Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 23
MINN STAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 23
SJÓMINJASAFNIÐ í Reykjavík
fékk nýlega afhent einstakt líkan af
Kútter Björgvin RE 18, skútu sem
smíðuð var 1885 og keypt til Íslands
1900. Meðal eigenda var Ellert K.
Schram skipstjóri. Það var Ágúst
Schram, barnabarn Ellerts, sem gaf
sjóminjasafninu líkanið, sem er
nokkurs konar þrívítt málverk af
skútunni, auk sjónauka sem var í
eigu Ellerts. Munirnir eru að sögn
Helga M. Sigurðssonar, starfs-
manns Sjóminjasafnsnefndar, afar
verðmæt viðbót í safnið, enda munir
úr reykvískri útgerðarsögu strjálir.
Kútter Björgvin var um níutíu
brúttólestir og á honum var um
tuttugu og fimm til þrjátíumanna
áhöfn. Fyrstu þrjátíu árin var hann
án hjálparmótors, en fékk einn slík-
an í fyrri heimsstyrjöldinni. Skútur
voru í raun millistigið milli árabáta
og togara, en Íslendingar notuðu
þær sem skakskip. Ellert ritaði árið
1936 endurminningar frá skútuöld
þar sem hann sagði m.a.: „Það var
oft gaman þegar fiskur var nógur
að sjá milli 20 og 30 menn standa í
einni röð við borðstokkinn og ham-
ast við að draga og bylta inn fisk-
inum; var þá oft handagangur mik-
ill og væri gaman að geta sýnt það á
kvikmynd.“
Stóð einn við stýrið í stormi
Ágúst segir tíma hafa verið kom-
inn til að koma þessum erfðagrip á
viðeigandi stað. „Þessi mynd var
búin að vera hjá mér í fjörutíu ár, en
Kristján Schram föðurbróðir minn
sagði mér að þegar tíminn væri
kominn myndi þessi mynd eiga
heima á safni. Nú er hún komin á
réttan stað,“ segir Ágúst og bætir
við að fjöldi skemmtilegra sagna sé
til af afa sínum, Ellerti. „Einhvern
tíma, þegar Ellert var úti á sjó á
Kútternum, var afar vont í sjóinn.
Ellert vildi ekki missa neinn mann í
sjóinn, þannig að hann skipaði öll-
um undir þil og læsti þá niðri. Síðan
stóð hann einn við stýrið í tuttugu
og fjóra til þrjátíu tíma og sigldi
skipinu heim. Hann sagði að ef skip-
ið sykki, þá færu þeir allir hvort eð
er, en hann vildi ekki missa einn
mann útbyrðis. Svo var hann líka
gríðarlega handsterkur og þegar
ég heimsótti hann níræðan, lék
hann sér alltaf að því að kreista á
mér höndina og ég hafði ekkert í
hann, stálpaður pilturinn. Svo
reykti hann pípu alla tíð, en notaði
aldrei píputóbak, heldur skar hann
niður dýra vindla og notaði í píp-
una.“
Ómetanlegir munir brenndir
Helgi segir stöðu minjamála á
sviði útgerðar og siglinga ekki nógu
góða. „Það er búið að fleygja svo
mörgum áhugaverðum hlutum,“
segir Helgi. „Því er sérlega brýnt að
munir í eigu einstaklinga skili sér til
okkar.“ Undir þetta tekur Agnar
Jónsson, skipasmiður og samstarfs-
maður Helga, en hann starfaði lengi
við viðgerðir á skipum. „Það var
mjög sorglegt að sjá öll þau skip
sem voru einfaldlega brennd með
öllu í,“ segir Agnar og bætir við að
sumir munirnir hafi verið ómet-
anlegir. „Sagan hefur verið þurrk-
uð út að miklu leyti.“ Agnar tekur
sem dæmi skip sem hann man eftir
að hafa skoðað. Þar mátti sjá sögu
smíða skipsins í myndum niðri í lúk-
ar og var meðal annars mynd af
miklum fögnuði niðri við höfnina
þar sem lúðrasveitir blésu og fólk
gladdist yfir smíði skipsins. „Þetta
eru ómetanleg verðmæti sem glöt-
uðust þegar þetta skip var brennt
og þessi saga er nú horfin og enginn
fær að sjá þetta.“
Um leið og Helgi og Agnar þakka
Ágústi kærlega fyrir framlagið vilja
þeir koma því á framfæri við fólk að
minjar um sjómennsku og útgerð í
Reykjavík séu á mörgum sviðum af
afar skornum skammti og mikið
vanti upp á að heilsteypt mynd fáist
af útgerðarsögu. Því sé mikilvægt
að þeir sem búa yfir minjum fargi
þeim ekki, heldur komi þeim til
minjavarða.
Sjóminjasafninu afhent
líkan af Kútter Björgvin RE 18
Mikilvægt að mun-
ir skili sér til safna
Morgunblaðið/Jim Smart
Ágúst Schram, Helgi M. Sigurðsson og Agnar Jónsson með líkanið og sjónauka Ellerts K. Schram.
Ræktaðu garðinn þinn
Stóra garðabókin er langstærsta verk sem komið
hefur út hérlendis um garðyrkju. Á meistaralegan
hátt sameinar hún fræðilega nákvæmni og einfalda
framsetningu efnisins. Bókin hentar því vel fólki sem
langar að spreyta sig á garðrækt í fyrsta sinn, en
jafnframt er hún mikil fróðleiksnáma fyrir alla þá
sem búa að langri reynslu í garðyrkju.
Þessi alfræði garðeigandans hefur verið ófáanleg um
skeið en er nú aftur komin í verslanir og býðst öllum
sem vilja rækta garðinn sinn á ótrúlegu verði.
Athugið að upplagið er takmarkað.
• Allt um skipulagningu garða
• Skýr og góð ráð um ræktun og umhirðu allra helstu
plantna
• Hvenær og hvernig á að klippa runna og tré?
• Vinnubrögðum lýst í smáatriðum með
skýringarmyndum
• Leiðbeiningar um ræktun í garðskálum og sólstofum
Í Stóru garðabókinni er fjallað um ræktun og
umhirðu allra plantna: tré, runna, rósir, fjölæringa,
sumarblóm, lauka, steinhæðaplöntur og margt fleira.
Áreiðanlegar og handhægar upplýsingar sem leiðbeina
öllum gróðurunnendum við garðyrkjustörfin.
Takmarkað
upplag!
540 blaðsíður
3000 litmyndir
300 teikningar
Loksins
fáanleg aftur!
Ótrúlegt
tilboðsverð
kr. 4.990
Upphaflegt verð
kr. 9.990