Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 36

Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 36
MINNINGAR 36 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ RagnheiðurKristín Björns- dóttir fæddist í Hafnarfirði 13. jan- úar 1920. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi 17. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Björn Maríus Hansson og Sigurborg Magnús- dóttir. Ragnheiður átti átta systkini og eina hálfsystur. Systkini hennar eru: Jón Lúðvík Rósin- krans Björnsson, f. 27. júní 1917, d. 3. apríl 1947, Sigurður Rósinkrans Björnsson, 1941. Árið 1940 giftist Ragnheið- ur Þorkeli Ágústi Guðbjartssyni, f. 7. okt. 1915, d. 9. okt. 1981. Þau voru barnlaus en ættleiddu Huldu Björgu Lúðvíksdóttur og Sveinbjörn Kristin Þorkelsson og tóku jafnframt tvær dætur Huldu í fóstur, þær Ragnheiði Kristínu Björnsdóttur og Þjóðbjörgu Hjarðar Jónsdóttur. Hulda Björg er fædd 8. júlí 1945, en sambýlis- maður hennar er Brynjar Röine. Hún á sjö börn og átján barna- börn. Sveinbjörn Kristinn er fæddur 1. maí 1952 og sambýlis- kona hans er Erna Hannesdóttir. Ragnheiður Kristín er fædd 4. ágúst 1964. Hún er gift Elís Kjartanssyni og eiga þau þrjú börn. Þjóðbjörg Hjarðar er fædd 4. júlí 1965. Sambýlismaður hennar er Sigurþór Heimir Sig- marsson en hún á þrjú börn og þar af eitt með sambýlismanni sínum. Útför Ragnheiðar verður gerð frá Kotstrandarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. f. 7. okt. 1918, d. 21. febr. 1965, Halldór Sölvi Björnsson, f. 6. mars 1922, Svavar Hafsteinn Björnsson, f. 6. ágúst 1923, d. 21. júlí 1981, Jón Böðvar Björnsson, f. 10. sept. 1924, d. 15. jan. 1971, Unnur Kristín Björnsdóttir, f. 7. ágúst 1926, Sól- veig María Björns- dóttir, f. 9. des. 1927, og Aðalbjörn Þorgeir Björnsson, f. 6. nóv. 1931, d. 22. des. 2000. Hálfsystir hennar er Elsa Jó- hanna Gísladóttir, f. 24. jan. Ragnheiður var fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún stundaði nám í Kaþ- ólska skólanum og Flensborg og vann á fiskireitum, eins og margir ungling- ar gerðu á þessum árum. Hún var heilsulítil sem barn og oft síðar á lífs- leiðinni. Sem elsta dóttir axlaði hún snemma ábyrgð við skilnað foreldra sinna. Á unglingsárum flutti hún með móður sinni og systkinum til Reykja- víkur. Þar vann hún við veitingastörf fram til 1940, er hún giftist Þorkeli Ágústi Guðbjartssyni frá Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Ragnheiður og Þorkell bjuggu fyrstu ár sín í Reykjavík en fluttu svo vestur að Hjarðarfelli árið 1951, reistu sér nýbýli og bjuggu þar fram til ársins1962. Ragnheiður tók virkan þátt í kvenfélags- og kirkjukórsstarfi sveitarinnar. Hún hafði snemma aflað sér þekkingar á fatasaumi og hélt námskeið í saumaskap. Hún hýsti far- skóla í nokkra vetur á Hjarðarfelli og einnig vann hún við eldhús og veit- ingastörf á nokkrum hótelum og greiðastöðum, þegar hún fylgdi Þor- keli vegna atvinnu hans víða um land- ið. Árið 1962 fluttu þau til Hvera- gerðis. Þorkell var forstöðumaður Ullarþvottastöðvar SÍS í Hveragerði til margra ára og vann Ragnheiður