Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 41
Lausn á þraut 2.
Norður
♠94
♥65
♦ÁK643
♣7643
Vestur Austur
♠75 ♠1083
♥KDG10874 ♥3
♦D107 ♦G9852
♣9 ♣G1052
Suður
♠ÁKDG62
♥Á92
♦–
♣ÁKD8
Lausn: Það hefði verið gott að sjá
spaðatíuna í blindum, en þá væri svo sem
engin þraut að vinna slemmuna. Nú þarf
að finna leið til að komast inn í borð.
Auðvitað kemur til greina að drepa á
hjartaás og spila meira hjarta í öðrum
slag í því augnamiði að trompa þriðja
hjartað með níunni. En eftir sagnir er
mun líklegra að austur sé með lengd í
spaða og þar með tíuna. Sé svo, má
senda hann inn á þriðja (eða fjórða)
spaðann þegar hann á ekkert nema tígul
eftir.
Leiðin er þessi: Hjartaás, síðan ÁK í
spaða. Þegar báðir fylgja eru þrír efstu
teknir í laufi. Ef austur heldur í hæsta
laufið er þriðja trompið tekið og austri
síðan spilað inn á laufgosa. En austur
gæti tekið upp á því að afblokkera laufið
– henda G10. Gott og vel. Þá er laufáttan
tekin og verkinu lokið með spaðatvist-
inum. Austur lendir inni og verður að
spila tígli.
Stig: Hjartaás og meira hjarta gefur 4
stig, því vissulega gæti vestur átt spaða-
tíuna. En fyrir að spila upp á tromp-
innkastið á austur fæst fullt hús stiga,
eða 10.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 41
Ámorgun verður haldin í annað sinn svo-kölluð Bláskógablíða, en svo nefnistkynningarátak sem sveitarstjórn Blá-skógabyggðar stendur fyrir. Blá-
skógablíða er verkefni sem var hrundið af stað í
fyrsta skipti síðasta sumar, en markmið hátíða-
haldanna er að kynna sveitarfélagið og það sem
það hefur upp á að bjóða.
Bláskógabyggð er ungt sveitarfélag sem varð
til við samruna Biskupstungna, Laugardals-
hrepps og Þingvallasveitar.
Hverjum er hátíðin ætluð?
Bláskógablíða er í raun ætluð öllum. Þar sem
sveitin okkar skartar mörgum þekktustu ferða-
mannastöðum landsins, svo sem Gullfossi, Geysi,
Þingvöllum og Laugarvatni, eru gestakomur tíð-
ar. Nú gefst kostur á að kynnast sveitinni nánar.
Hverjir eru helstu dagskrárliðir Blá-
skógablíðu?
Það verður ýmislegt skemmtilegt hægt að
gera í sveitinni þennan dag og tilvalið fyrir fjöl-
skylduna að taka daginn snemma, kjósa og
skella sér svo í góðan laugardagsbíltúr í Blá-
skógabyggð. Dagskráin er fjölbreytt og reynum
við að höfða til allrar fjölskyldunnar. Meðal dag-
skrárliða má nefna kynningu á fornleifarann-
sóknum í Skálholti (klukkan 11) og á Þingvöllum
(klukkan 13). Göngur verða á báðum stöðum
undir leiðsögn staðkunnugra. Skálholtstónleikar
hefjast þennan dag, þetta er í 30. sinn sem þeir
eru haldnir. Reykhúsið í Útey ætlar að leyfa
gestum og gangandi að skoða starfsemina, sem
þar fer fram, milli kl. 13 og 15. Galleríið á Laug-
arvatni verður opið að vanda. Eldsmiðurinn
Böðvar víkingur verður á staðnum og sýnir
hvernig víkingar unnu járnhluti hér fyrr á öld-
um. Bæjarlækurinn við Eyvindartungu hefur
verið virkjaður og nýttur til rafmagnsframleiðslu
og gefst gestum kostur á að skoða virkjunina frá
kl. 14–16. Hestamannafélagið Logi stendur fyrir
fjölskyldudegi í Hrísholti klukkan 13. Karnival-
stemning verður við Gufubaðið á Laugarvatni,
en þar verða sett upp mögnuð leiktæki fyrir
börnin. Minnstu gestirnir okkar geta svo kynnt
sér dýraflóru landsins með heimsókn í dýragarð-
inn í Slakka.
