Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 35 ✝ Guðrún SigríðurSigurðardóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 28. apríl 1925. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Garðvangi í Garði 18. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðbjörg Brynjólfs- dóttir húsmóðir, f. 22.10. 1897, d. 8.1. 1980, og Sigurður Sigurðsson vélstjóri, f. 13.6. 1895, d. 21.2. 1984. Þau bjuggu á Austurgötu 19 í Keflavík. Systk- ini Guðrúnar eru: Ólöf Lilja Sig- urðardóttir, f. 14.7. 1921; Mar- teinn Brynjólfur Sigurðsson, f. 24.7. 1923; María Sigurðardóttir, f. 14.9. 1926, d 2.2. 1927; Friðrik Hafsteinn Sigurðsson; f. 27.4. 1929, d. 25.6. 1993; Gunnlaugur Kjartan Sigurðsson, f. 15.3. 1931. Hálfsystir samfeðra: Ósk Sigur- rós Sigurðardóttir, f. 2.2. 1920, d. 1955. Þau eiga þrjú börn. Barna- börnin eru 13 og barnabarna- börnin 24. Guðrún fæddist í húsinu Árbæ við Brekastíg í Vestmannaeyjum en flutti með foreldrum sínum til Keflavíkur um eins árs aldur. Um tíu ára aldur flutti hún ásamt for- eldrum sínum að Glóru í Hraun- gerðishreppi og var þar fram að fermingu að þau fara aftur til Keflavíkur og hefur búið þar og í Njarðvíkum síðan. Guðrún stund- aði fiskvinnu þar til hún giftist Jóni og þau stofnuðu heimili. Þá varð hún heimavinnandi húsmóð- ir þangað til börnin uxu úr grasi. Þá fór hún aftur út á vinnumark- aðinn, fór í fiskvinnu og vann síð- an sem skúringakona í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja þar til hún tók við sem matráðskona hjá kennurum í fjölbrautaskólanum þangað til heilsan fór að gefa sig árið 1988. Dúra var mjög mikið í fé- lagslífi. Hún var í Kvenfélaginu í Njarðvík, Slysavarnafélaginu í Keflavík, St. Georgsgildinu og Vestmannaeyingafélaginu á Suð- urnesjum svo fátt eitt sé nefnt. Útför Guðrúnar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 5.8. 1978. Eftirlifandi eigin- maður Sigríðar er Jón Arason Valdi- marsson, f. 5. febrúar 1922. Börn: 1) Bjarni Valtýsson, f. 25.6. 1943, maki Esther Ólafsdóttir, f. 10.5. 1945, d. 23.9. 1994, þau áttu tvö börn og Esther átti eina dótt- ur fyrir. Núverandi sambýliskona Bjarna er Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, f. 12.8. 1944. 2) Helgi Valdimar Jónsson, f. 1.3. 1946, d. 13.6. 1968, maki Dröfn Péturs- dóttir, f. 1.9. 1946. Þau eiga tvö börn. 3) Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 9.8. 1950, maki Viðar Már Pét- ursson, f. 11.1. 1944. Þau eiga þrjú börn, 4) Ásdís Jónsdóttir, f. 26.3. 1955, fráskilin, á tvö börn, seinni maki Donald Schults. 5) Guðbjörg Jónsdóttir, f. 9.3. 1958, maki Þórður Ragnarsson, f. 22.1. Mágkona mín, Guðrún Sigurðar- dóttir (Dúra), lést föstudaginn 18. júní eftir löng og erfið veikindi 79 ára gömul. Við Alli fórum í heimsókn til Dúru á síðasta afmælisdag hennar 28. apríl sl. en þá var hún ósköp las- in og veikburða. Erum við fegin að hafa farið í þessa heimsókn því ekki vissum við að það yrði í síðasta skipti sem við hittum hana. Dúra giftist Jóni bróður mínum 1. júní 1946 og áttu þau því 58 ára brúðkaupsafmæli á þessu ári. Eru því tengdir og vinskapur okkar Dúru búinn að vara í tæp 60 ár. Okkur Dúru kom alltaf mjög vel saman en Dúra sagði oft að ég væri búin að „rífa kjaft“ við sig frá því ég var 15 ára. Ég svaraði henni þá að hún hefði