Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 44

Morgunblaðið - 25.06.2004, Page 44
MENNING 44 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 6.000 miðar seldir í forsölu fös. 25. júní kl. 19.30, mið. 30. júní kl. 19.30, fim. 1. júlí kl. 19.30, fös. 2. júlí kl. 19.30, sun. 4. júlí kl. 17.00, lau. 10. júlí kl. 16.30 & lau. 10. júlí kl. 19.30. Ósóttar pantanir seldar daglega Sumarkvöld við orgelið 26. júní kl. 12.00: Erling With Aasgård orgel 27. júní kl. 20.00 Erling With Aasgård frá Noregi leikur verk m.a. eftir Dupré, Duruflé, Bach og Vierne. 1 . F o r s ý n i n g M i ð 0 7 . 0 7 2 0 : 0 0 U P P S E L T 2 . F o r s ý n i n g F i m 0 8 . 0 7 2 0 : 0 0 U P P S E L T F r u m s ý n i n g F ö s 0 9 . 0 7 2 0 : 0 0 U P P S E L T 2 . s ý n . L a u 1 0 . 0 7 2 0 : 0 0 U P P S E L T 3 . s ý n . F i m . 1 5 . 0 7 2 0 : 0 0 Ö R F Á S Æ T I L A U S 4 . s ý n . F ö s . 1 6 . 0 7 2 0 : 0 0 L A U S S Æ T I 5 . s ý n . L a u . 1 7 . 0 7 2 0 : 0 0 Viðskiptavinir KB BANKA fá 30% afslátt af fyrstu 8 sýningum á Hárinu Forsala miða er hafin á mbl.is, miðasala í Austurbæ opnar 30. júní næstkomandi LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ Staðartónskáld: Jón Nordal Kl. 14:00 Hátíðardagskrá við upphaf 30. starfsárs Gamla klukka í jörðu eftir Jón Nordal frumflutt. Þátttakendur: Kammerkórinn Carmina, hljóðfæraleikarar, Jón Sigurbjörnsson leikari og sr. Guðmundur Óli Ólafsson fyrrum staðarprestur. Kl. 15:00 Þýðan eg fögnuð finn Verk byggð á trúarlegum söngarfi eftir Báru Grímsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur, Elínu Gunnlaugsdóttur og Misti Þorkelsdóttur. Flytjendur: Sönghópurinn Gríma og hljóðfæraleikarar. Kl. 17:00 Kórverk eftir Josquin Desprez Flytjendur: Kammerkórinn Carmina undir stjórn Árna Heimis Ingólfssonar. SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ KL. 15:00 Endurflutt dagskrá frá laugardegi kl. 17:00. Flytjendur: Kammerkórinn Carmina undir stjórn Árna Heimis Ingólfssonar. Kl. 17:00 Messa: Sr. Sigurður Sigurðsson vígslubiskup predikar, Kammerkórinn Carmina flytur tónlist eftir Josquin Desprez í messunni. SUMARTÓNLEIKAR Í SKÁLHOLTSSKIRKJU 26. júní - 2. ágúst 2004 í sumarsveiflu í kvöld Hliðarsalur: EM á breiðtjaldi í beinni Hljómsveit Geirmundar V. GAGNRÝNANDI hins alþjóðlega óperutímarits Opera Now fer fögr- um orðum um uppsetningu Íslensku óperunnar á Brúðkaupi Fígarós á liðnum vetri í nýútkomnu júlí/ágúst- hefti blaðsins. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Opera Now sendir mann út af örkinni til að fylgj- ast með sýningu í Íslensku óperunni en í fyrra sinnið var birtur lofsam- legur dómur um uppsetninguna á Macbeth á vormisseri 2003, ásamt viðamikilli grein um starfsemi Ís- lensku óperunnar. Gagnrýnandinn Neil Jones var viðstaddur frumsýninguna á Brúð- kaupi Fígarós 29. febrúar sl. Í um- sögninni segir hann m.a.: „Í þessari nýju uppfærslu voru lykilpersónur klæddar í sterka liti sem andstæða við fínlega pastellitina í öðrum bún- ingum og milda liti í leikmynd. Þar sem mikið er um samsöng í óperunni vill það oft brenna við að það verður heldur lítið úr einstaka persónum en í þessari uppfærslu voru öll helstu hlutverkin sungin og leikin af glæsi- brag. Bergþór Pálsson skapaði stór- kostlegan greifa, ónytjung sem hafði greinilega ekki eins og algengast er fæðst með silfurskeið í munninum heldur gleypt hana í heilu lagi. Ekki að undra að bæði Figaro og Súsanna