ýmis störf þar. Einnig vann Ragn- heiður í iðnfyrirtæki þeirra hjóna ásamt því að eiga og reka vefnaðar- vöruverslun í nokkur ár. Á þessum árum var Ragnheiður virk í kirkju- kóra- og kvenfélagsstarfi Hvera- gerðis. Ragnheiður varð ekkja árið 1981 og flutti ári síðar í Kópavog. Á næstu árum vann hún í mötuneyti hjá SÍS og við fatabreytingar í Herra- ríkinu í Reykjavík, þrátt fyrir að vera öryrki til margra ára. Árið 1996 flutti Ragnheiður á Selfoss og þaðan í hús Blindrafélagsins við Hamrahlíð í Reykjavík árið 2000. Þar veiktist Ragnheiður alvarlega og flutti þá á hjúkrunarheimilið Víðines árið 2002, þar sem hún dvaldi til dánardags. Í lyndiseinkunn á Ragnheiður margt sameiginlegt með fornum köppum Íslendingasagnanna. Hún var ákveðin og jafnvel stíf og bein- skeytt á köflum en samt oftast sáttfús þegar á reyndi. Hún var ávallt glæsi- lega til fara og bar sig tignarlega. Ragnheiður var mikill húmoristi og vinur vina sinna þegar á reyndi. Hús hennar var ávallt opið fyrir ættingj- um og vinum og bjuggu því margir á heimili hennar í lengri eða skemmri tíma. Ragnheiður hafði mikla unun af tónlist og var tónlistarsmekkur henn- ar breiður, allt frá dægurlögum til klassískrar tónlistar. Hún var jafn- framt virk í kórastarfi og hafði fallega söngrödd. Þá hafði hún einnig áhuga á stökum, bóklestri og spilum. Ragnheiður var kristin. Hún efað- ist um margt í kristindómnum fram- an af, en trú hennar styrktist á síð- ustu árum. Hún var þó aldrei mikið gefin fyrir flókna kristsfræði og að- hylltist fremur einfaldan kristindóm með Gamla testamentis áherslum. Ragnheiður var glæsileg kona og verður hennar ávallt minnst af þeim sem þekktu hana fyrir ákveðni, sjálf- stæði, kímnigáfu, frásagnargleði og hjálpsemi. Guð varðveiti sálu hennar. Þorkell Ágúst Óttarsson. Elsku mamma mín, á þjóðhátíðar- daginn kvaddir þú. Þennan sama morgun vaknaði sú þörf hjá mér að fara í kirkju, enda ærin ástæða, en ég vissi það ekki þá. Þennan sama dag kom Unnur systir þín uppá land, m.a- .til að heimsækja þig. Ég gladdist yfir þessum fréttum því þið Unnur höfðuð ekki sést í einhver ár. Á leið minni til vinnu stoppaði ég við Litlu kaffistof- una og sló á þráðinn upp í Víðines til að frétta hvernig þú hefðir það. Svar- ið var að að þú hefðir það mun betra en í gær, sem sagt ekki eins slæm af bakverknum sem hafði komið skyndi- lega tveimur dögum áður. Þú hefðir komið fram og borðað og værir nú að leggja þig, ég bað um að þú yrðir vak- in og gerð sæt og fín þar sem þú ættir von á gestum. Ég bað fyrir kveðju til þín, mamma mín, með þeim skila- boðum að ég myndi koma til þín dag- inn eftir. Það liðu varla nema fimm mínútur frá því að ég lagði á að hringt var frá Víðinesi og mér tilkynnt að þú hefðir verið að skilja við. Mamma mín, þetta var mér áfall í ljósi þess að um fimm mínútum áður vissi ég ekki betur en að þér liði vel og allt væri í lagi. Ég er mjög þákklát fyrir þá góðu stund sem við áttum saman tveimur vikum áður þegar við fórum á kaffi- hús, völdum á þig varalit og krem og keyptum ramma utanum fermingar- barnamyndina sem þér