„Kjósum Bláskógabyggð?“
Kjósum Bláskógabyggð er kjörorð okkar í ár,
ástæðan er ekki endilega sú að forsetakosningar
séu þennan sama dag og að við séum að henda
okkur í kosningabaráttuna. Okkur langar ein-
faldlega til að fólk hugsi um okkur þegar það er
að velja sér sveitarfélag til búsetu, hvort heldur
er sem heilsársíbúar eða frístundaíbúar.
Bláskógablíða | Hverjum er hátíðin ætluð?
Kjósum Bláskógabyggð
Daníel Máni Jónsson
er verkefnisstjóri Blá-
skógablíðu. Hann er
fæddur 1983 í Reykja-
vík en fluttist við 10 ára
aldur í Bláskógabyggð
og hefur ekki getað slit-
ið sig frá sveitinni síð-
an. Daníel Máni er stúd-
ent frá Mennta-
skólanum við Hamra-
hlíð og stundar nú nám
við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík
www.blaskogabyggd.is
Glansmynd
ÉG HORFÐI á hátíðarhöldin 17. júní
á Austurvelli í sjónvarpinu. Formað-
ur þjóðhátíðarnefndar hélt þar ræðu
og talaði m.a. um hversu gott velferð-
arkerfi væri hér og hversu vel væri
hugsað um þá sem minna mega sín.
Hér á landi búa á milli 20 og 30 þús-
und manns við mikla fátækt í allri vel-
sældinni. Þetta fólk eygir enga út-
gönguleið úr þeim fátæktargildrum
sem það situr fast í. Það er því móðg-
un við þetta fólk að draga upp slíka
glansmynd af velferðarkerfinu á
sjálfan þjóðhátíðardaginn. Fátæktin
hefur því miður verið vandlega falin
hér á landi og það virðist sem stjórn-
völd hafi lítinn áhuga á að lagfæra
ástandið, sem sífellt versnar.
Sigrún Á. Reynisdóttir,
formaður samtaka gegn fátækt.
Þakkir til FÍS
HINN 10. júní sl. bauð Félag ís-
lenskra símamanna (FÍS) eft-
irlaunadeild símamanna í frábæra
ferð um Suðurland. Ég vil gjarnan
koma á framfæri innilegu þakklæti til
þeirra sem skipulögðu ferðina sem
var bæði fróðleg og skemmtileg. Í
ferðinni hjálpaðist allt að: Gott veður
og fínar veitingar í veitingastaðnum
Hafinu bláa og hrossaræktarbúinu
Hestheimum. Þá fræddumst við mik-
ið í ferðinni en með okkur var leið-
sögumaður sem var afar fróður um
sögu lands og þjóðar.
Bestu þakkir til FÍS.
Dóra Ólafsdóttir, Akureyri.
Tillitssemi
FYRIR stuttu síðan voru breytingar
gerðar á myndasögum Morgun-
blaðsins. Eftir breytingarnar fór
nokkuð að bera á óhóflegu ofbeldi í
hinum lengri myndasögum. Þótti mér
þörf á að benda ritstjórn Morg-
unblaðsins á þetta og vil ég þakka að-
stoðarritstjóra fyrir skjót viðbrögð í
þessu máli.
Þakklátur lesandi.
Taska og jakki töpuðust
AÐFARANÓTT sunnudagsins 20.
júní sl. týndust svört taska og brúnn
dieseljakki á skemmtistaðnum Sólon.
Í töskunni var kortahulstur, gsm-
sími, snyrtivörur o.fl. Þessir hlutir
skipta eigendann máli og er sárt
saknað. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í síma
895 1444 eða 587 2716.
Leðurhanskar fundust
SVARTIR leðurhanskar fundust á
bílastæði í Lágmúla 17. júní sl. Upp-
lýsingar í síma 848 3030.
Bjartur er týndur
SÍAMSKÖTTURINN Bjartur er
týndur. Hann er ljós á lit og með blá
augu. Hann hvarf frá heimili sínu
Skútagili 5, 603 Akureyri 20. júní sl.