reynt að „kála mér“ þegar þau Jón voru í Smáratúninu. Þá var hlegið að öllu saman enda góðlátlegt grín okkar á milli. Heimili Jóns og Dúru var eins og mitt annað heimili á unglingsárun- um. Ég byrjaði snemma að skreppa á Austurgötuna og vera hjá Bjarna og Helga heitnum svo þau gætu t.d. skroppið í bíó. Í minningunni finnst mér ég hafa verið hjá þeim í tíma og ótíma og alltaf var sama elsku- lega viðmótið og aldrei fann ég að ég væri óvelkomin, þetta var bara svona og hefur alltaf verið. Við Alli söknum Dúru en hugg- um okkur við að nú líði henni vel, hún sé laus við veikindi og þján- ingu. Við Alli sendum Jóni bróður, börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Kolbrún Valdimarsdóttir. Þar kom að því, þú ert búin að kveðja. Eins og ég sakna þín mikið og vil fá þig aftur samgleðst ég þér að vera komin á betri stað. Á stað þar sem ekkert hrjáir þig, þar sem þú kemst í heimsókn til allra ætt- ingjanna þegar þú vilt, jafnvel þótt þeir séu á fjórðu hæð í lyftulausri blokk, og þar sem þú getur borðað sætabrauð án þess að vera skömm- uð. Allir vinir mínir og kunningjar sem hafa hitt ykkur afa hafa sagt hversu þeir öfundi mig af ykkur, svona eiga afi og amma að vera í út- liti og anda. Þið voruð bæði roskin þegar ég kom í heiminn og kannast ekki við ykkur öðruvísi en grá- hærð. Þú hafðir alltaf fallegt hár og fannst gaman að segja mér söguna af því þegar kona spurði þig á förn- um vegi hvar þú hefðir fengið svona fínar strípur í hárið og átti þá við gráa lokka sitt hvorum meg- in á höfðinu. Að bragði svaraðir þú að þær væru fengnar hjá Guði. Það er ótrúlegt hversu mikið þú hefur hrist af þér og hversu lífsglöð þú hefur verið þrátt fyrir veikindin. Mér fannst voðalega gott að koma í heimsókn, spjalla við matarborðið, jafnvel fá eitthvað í gogginn og svo þegar ég fór að faðma ykkur bless. Ég man eins og ég væri nýfarinn þegar við föðmuðumst seinast, ég held við höfum bæði vitað að þetta væri síðasta knúsið. Nú lifi ég með þær góðu minningar sem lífið hefur séð okkur fyrir og man þig lífsglaða með nýlagað hárið og fallega brosið sem kætti alla, og veit að þú vakir yfir okkur öllum. Ég sakna þín meira en orð fá lýst en jafnframt vil ég óska þér góðrar ferðar hvert sem henni er heitið. Saknaðar- kveðjur. Ragnar Þórðarson. Elsku Dúra mín, með nokkrum orðum langar okkur að þakka þér fyrir hvað þú hefur alltaf reynst okkur og öllum börnunum okkar vel. Alltaf hafa amma og afi í Kefla- vík skipað sérstakan sess í okkar fjölskyldu. Amma og afi í Keflavík voru dugleg að heimsækja okkur þegar við bjuggum fyrir norðan, og alltaf var geysimikil tilhlökkun að fá ykkur í heimsókn. Það voru nokkuð sérstök fjölskyldubönd sem bundu okkur saman, en þau voru traust og innileg. Við fundum öll sem þekktum þig að þú varst orðin þreytt. Þín vegna fannst okkur gott að þú fékkst hvíldina, en við hugs- um um Jón afa sem nú hefur ekki Dúru sína lengur hjá sér nema í huganum. Við sendum honum sam- úðarkveðjur og hlýjar hugsanir. Dröfn og Páll. Elsku amma Dúra, það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til ykkar afa. Þið afi pössuðuð okkur systurnar alltaf þegar pabbi og mamma fóru til útlanda. Það var svo gaman að hlusta á allar plöt- urnar og fá að hjálpa til í eldhúsinu. Svo núna seinni árin þegar mað- ur kom í heimsókn með barna- barnabörnin vildir þú alltaf fá þau í fangið á þér til að kyssa þau og knúsa, sama á hvaða aldri lang- ömmubörnin voru. Takk fyrir alla hjálpina með Steinunni Maríu, ég hefði ekki get- að komist í gegnum þennan tíma án ykkar hjálpar. Elsku hjartans amma, megi Guð geyma þig og varðveita. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þeirri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Jón afi, pabbi, Silla, Ásdís og Guðbjörg, megi Guð styrkja ykkur og okkur öll í sorginni. Þín ömmubörn Guðrún og Karen. Elsku amma, við eigum margar góðar og skemmtilegar minningar um þig og þann tíma sem við áttum með þér og afa. Minningar sem gott er að eiga þegar hugurinn leit- ar til þín. Fjarlægð og sérstök fjöl- skyldutengsl hafa gert böndin sterkari og okkur ríkari. Takk fyrir allt, elsku amma, allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Pétur, Helga, Pála og Margrét. GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR ✝ AðalsteinnHjálmarsson fæddist í Reykjavík 7. nóvember 1930. Hann lést fimmtu- daginn 17. júní á Gjörgæsluldeild Landspítala. Foreldr- ar hans voru hjónin Kristín Ingmarsdótt- ir, ættuð úr Eyjafirði, f. 26. ágúst 1895, d. 3. september 1984, og Hjálmar Þórður Jóns- son frá Stokkseyri, f. 26. mars 1905, d. 2. september 1977. Systkini Aðalsteins eru: Ingimar, lést í frumbersku. Anna, f. 2. júní 1927, d. 11. október 2002, og Guð- björg Jóna, f. 23. nóvember 1939. Hinn 2. október 1951 kvæntist Aðalsteinn eftirlifandi eiginkonu sinni Margréti Sigríði Árnadóttur og varð þeim fjögurra barna auð- ið. Þau eru: 1) Árni, f. 20. júní 1951, varð bráðkvaddur 22 sept- ember 1997, hann var þrígiftur. Börn hans eru: Anna Margrét, Ágúst Páll, Almar, Árný, Aron, Margrét Sigríður og Benjamín. 2) Hjálmar Kristinn, f. 4. september 1954, kvæntur Margréti Björns- dóttur. Börn þeirra eru: Aðal- steinn og Kristín Ásta. 3) Ásta, f. 28. apríl 1962, gift Aðal- steini Guðmunds- syni. Börn þeirra eru: Guðmundur, Berglind og Alfreð. 4) Ólafur, f. 22. októ- ber 1963. Börn hans eru: Olga Helena og Kristín Helga. Aðalsteinn ólst upp í foreldrahúsum í Austurbæ Reykja- víkur. Að loknu grunnnámi stundaði hann verklegt nám í Ræsi og útskrifaðist með ágætis- einkunn sem bifvélavirki úr Iðn- skólanum í Reykjavík árið 1950. Aðalsteinn hóf störf hjá Scania í kringum 1960 og starfaði hann hjá þeim í átta ár og aflaði hann sér þekkingar á sínu sviði erlendis á vegum fyrirtækisins. Árið 1968 hóf hann störf hjá Vökli og starf- aði þar sem verkstjóri á bílaverk- stæði. Á árinu 1987 hóf hann störf hjá Jöfri hf. í Kópavoginum og starfaði hann jafnt á verkstæði sem og á skrifstofu við ýmis störf. Útför Aðalsteins verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Aðalsteinn Hjálmarsson féll í valinn eftir langvinn og erfið veik- indi á gjörgæsludeild Landspítal- ans. Dánarbeðurinn var baðaður hlýrri sól þjóðhátíðardagsins sem gluggatjöld sjúkrastofunnar megn- uðu ekki að varpa skugga á. Sú birta og hlýja sem umlykja spor þessa mæta manns munu að lokum þerra tár á vöngum þeirra sem syrgja hann svo sárt. Að loknu lífshlaupi Alla eins og hann var oft kallaður er margs að minnast og þakka fyrir. Hann var maður góðra verka og því tómarúmi sem fráfall hans skilur eftir sig verður ekki