hafði borist af fermingarbarnamótinu sem þið Sveinbjörn höfðuð nýlega verið á í Hafnarfirði. Mamma mín, ég minnist góðu stundanna sem við höfum átt saman og þakka þér fyrir þær. Ég hef lært svo margt af þér, mamma mín, og öll okkar samskipti hafa á endanum styrkt mig og lagt grunninn að þeirri manneskju sem ég er. Með þér er gengin sérstök kona. Kona sem alltof snemma bar ábyrgð, sem gekk móður minni, mér, Björgu og Sveinbirni í móður stað. Kona sem var skörp, dugleg, hafði góðan húmor, eldaði besta mat í heimi, kona sem hafði skoðanir á öllum hlutum og margt margt fl. Þú átt þér stað í hjarta mínu. Hvíl þú í friði, elsku mamma mín, hjartans þakkir fyrir allt. Þín Ragnheiður Kristín. Móðir mín er látin. Ég vil með þessum kveðjuorðum þakka þér, mamma mín, fyrir samfylgdina. Þú tókst mig upp á arma þína þegar ég var lítill og umkomulaus, fæddur af annarri konu sem ekki gat vegna að- stæðna alið önn fyrir mér. Þú gafst mér það sem mest er um vert í veröld- inni, móðurást. RAGNHEIÐUR KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR Það var einn fagran haustdag árið 1951 að í Steinahlíð mættu átta ungar stúlkur til að setjast á skólabekk í Uppeldisskóla Sumargjafar. Þetta var sjötti hópur leikskóla- nema og hafði skólinn þá aðsetur sitt í þröngum húsakynnum Steina- hlíðar. Skólastjóri var Valborg Sig- urðardóttir en í forstöðu leikskól- ans var Ida Ingólfsdóttir. Það er ekki ofsögum sagt að við minnumst oft hve heppnar við vorum að setj- ast að fræðiborði Valborgar og matarborði Idu en morgunverðar og hádegisverðar nutum við með mikilli ánægju. Við nemarnir skipt- umst á að vera í verknámi hjá Idu eftir að bóknámi lauk sem var fyrri hluta dags. Þarna hófust mín kynni af Idu sem haldist hafa óslitið æ síðan. Ida hafði hlotið menntun sína í Svíþjóð og var ein af fyrstu fóstrunum í stéttinni. Að horfa á Idu í barnahópnum var ákaflega lærdómsríkt og sjá hvernig hún gaf sig alla í starfið með börnunum. Ósjaldan var ein- hver á höndum eða í pilsfaldinum. Það var pláss fyrir alla. Eftir vetr- arnámið sundraðist nemahópurinn og var haldið í verklegt nám á hin- um ýmsu leikskólum. Ég fór ekki langt, varð sumarnemi hjá Idu. Í Steinahlíð var heimili hennar svo ekki var langt að fara í vinnuna. Þetta vissu foreldrarnir og stund- um var ekkert verið að flýta sér að ná í börnin. Aldrei var gert veður út af því og ef nauðsyn var á umsjá yfir nótt hljóp Ida í skarðið. Mörg voru þau börn sem fengu sitt upp- eldi hjá henni og var ekki gerður IDA INGÓLFSDÓTTIR ✝ Ida Ingólfsdóttirfæddist á Innra- Hólmi í Innri-Akra- neshreppi 15. desem- ber 1912. Hún lést á Droplaugarstöðum hinn 3. júní síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ 14. júní. greinarmunur á hvernig aðstæður voru hjá foreldrum. Markmið Idu var að koma öllum til ein- hvers þroska, sýna ástúð og fræða. Til að gera börnunum daga- mun voru ýmsar uppá- komur og ekki taldi Ida eftir sér að greiða kostnað úr eigin vasa. Nematíminn í verk- náminu var fljótur að líða og ekki var verra að upplifa sumarið í umhverfinu. Elliðaár- vogurinn ósnortinn og