Þeir sem hafa orðið varir við Bjart
eru beðnir að hafa samband í síma
461 4361.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rc6 4. O-O
Bd7 5. He1 Rf6 6. c3 a6 7. Bf1 Bg4 8.
h3 Bxf3 9. Dxf3 g6 10. Dd1 Bh6 11. Ra3
O-O 12. d4 Bxc1 13. Hxc1 cxd4 14. cxd4
d5 15. e5 Re4 16. Rc2 Db6 17. Dd3
Hac8 18. b3
Fóstbræðurnir Jóhann Sigurðsson
og Helgi Ólafsson (2524) höfðu frum-
kvæði að því að hópur íslenskra leikara
og skákmanna sýndu listir sínar á Ís-
lendingaslóðum í tilefni af aldarafmæli
heimastjórnar og 60 ára lýðveld-
isafmælinu. Eftir mergjaða leiksýn-
ingu þjóðleikhúsmanna á verki Böðv-
ars Guðmundssonar um
Vestur-Íslendinga var haldið at-
skákmót þar sem Helgi varð hlut-
skarpastur. Staðan kom upp á mótinu
og hafði sigurvegarinn svart gegn Irw-
in Lipnowski (2257). 18... Rxe5! 19.
dxe5 Dxf2+ 20. Kh2 Hc3 21. Dxd5
Hxh3+! og hvítur gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir 22. Kxh3 Dg3#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Komið og gerið
góð kaup
Flottar tilboðsslár
Tvenns konar verð
1.500 kr. og 500 kr.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930LJÓSMYNDIR
mbl.is
ÓLAFSFJÖRÐUR breytir um svip
á tveggja daga Blúshátíð sem sett
verður í dag. Það er Djass-
klúbbur Ólafsfjarðar og Blúsfélag
Reykjavíkur sem sameinast í
fimmta sinn undir þessum hatti
og troða sjö hljómsveitir upp
þessa tvo daga. Magnús Ólafsson,
formaður Djassklúbbs Ólafs-
fjarðar segir mikinn áhuga vera
fyrir blúsinum á Ólafsfirði. „Hér
eru starfræktar átta hljómsveitir
allt árið um kring og myndast
hér mikil stemming á svona há-
tíð. Undanfarin ár hafa um 500
manns alstaðar að af landinu sótt
okkur heim og má kannski segja
að þetta sé nokkurs konar árshá-
tíð blúsara. Við vorum sjö sem
stofnuðum Djassklúbbinn á sínum
tíma en okkur vex ásmegin og er
félagatalan nú um 40, sem er
nokkuð gott í ellefu hundruð
manna samfélagi.“
En hvað er svona skemmtilegt
við blúsinn? „Blús er ekki bara
tónlist, blús er hugarástand og
gefur okkur hljóðfæraleikurum
færi á nánu sambandi við hljóð-
færin í frjálsum spuna. Þegar
best lætur ná góðir tónlistarmenn
að renna saman við hljóðfærið
sitt. Nokkrir slíkir skemmta á há-
tíðinni, en alls verða hér sjö
hljómsveitir.“
Hvers konar blús verður leik-
inn? „Blúsinn er sprottin uppúr
mikilli þjáningu en strákarnir eru
hér til að skemmta fólki og halda
aftur af hinum melankólísku tón-
um. Fluttur verður léttur rythma-
blús sem enginn fær staðist.“
Á morgun stíga á svið Blús-
kompaníið með Magga Eiríks og
Pálma Gunnars í broddi fylk-
ingar, ásamt gestum og Dóri
Braga & Gummi P. sem hafa
fengið með sér fríska gutta frá
Ólafsfirði til að taka lagið með
sér. Útimarkaður verður starf-
ræktur á morgun og ómar þá
fjörðurinn af fögrum blústónum,
því tónlist verður flutt utandyra.
Dóri Braga & Gumma P. starf-
rækja Blúsvinnustofu og boðað
verðurtil alls herjar grillveislu.
Þar mætir hver með sitt hljóð-
færi og sterkar líkur á að þá
spretti fram 20–30 manna blús-
sveit. Hátíðinni lýkur með dans-
leik Mannakorns.
Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson eru meðal blúsara á Ólafsfirði.
Fjörðurinn ómar af blústónum
Blúshátíð á Ólafsfirði hefst kl.
21. Í kvöld leika Vinir Dóra
ásamt KK, Páll Rósinkranz &
Kalli Bjarni, Dóri& KK ásamt
ungliðum Ólafsfjarðar. Dans-
leikur með Kalla Bjarna og
hljómsveit kl. 24.