Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 40
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
GRETTIR! ÞAÐ ER
EKKI KOMINN TÍMI TIL
ÞESS AÐ VAKNA!
AF HVERJU VARSTU
ÞÁ AÐ ÖSKRA?
ÞAÐ
TÓKST!
ANSANS!
HÉRNA
STENDUR
JÓI SVALI Á
VELLINUM Á
SUNNU-
DEGI...
ÞAÐ ER ALLT LOKAÐ...
ÞAÐ ERU ALLIR FARNIR
HEIM... ENGAR GELLUR...
EKKERT!
ÞAÐ BAUÐ ENGINN JÓA
SVALA HEIM Í KAFFI ÞANNIG
AÐ HANN NEYÐIST TIL ÞESS
AÐ FÁ SÉR HAMBORGARA
OG GOS Í SJOPPU...
OJ!
ALDREI VERÐA
ÁSTFANGINN AF
SNJÓKORNI!
Tittur
© GLENAT
SJÖ, TVÖ!
ÉG ER
MEISTARI!
KOMDU!
GAMAN AÐ
VERA HJÁ
ÖMMU
ÞINNI
EKKI HAFA
HÁTT HÚN ER
AÐ LEGGJA
SIG
MA ...
MANNÆTU-
FISKUR Í
KRUKKUNNI!
AMMA
HLYTUR
AÐ HAFA
VEITT
HANN!
SVONA SKEPNA
ÉTUR AF MANNI
HENDINA Á NOKKR-
UM SEK-
ÚNDUM
ÍIII ...
Í ALVÖRU PASSAÐU
ÞIG ...
ÉG ÆTLA AÐ GEFA HONUM
TYGGJÓ. SJÁÐU BARA ...
HANN SNERTIR
ÞAÐ EKKI ... ÞETTA
ER GILDRA
PASSAÐU ÞIG!
HANN GERIR
MIG DAUÐ-
HRÆDDAN ...
VIÐ VERÐUM AÐ
SLEPPA HONUM...
HANN ER ALLTOF
HÆTTULEGURGETUM VIÐ
EKKI HENT
HONUM Í
KLÓSETTIÐ
ERTU SNAR
HANN GÆTI
BITIÐ Í
TIPPIÐ Á
AFA ÞÍNUM
UPPS! ÞETTA
ER BETRA
SVONA!
SEM
BETUR FER
VARS ÞÚ
HÉRNA
VIÐ ERUM
HETJUR!
ÞAÐ
VERÐUR
EKKI BITIÐ Í
TIPPIÐ Á
AFA!
Dagbók
Í dag er föstudagur 25. júní, 177. dagur ársins 2004
Víkverji hefur aldreiskilið hvers vegna
fólk nennir að horfa á
karla, eða konur,
sparka bolta sín á milli
í 90 mínútur. Líklega
vantar eitthvert
keppnisgen í Víkverja,
en hann hefur aldrei
botnað upp né niður í
því hvers vegna allt
þjóðfélagið fer úr
skorðum þegar heims-
meistarakeppni eða
Evrópumeistaramót
er í sjónvarpinu.
Víkverji hefur þó
ákveðið að taka fót-
boltann í sátt, eftir að hafa í áraraðir
eldað við hann grátt silfur. Hann
hefur séð að fótbolti er eins og Euro-
vision, það er einfaldlega miklu
skemmtilegra að taka þátt í gleðinni
og spenningnum, fyrst samfélagið er
á annað borð umturnað vegna þess-
arar keppni. En mikið verður annars
gott þegar lífið kemst aftur í fyrra
horf!
x x x
Víkverji týndi dagbókinni sinnifyrir nokkrum vikum og lýsti
raunum sínum hér í blaðinu. Hvern-
ig hann gleymdi að mæta þangað
sem hann hafði mælt sér mót og
gleymdi að sinna þeim
verkefnum sem hann
hafði tekið að sér.
Hugulsamur lesandi
færði Víkverja Fram-
kvæmdabókina 2004
að gjöf. Víkverji hefur
því tekið gleði sína á
ný og er aftur farinn
að stjórna lífi sínu og
verður því vonandi
ekki jafngleyminn og
hann var dagbók-
arlaus. Vill Víkverji
færa þessum lesanda
kærar þakkir fyrir
hugulsemina.
x x x
Víkverji er mjög ánægður meðgóða veðrið sem hefur leikið við
íbúa suðvesturhornsins síðustu daga
og finnur hvernig hver sólargeisli
kætir og léttir lund hans og skap.
Hann mætir hverjum nýjum sól-
ardegi fagnandi og er bjartsýnn á að
þetta sumar eigi eftir að verða mjög
gott.
Víkverji er nýkominn úr nokkurra
daga dvöl í Svarfaðardal, sem hann
telur fallegastan allra íslenskra dala.
Tignarleg fjöllin gnæfa yfir, enn
með snjó niður í miðar hlíðar og
jaðrakaninn leikur við hvern sinn
fingur. Þannig á lífið að vera!
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Reykjavík| Hann finnst varla sá rafmagnsgítareigandi sem ekki hefur spreytt
sig með æði misjöfnum árangri á upphafsgítarstefinu fræga í „Smoke On The
Water“ sem Richie Blackmore pikkaði upp fyrir góðum þrjátíu árum síðan og
gerði ódauðlegt.
Þótt Blackmore sé fjarri góðu gamni þá kemur maður í manns stað. Hér á
landi er staddur sem aðalgítarleikari rokkhetjanna í Deep Purple, Steve
Morse, náungi sem af mörgum er álitinn einn af færustu gítarleikurum í faginu.
Gítarleikurum landsins, lærðum og leikmönnum, bauðst í gær, stuttu fyrir
seinni tónleika Deep Purple, það einstaka tækifæri að læra nokkrar vel valdar
gítarbrellur af þessum mikla gítargaldramanni í æfingarsal FÍH. Morse notaði
líka tímann vel, sýndi listir sínar og benti mönnum á hvernig þeir gætu náð
betri tökum á Purple-sólóunum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Í gítarlæri hjá galdramanni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: En hann sagði við þá: „Gjaldið þá keisaranum það sem
keisarans er og Guði það sem Guðs er.“ (Lúk. 20,25.)