gróður þar sem var hægt að fela sig, hlaupa og stökkva út um tún og móa. Allt í einu var þessum áfanga lokið og annar leikskóli tekinn við nemanum. Eftir tveggja ára skóla- göngu var komið að útskrift og gott var þá að taka við skírteininu í Steinahlíð. Ida átti sinn þátt í að gera stundina hátíðlega. Ómetan- legt var að hafa fengið að stíga fyrstu sporin á leikskólakennara- brautinni hjá Idu og kynni okkar voru orðin það sterk að þarna urðu ekki slitin bönd. Þó að lengra væri oft á milli en áður hélst samband okkar og Ida varð vinur fjölskyld- unnar. Utan vinnutíma kunni hún að njóta lífsins, hvort sem var að ferðast eða gleðjast með glöðum. Heimsóknir og vinafundir voru tíð- ir og alltaf minnast börnin mín þess þegar Ida bauð til veislu. Það var ekki í kot vísað að njóta þess sem á borð var borið og geta leikið sér með dótið. Minningarnar hrannast upp og ekki er hægt að lýsa í fáum orðum hve mikilvægt það var mér að fá að vera samferðamaður Idu, fylgjast með hennar starfsferli, fylgja henni í íbúðina á Austurbrún og geta átt með henni góðar stundir í heimsóknum á Droplaugarstöðum. Það var gaman að gleðjast með henni á níutíu ára afmælinu og alla vináttu Idu vil ég þakka. Hér er gengin merkiskona sem leitt hefur marga höndina og veitt stuðning. Minning hennar mun lifa. Margrét G. Schram. Fjölmargir Reykvíkingar eiga góðar minningar um fóstruna frá- bæru, hana Idu í Steinahlíð og gildir það jafnt um börnin, sem hjá henni dvöldu og foreldra þeirra. Hún var forstöðukona og fóstra í Steinahlíð í 33 ár, og farsælt starf hennar grundvallaðist á góðri menntun og og persónutöfrum. Þegar Ida var tuttugu og tveggja ára lá leið hennar til Sví- þjóðar, og þegar þangað var komið fór hún fljótlega að vinna á barna- heimilum. Störf hennar þar leiddu til þess að hún komst að við virtan uppeldis- og fóstruskóla. Hún vann á ýmsum stofnunum í Stokkhólmi bæði fyrir veikluð börn og heil- brigð börn. Leiðin lá svo aftur heim til Íslands að stríði loknu árið 1946. Heim komin vann hún fyrst í Tjarnarborg og á Hörðuvöllum í Hafnarfirði , en árið 1949 hófst starfsemi Sumargjafar í Steinahlíð og 1951 flutti Ida heimili sitt þang- að. Hún hafði aðeins eitt herbergi uppi á lofti fyrir sig og eigur sínar, en börnin og heimilshaldið fylltu þetta fremur litla en snotra ein- býlishús að öðru leyti. Það er nánast óskiljanlegt, þegar horft er til baka, hvering hægt var að búa 40–50 börnum góða dagvist og bjóða upp á notalegan heim- ilismat í öllum þrengslunum í Steinahlíð. Eldhúsið var ekki stærra en eld- húsið í fyrstu íbúðinni,sem ég og maðurinn minn, Bjarni Benedikts- son, eignuðumst og bjuggum í, þegar við vorum svo lánsöm að fá vist fyrir snáðana okkar, tveggja og þriggja ára hjá Idu. En Ida rak engu að síður rausnarbú í Steina- hlíð með aðstoð góðra samstarfs- kvenna. Þar var tekið slátur á haustin og soðin sulta. Rifsber, rabarbara og annan gagnlegan gróður mátti finna í hinni stóru landareign, sem fylgdi húsinu sem Sumargjöf hafði fengið að gjöf og náði niður undir Elliðavog. Neðst í Steinahlíðarlandi var geitagirðingin