Morgunblaðið - 25.06.2004, Qupperneq 21
MINN STAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 21
www.ils.is
Peningar í
stað húsbréfa
Frá og með 1. júlí 2004 gefst
viðskiptavinum Íbúðalánasjóðs kostur á
að taka peningalán, gegn ÍLS-veðbréfum.
Hægt verður að taka ÍLS-lán til 20, 30
eða 40 ára og heimilt verður að stytta
eða lengja lánstímann samkvæmt reglum
sem Íbúðalánasjóður mun setja þar að
lútandi.
Íbúðalánasjóður býðst til að skipta samtals (eins og fram kemur hér fyrir neðan í hverjum
flokki fyrir sig) allt að hámarksmagni útistandandi skuldabréfa í 1., 2., 3. og 4. flokki hús-
og húsnæðisbréfa fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í febrúar 2024, í 5. og 6. flokki fyrir ný
íbúðabréf á gjalddaga í apríl 2034 og í 7. flokki fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í júní 2044.
Flokkur Skiptanleg skuldabréf Hámarksmagn
sem tekið verður við
1 1. flokkur 1996 húsnæðisbréf 100%
2 2. flokkur 1996 húsbréf 85%
3 1. flokkur 1998 húsbréf 85%
4 1. flokkur 2001 húsbréf 85%
5 2. flokkur 1998 húsbréf 85%
6 2. flokkur 1996 húsnæðisbréf 100%
7 2. flokkur 2001 húsbréf 85%
Frá 28.-30. júní býðst eigendum húsbréfa að skipta á þeim fyrir hin nýju,
markaðsvænu ÍLS-veðbréf. Hafðu samband við banka þinn, sparisjóð eða verðbréfa-
fyrirtæki og fáðu ráðgjöf vegna þessa.
Ef magnið sem boðið verður í einhverjum flokki fer fram úr því hámarksmagni sem tekið verður við verða
beiðnir vegna þess flokks lækkaðar hlutfallslega, eins og lýst er í minnisblaði um skuldabréfaskiptin.
Endanlegt skiptaverð verður tilkynnt þann 28. júní. Stefnt er að uppgjöri þann 7. júlí 2004.
Bankar, sparisjóðir og verðbréfafyrirtæki sjá um milligöngu skiptanna.
Borgartún 21, 105 Reykjavík,
sími: 569 6900, fax 569 6800, www.ils.is
Áttu húsbréf?
Breytt Íbúðalánasjóðslán
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
1
2
5
9
9
/sia
.is
Mývatnssveit | Lífið gengur enn
sinn vanagang í Kísiliðjunni. Eftir
nokkuð hefðbundið viðhaldsstopp í
maí eru hjólin aftur tekin að snúast.
Þorbergur Ásvaldsson kom hingað
frá Ökrum í Reykjadal 1. maí 1970
til starfa í verksmiðjunni og hefur
átt hér sinn starfsvettvang síðan,
eða í 34 ár. Á þeim tíma hefur hann
sinnt fjölbreyttum störfum. Nú er
hann vaktformaður. Hér stendur
hann við brennarann sem glæðir kís-
ilgúrinn við 900°C og er það eitt síð-
asta stigið í vinnsluferlinu.
Þorbergur hefur verið slökkviliðs-
stjóri Mývatnssveitar til margra ára
og gegnt því starfi af röggsemi og
festu. Hvað tekur við í lok ársins
þegar verksmiðjan stöðvast er í
sömu óvissunni hjá Þorbergi eins og
öðrum starfsfélögum hans.
Í Kísiliðjunni í 34 ár
Morgunblaðið/BFH
mikli á Dalvík og margt fleira. Lögregluemb-
ættin munu hafa nána samvinnu vegna þess-
ara atburða og þá verður einnig enn aukin
samvinna varðandi fíkniefnamál en nú þegar
eru til þjálfaðir fíkniefnahundar á svæðinu
sem auðvelda lögreglunni leit að fíkniefnum.
Á fundinum kynnti Ástríður Grímsdóttir,
sýslumaður í Ólafsfirði, lokaverkefni sitt og
fleiri í stjórnunarnámi í Lögregluskólanum,
þar sem fjallað er um umferðarslys á Norður-
landi og þær tillögur höfundanna sem fram
koma í verkefninu til þess að ráðast kerf-
isbundið gegn þessum mikla vanda.
Sauðárkrókur | Lögreglustjórar og yfirmenn
lögreglu á svæðinu frá Hólmavík og til Þórs-
hafnar hittust á Sauðárkróki nýverið. Ákveðið
var að í allt sumar yrði í gangi eftirlit þar sem
lögð yrði sérstök áhersla á einstaka þætti um-
ferðarinnar, þannig að einn daginn tækju öll
embættin á hraðakstri, annan á bílbelt-
anotkun, ökuljósanotkun, ástandi ökumanna,
tengivagna og svo framvegis.
Í sumar verður mikið um að vera á Norður-
landi, svo sem tvö landsmót UMFÍ á Sauð-
árkróki, verslunarmannahelgi á Akureyri,
Síldarævintýri á Siglufirði, Fiskidagurinn
Samræmdar aðgerðir til
að fækka umferðarslysum
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Samvinna: Sýslumenn og yfirmenn lögreglu á Norðurlandi.
LANDIÐ
Selfoss | Nýbygging íþróttahúss
Fjölbrautaskóla Suðurlands nálgast
lokastig, búið er að leggja parket á
salinn og er m.a. unnið að útfærslu á
fyrirkomulagi á færanlegum mörk-
um og körfum. Fræðslunet Suður-
lands flytur í haust starfstöð sína í
viðbótarkennsluhúsnæðið sem áfast
er nýja íþróttahúsinu. Í athugun er
að bjóða nám í meistaraskóla og
e.t.v. í fagbóklegum áföngum húsa-
smíðanáms samkvæmt eldri nám-
skrá í samstarfi við Fræðslunetið og
nýta til þess fjarkennslubúnað í
útibúum þess á Kirkjubæjarklaustri,
Vík, Hvolsvelli og Flúðum.
Fræðslunet Suður-
lands fær aukið rými