lýst með orðum. Ég kynntist tengdaföður mínum og nafna fyrir rúmum 20 árum. Alli var prúðmenni mikið sem lét ekki bugast. Hann lifði með og að- lagaði líferni sitt einkennum og af- leiðingum alvarlegs sjúkdóms í tæpan aldarfjórðung með slíku jafnaðargeði, yfirvegun og skyn- semi að aðdáunarvert verður að teljast. Þessi hæfileiki var vafalítið endurspeglun á góðri greind, sam- viskusemi og þeirri vandvirkni sem einkenndu öll hans störf. Alli starfaði lengst af sem bif- vélavirki og var bæði virtur og við- urkenndur á því sviði. Hjálpsemi var honum í blóð borin og nutu margir afraksturs handlagni hans sem átti sér fá takmörk. Að eðlisfari var Alli hæglátur maður, nokkuð dulur en tilfinn- inganæmur undir niðri. Fólki leið vel í návist hans. Hann fylgdist með afkomendum sínum af miklum áhuga. Hann hafði tíma aflögu sem hann var óspar á að veita barnabörnum sín- um. Rósemi, natni og eðlislæg hlýja í orði og verki einkenndu samskipti hans við börnin. Þótt ásýnd hans sé nú horfin börnunum í daglegu lífi lifa áfram ljúfar minningar um einstakan afa. Að leiðarlokum eru margir sem hugsa hlýtt til Alla. Ég þakka samfylgdina, hans góðu fordæmi og kveð hann með djúpum sökn- uði. Blessuð sé minning Aðalsteins Hjálmarssonar. Aðalsteinn Guðmundsson. Fögur er foldin, heiður er Guðs himinn, indæl pílagríms ævigöng. Fram, fram um víða veröld og gistum í Paradís með sigursöng. Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng. Fjárhirðum fluttu fyrst þann söng Guðs englar, unaðssöng, er aldrei þver: Friður á foldu, fagna þú, maður, frelsari heimsins fæddur er. (Matthías Joch.) Við vottum ömmu, Hjalla, Ástu og Óla okkar dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Anna Margrét og Almar. AÐALSTEINN HJÁLMARSSON Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, EINAR EIRÍKSSON bóndi, Miklholtshelli, Hraungerðishreppi, verður jarðsunginn frá Hraungerðiskirkju föstu- daginn 25. júní kl. 14:00. Guðrún Guðmundsdóttir, Jónína Einarsdóttir, Gísli Hauksson, Eiríkur Einarsson, Eva Einarsson, Guðmundur Einarsson, Már Einarsson, Ingibjörg Ágústsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Sigurður Þ. Ástráðsson, Gunnar Einarsson, Christine Devolder, Bjarni Einarsson, Kolbrún I. Hoffritz, Bjarni Eiríksson og afabörn. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Víkingi Víkingar kveðja í dag góðan félaga sem í fjölda ára var ötull stuðningsmaður félagsins. Vilberg keppti á yngri árum í knattspyrnu og handknattleik við góðan orðstír. Hann tók síðan mjög VILBERG SKARPHÉÐINSSON ✝ Vilberg Skarp-héðinsson fædd- ist í Reykjavík 11. desember 1921. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi í Fossvogi 8. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 18. júní. virkan þátt í öðru fé- lagsstarfi. Vilberg var í fjölmörg ár kjörinn til trúnaðarstarfa innan félagsins, í aðalstjórn, í stjórn fulltrúaráðs og til formennsku í stjórn knattspyrnudeildar. Fyrir farsælt fram- lag sitt var Vilberg sæmdur heiðursmerkj- um Víkings, síðast gullmerki með lárvið- arsveig á 75 ára af- mæli félagsins árið 1983. Víkingar þakka Vil- berg samfylgdina og kveðja góðan félaga með virðingu og söknuði og senda fjölskyldu hans hugheilar samúðarkveðjur. Þór Símon Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.