegis. Ferðamennirnir nýttu tímann í skoð- unarferð um Heimaey. Morgunblaðið/Sigurgeir Loks skemmtiferðaskip Ferðafólk Athvarf fyrir geðfatlaða | Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum erindi félagsmálastjóra um að hefja undirbúning að rekstri athvarfs fyrir geð- fatlaða í bænum. Starfsemin á að hefjast haustið 2005. Miðað er við að til þess verði notað það fjármagn sem sparast við breyt- ingar á rekstri gæsluvalla.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.