virtust þekkja hann allvel og leyfðu sér að hæða hann opinskátt á stund- um. Auður Gunnarsdóttir var aftur á móti andstæðan, hin skynsama greifafrú með báða fætur á jörðinni og hafði mátt þola margt. Hulda Björk Garðarsdóttir söng hlutverk Susönnu ákaflega fallega. Sveigj- anleiki raddarinnar hæfði hlutverk- inu fullkomlega. Ólafur Kjartan Sig- urðarson söng Figaro af miklum krafti. Hann hefur kraftmikla blæ- brigðaríka rödd sem var í góðu formi, þó honum hætti stundum til þess í fyrsta þætti að beita sér um of til að undirstrika sterkar tilfinn- ingar. Hann reyndist stundum nokk- uð grimmur gagnvart Cherubino sem Sesselja Kristjánsdóttir gerði heldur of kvenlegan fyrir minn smekk. Þrátt fyrir það söng hún hlutverkið sannarlega mjög vel og arían „Voi che sapete“ hentaði fögr- um mjúkum hljómi raddar hennar fullkomlega. Ætti fleiri áhorfendur skilið Sigríður Aðalsteinsdóttir skóp skemmtilega en nokkuð ósannfær- andi unga Marcellinu en Davíð Ólafsson var fremur ráðsettur Bart- olo. Snorri Wium var stórkostlega tilgerðarlegur og veimiltítulegur Don Basilio. Sviðið í Íslensku óperunni er mjög lítið og ekki hægt að lyfta leikmynd- inni, sem er vissulega mikil ögrun fyrir leikmyndahönnuði að finna lausn á. Geir Óttarr Geirsson og Þorvaldur Böðvar Jónsson sem sam- an hönnuðu leikmyndina leystu þessa annmarka á undursamlegan hátt með leikmynd sem ýmist var verönd eða herbergi og allt var þetta gert með örfáum skiptingum. Leik- stjórinn Ingólfur Níels Árnason nýtti sér snilldarlega þetta takmark- aða rými og með markvissri leik- stjórn tókst honum að láta atburða- rásina renna áfram. Frá fyrsta takti lék hljómsveitin af eldmóði og fjöri undir stjórn Christophers Fifield. Þetta var vissulega kraftmikil uppfærsla á Brúðkaupi Fígarós og hefði átt fleiri áhorfendur skilið heldur en rúmast á þeim u.þ.b. átta sýningum sem Íslenska óperan sá sér fært að bjóða.“ Ópera | Opera Now fjallar lofsamlega um Brúðkaup Fígarós „Sungið og leikið af glæsibrag“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ólafur Kjartan Sigurðarson söng Fígaró af miklum krafti. ÞRÍR Íslendingar taka þátt í nor- rænu samtímalistahátíðinni Mom- entum í Moss í Noregi sem nú stendur yfir. Alls taka 39 lista- menn þátt í aðalsýningunni, en einnig eru á hátíðinni fjöldi tengdra viðburða og málþinga. Sýningin fjallar um pólitískan og samfélagslegan veruleika Norður- landanna. Þetta er í þriðja sinn sem nor- ræn samtímalistahátíð er haldin í Moss og hefur hún skipað sér fast- an sess í norrænu listalífi, og vakið athygli langt út fyrir Norður- löndin. Sýningarstjórar eru Per Gunnar Tverbakk (Noregur) og Caroline Corbetta (Ítalía). Meðal íslensku þátttakendanna er Magn- ús Sigurðarson með verk sitt „Greining hins augljósa“. Í miðju sýningarsalar hefur hann, ásamt fjölda aðstoðarmanna, byggt upp risastórt dagblaðaverk og sáð í það lúpínufræjum. Ragnar Kjart- ansson sýnir innsetningu sem sam- anstendur af skútuteikningum, skemmdu korni og myndbandi þar sem útfært er ofbeldi dansks ný- lenduherra gagnvart ósiðmennt- uðum skítugum Íslendingi á fyrri- hluta síðustu aldar. Erla S. Haraldsdóttir hefur í samvinnu við sænska listamanninn Bo Melin gert tölvubreyttar og martrað- arkenndar ljósmyndir af götu- myndum í Moss, sem þau sýna á fjölda upplýstra auglýsingaskilta í miðbænum, undir titlinum „Hér, þar og allstaðar“. Sýningunni Momentum í Moss lýkur 27. júní. Þrír Íslendingar taka