Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 25
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 25 H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A Er vin nin gu r í l ok inu ? fiú sér› strax hvort fla› leynist óvæntur gla›ningur í Engjaflykkninu flínu! Er vinningur í lokinu? Tveir ferðavinningar fyrir fjóra; Flug, bíll og gisting í Billund og tveggja daga aðgangur í Legoland • Samsung myndavélasímar • Gjafabréf í Kringluna 26” reiðhjól og margt, margt fleira. www.ms.is æsibæ Sími 562 5110 Opið virka daga 10-18 laugardaga 10-16 Einstakt tækifæri til að versla dragtir og kjóla fyrir brúðkaup og önnur tækifæri! Mikil verðlækkun! Dragtir og kjólar frá 7900 Xylitol er notað í stað sykurs. fyrir þá sem hugsa um heilsuna Fæst í heilsubúðum www.xylitol.is Hollt Í bakstur og matargerð Verndar tennur Verndar gegn beinþynningu Xylitol Kirkjulundi 17 (v/Vífilsstaðaveg), 210 Garðabæ Sími: 898 4699 • www.simnet.is/gardhusgogn OPIÐ: mán.-fös. 13:00-18:00 og lau: 11:00-16:00 Úrval vandaðra garðhúsgagna Borð 1m * 1,60 úr áli og tekki. Fjórir stólar úr áli, tekki og plasti sem stenst íslenska veðráttu. Tilboð kr. 69.000 stgr. 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s  KAUPMANNAHÖFN| Ólívuolía, suðrænt krydd og gjafavörur                 Oliviers & Co. Store Regnegade 2 - 1110 Kbh K Sími: 45-33-13-03-33 www.oliviers-co.co.uk Oliviers & Co.: Stendur við Store Regne- gade í miðborg Kaupmannahafnar. SÉRVERSLUNIN Oliviers & Co hefur opnað sína fyrstu verslun á Norðurlöndum við Store Regnegade 2, í Kaupmannahöfn. Þar er boðið upp á kaldpressaða matarolíu frá Frakklandi, Ítalíu og Spáni en fyrirtækið er nú með 62 verslanir í 11 löndum austan hafs og vestan. Boðið er upp yfir þrjátíu teg- undir af ólívuolíu, sem henta með salati, fiski og ýmsum kjötréttum. Verslunin selur einn- ig ýmsar tegundir af „tapenade“ eða ólívu- og tómatmauki, sinnepi og suðrænum kryddblöndum fyrir utan mismunandi teg- undir af ediki, balsamik-, sherry-, fíkju- og valhnetuedik. Ýmis önnur gjafavara er á boðstólum svo sem sérlega mild handsápa úr ólívuolíu, skálar undir sal- at, innkaupakörfur og flöskur og glös fyrir ólívuolíu og edik. Fyrir þá sem ekki eiga leið um Kaup- mannahöfn er bent á vefsíðuna en þar er að finna upplýsingar um póstverslun Oliviers & Co. Góðgæti frá Miðjarðarhafi Í GÖMLUM ævintýr- um er okkur gjarnan kennt að varast hégóma, yf- irborðsmennsku og annað hjóm á lífsgöngunni. Til dæmis þykir fáum til eftirbreytni sú hegðun stjúpsystra Öskubusku að höggva af sér tá og hæl til að reyna að passa í skóinn hennar þegar prinsinn leitaði rétta eigandans. En samkvæmt netmiðli Evening Standard virðist mannskepnan seint læra af mistökum ann- arra, jafnvel þeirra sem birtast í fornum ævintýr- um, því nú á ofanverðri tuttugustu og fyrstu öld gerast sérstakar fótaaðgerðir mjög svo vinsælar í henni Ameríku. Aðgerðirnar eru framkvæmdar í þeim tilgangi ein- um að betur passi tískuskórnir. Láta konur þann- ig ýmist stytta á sér tærnar, sverfa af fótbeinum og fleira í þeim dúr, til þess að komast í tá- mjóa skó eða aðra sem þannig eru í laginu að breyta þarf sköpulagi fóta svo þeir fari vel á fæti. Þrælar tískunnar Þannig fékk fótsnyrtir nokkur í New York til sín viðskiptavin sem vildi láta fjarlægja tá af fæti til að passa betur í skó hins þekkta Manolo Blahnik og þá lét kona í Kaliforníu taka af sér tánegl- urnar og húðflúra í staðinn fag- urbleikar neglur. Iona nokkur Frank segir kinnroðalaust frá því að hún hafi látið stytta á sér tærnar: „Ég eyði þúsundum doll- ara á ári í skó en ég skammaðist mín alltaf fyrir ólögulegar tærn- ar. Skurðaðgerðin var vissulega óþægileg en ég er hæstánægð með árangurinn.“ Læknar fordæma harðlega Að láta stytta á sér tá er aðgerð sem felur í sér að skorið er inn að tábeini, skorið á sinar, miðjuliður táar fjarlægður og liðamótin fest saman að nýju. Herlegheitin kosta allt frá 270.000 krónum til 400.000 króna. En áhættan er mikil: Sýking- arhætta, taugaskaði og margra mánaða endurhæfing ef aðgerðin tekst ekki eins og til er ætlast. En þrátt fyrir að fóta- og ökkla- skurðlæknar í Ameríku hafi op- inberlega fordæmt slíkar „fót- snyrti–aðgerðir“ halda þúsundir kvenna áfram að láta stytta á sér tærnar eða meðhöndla fætur sína á annan máta til að geta tiplað um í támjóum og hælaháum skóm. Morgunblaðið/Kristinn khk@mbl.is Allt fyrir útlitið?  HEILSA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.