og það voru ekki amalegir dagar, þegar farið var alla leið niður í geitagirðingu. Stundum var farið í lengri leið- angra, jafnvel í rútu en þá seildist Ida í eigin vasa til að borga. Hún var hagsýn fyrir hönd Sum- argjafar en örlát á eigið fé og tíma. Hún átti það til að hjálpa fátækum einstæðum mæðrum með jólaföt á börn og lá undir grun um að greiða stundum dagvistargjaldið sjálf, ef verulega illa stóð á. Það kom líka fyrir að börn fengu að gista hjá Idu, ef á þurfti að halda. Ég vann á Veðurstofunni, þegar synir mínir voru hjá Idu, en það var Valborg Bentsdóttir skrifstofu- stjóri, sem greiddi götu mína þang- að með því að hringja inn í Steina- hlíð, og ræða sannleikanum samkvæmt um vandræði Veður- stofunnar, sem ekki mætti missa veðurfræðing úr starfi. Ég gleymi ekki fyrstu samfund- um okkar Idu á fallegum sumar- degi bæði konan og staðurinn heill- uðu mig. Það fór að vísu svo að báðir drengirnir grétu sárt, þegar faðir þeirra kvaddi þá fyrsta morg- uninn og honum leist ekki á blik- una, en þegar ég hringdi í Steina- hlíð um hádegisbil voru þeir farnir að leika sér inni á gólfinu hjá Idu, og þeir höfðu ekkert á móti því að fara til hennar aftur næsta morg- un. Áður en á löngu leið var Ida orð- in góður heimilisvinur okkar hjóna og kom þar margt til. Hún var glaðvær og það var gaman að ræða við hana. Við þrjú áttum sömu vonir um betra þjóðfélag, vorum sósíalistar og herstöðvaandstæðingar. Steinahlíðarár drengjanna liðu hratt, en sambandið við Idu var áfram traust og mikilvægt, og þeg- ar þeir tóku í fyrsta sinn á móti gestum á eigin heimilum var Ida að sjálfsögðu meðal þeirra. Ég veit að mörg Steinahlíðar- börn og foreldrar eiga sambæri- legar reynslusögur. Sú venja komst á að Steinahlíðarforeldrar og aðrir vinir Idu stóðu fyrir fjöl- mennum veislum á stórafmælum hennar. Þar var alltaf glatt á hjalla og þar mátti heyra margar góðar sögur um samskipti barna, foreldra og fóstru. Sambandið við Idu var oft þannig að það rofnaði ekki, þeg- ar barnið varð aldurs vegna að ljúka dvöl sinni á staðnum, og hún varð t.d. tíður gestur í ferming- arveislum. Ida kvaddi Steinahlíð, þegar hún varð sjötug fyrir meira en tuttugu árum og nú eru Steinhlíðarbörnin hennar orðin fullorðið fólk, pabbar og mömmur og jafnvel afar og ömmur. Síðustu ár ævinnar sat Ida í hjólastól á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum. Hún var þakk- lát því hæfa og góða fólki, sem þar annast sjúklinga, og tók með áhuga og gleði þátt í öllu, sem þar var gert til að lífga upp á tilveruna. Það vildi svo til að í síðasta sinn sem ég leit inn til hennar voru fóstrur með leikskólabörn í heim- sókn. Það var ánægjuleg stund. Þökk sé Idu fyrir það dýrmæta ævistarf, sem hún vann. Blessuð sé minning hennar. Adda Bára Sigfúsdóttir. Horfin er Ida héðan úr heimi til móts við skapara sólar og stjarna sjálfur mun færa henni frið. Fræðari og fóstra barna upphafin er á æðra svið. Þangað sem öll um síðir stefnum á sömu mið söknum og syrgjum á meðan. Auður, Hermann og börn. HINSTA KVEÐJA Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.