þátt í Momentum ÓLAFI Jóhanni Ólafs- syni er líkt við rithöf- undana Kazuo Ishig- uro og P.G. Wodehouse í dómi í breska blaðinu Sunday Telegraph um skáldsögu hans Höll minninganna sem ný- lega kom út þar í landi hjá Faber og Faber. Gagnrýnandi Sunday Telegraph seg- ir í upphafi umsagnar sinnar að með Höll minninganna hafi Ólaf- ur Jóhann Ólafsson skipað sér á bekk með Kazuo Ishiguro og P.G. Wodehouse með því að skrifa um einkaþjón skáldsögu sem verði að teljast mikið bókmenntaverk. Síðan bætir hann því við að það sé erfitt að komast hjá því að leiða hugann að Anth- ony Hopkins við lestur bókarinnar því að Kristján Benediktsson sé nærgætinn og yfir honum sé reisn, hann veiti smáatriðum at- hygli og bæli ástríður sínar. Þar vísar hann greinilega til frammi- stöðu Hopkins sem einkaþjóns í kvik- myndinni „Remains of the Day“ eða „Dreggj- um dagsins“ sem gerð var eftir frægri sögu Kazuo Ishiguro. Gagnrýnandi blaðsins telur sögu- svið bókarinnar einn skemmtileg- asta þátt hennar en það er kastali Hearsts blaðakóngs í San Simeon sem byggður var á um 100.000 hektara búgarði í Kaliforníu. Gagn- rýnandinn segir Ólafi Jóhanni tak- ast frábærlega upp í að lýsa því um- hverfi. Undir lok umsagnarinnar segir í blaðinu: „Þetta er bók um þrá og yf- irbót, þrungin tilfinningu um það sem er óumflýjanlegt og uppgjöf, tilfinningu um að örlögin stjórni okkur og leiði áfram hvernig sem allt veltist.“ Gagnrýndaninn bætir því síðan við að Höll minninganna sé skemmtilega margslungin, – jafnmargslungin fyrir lesandanum og lausnin er sögumanni bók- arinnar. Áður hefur bókin hlotið mikið lof í bandarískum fjölmiðlum og má nefna að gagnrýnandi Chicago Tribune sagði að svona ætti að skrifa bækur. Bókmenntir | Ólafur Jóhann fær góða dóma í Bretlandi Ólafur Jóhann Ólafsson Líkt við rithöfundana Kazuo Ishiguro og P. G. Wodehouse ÞÝSKA ríkið á yfir höfði sér mála- ferli vegna listaverka sem stolið var af fórnarlömbum helfararinn- ar. Skaðabótakrafan, sem lögð er fram af hálfu Samtaka fórnar- lamba helfararinnar um skaðabæt- ur vegna listaverka og meist- arastykkja, hljóðar upp á átján milljarða Bandaríkjadala, eða um þrettán hundruð milljarða, 1.314.000.000.000, íslenskra króna. Málsóknin er höfðuð á grundvelli þess að þýska ríkið, frá því í síðari heimsstyrjöldinni til dagsins í dag, hafi hagnast á listaverkum sem tekin voru eignarnámi í helförinni. Til stendur að höfða sambærilega málsókn gegn öðrum ríkjum, þar á meðal Austurríki, Frakklandi og Bandaríkjunum. Stjórnvöld halda ekki eftir illa fengnum eignum Talsmaður þýsku ríkisstjórn- arinnar sagði að fjármálaráðu- neytið tæki allar lögsóknir alvar- lega, en biði þess að kæran væri formlega lögð fram. „Þýska ríkið hefur þegar skilað milljónum lista- verka. Það heldur einungis eftir þeim verkum, þar sem eigandinn er óþekktur,“ sagði hann. Bandaríski lögfræðingurinn Ed Fagan, sem sækir málið, segir um 2.000 verk enn í vörslu stjórn- valda. Þýska fjármálaráðuneytið staðfesti að það ætti enn verk sem tryggð væru fyrir 73 milljónir Bandaríkjadala. „Það er ekki hlut- verk stjórnvalda að stela eða halda eftir illa fengnum eignum,“ sagði Fagan. Ed Fagan er kunnastur fyrir að hafa gert samkomulag við sviss- neska banka um 1,25 milljarða Bandaríkjadala, rúmlega níutíu milljónir íslenskra króna, til eftir- lifenda helfararinnar. Hundruð milljarða vegna stolinna verka AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.