Morgunblaðið - 25.06.2004, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
www .borgarb io. is
1/2
HL Mbl
ÓÖH DV
Frá framleiðanda
Spider-Man
Fjölskylda hans var
myrt og hefnd hans
er miskunnarlaus!
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.I. 16.
FRUMSÝNING
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND
SUMARSINS!
Jenna fékk ósk sína uppfyllta...
og er allt í einu þrítug!
Frábær mynd fyrir fólk á öllum aldri.
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.40.
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 16.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
"..hreinn „gullmoli...
Brilljant mynd.“
ÞÞ FBL
1/2
HL Mbl
kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
ÓÖH DV
Frá framleiðanda
Spider-Man
Fjölskylda hans
var myrt
og hefnd hans er
miskunnarlaus!
Þær eru
illgjarnar.
Hún er ný.
Og fljótlega
fær hún alveg
nóg af þeim.
Frábær og frumleg
gamanmynd sem
hefur svo sannarlega
slegið í gegn í
Bandaríkjunum Með
Lindsay Lohan úr
„Freaky Friday“
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
30.000
manns
á 19 dögum!!!
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
ETERNAL
SUNSHINE
Kvikmyndir.is
FRUMSÝNING
SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND
SUMARSINS!
Jenna fékk ósk sína
uppfyllta...og er allt í einu
þrítug! Frábær mynd fyrir
fólk á öllum aldri.
Rauða ljónið
Addi Ása syngur og spilar fyrir dansi
frá kl. 11.30 til 3.00.
EM keppnin á öllum skjám.
Ekki gleyma ódýrasta matseðlinum á landinu.
Take away pantanir í síma 551 6600.
Forsa la miða hefst 30 . júní
EIN af mínum uppáhaldskvikmynd-
um er myndin Still Crazy, sem fjallar
um rokksveit sem var á jaðri heims-
frægðar á áttunda áratugnum, en
leystist upp eftir vandræði og deilur.
Áratugum síðar ákveða félagarnir að
sjá hvort rokkið flæði enn um æðarn-
ar og halda í víking. Fyrirmyndir
sveitarinnar, Strange Fruit, voru
margar og sóttu höfundar mynd-
arinnar án efa meðal annars í Deep
Purple þegar þeir skópu rokksveit-
ina.
Sá munur er kannski á hinni
ímynduðu Strange Fruit og hinum
raunverulegu Deep Purple að Purple
hafa verið starfandi mestmegnis
óslitið frá upphafi og haldið sér í
formi, þrátt fyrir nokkrar manna-
breytingar, sem var augljóst þegar
þeir hófu leik sinn á miðvikudags-
kvöldið.
Hinir fornfrægu Mánar hituðu upp
fyrir Purple við góðar undirtektir og
þótti sumum í salnum það lýsa
ákveðnu hugrekki að stökkva á sviðið
eftir allmörg ár og skella sér á gamla
snilld eins og „Frelsi“, „Söng Satans“
og „Þriðju heimsstyrjöldina“, sem
áhorfendur kunnu vel að meta með
tilþrifamikilli ljósasýningu og „Eld-
gömlu Ísafold“ milli kaflanna. Mánar
brugðust hvergi þrátt fyrir krefjandi
prógramm og sýndu og sönnuðu
hvers vegna þeir skipa þann sess sem
þeir gera í íslenskri tónlistarsögu.
Eftir stutt hlé stigu Purple-menn á
svið við gríðarleg fagnaðarlæti. Sjálf-
ur er ég frekar lágvaxinn þannig að
ég sá hreinlega ekki neitt fyrr en góð-
hjartaður sjúkragæslumaður og góð-
kunningi laumaði mér á frábæran
stað, þar sem ég gat bæði virt fyrir
mér sveitina og áhorfendurna. Þá sá
ég svolítið sem kom mér á óvart:
Gríðarlegur fjöldi unglinga var á
staðnum, ekki bara gamlir rokk-
hundar og spekúlantar. Ég get svarið
að ég sá fólk í tvenns konar göngu-
grindum, svo breiður var áhorf-
endahópurinn. Tólf til fjórtán ára
strákar og stelpur veifuðu höndum,
gerðu rokkmerkin og sungu með lög-
unum sem þau þekktu og hlýddu at-
hugul á hin, sem voru minna kunn-
ugleg. Trú mín á mannkynið
endurnýjaðist þegar ég sá ung-
lingana í slíkum rokkham.
Flutningur Purple var óaðfinn-
anlegur. Sveitin var gríðarlega þétt
og vel samræmd, með allt á hreinu.
En það þýddi líka að þeir höfðu nóg
svigrúm til að gantast sín á milli,
hlæja og gleðjast og leika sér við
áhorfendur, sem kunnu svo sann-
arlega vel að meta leikinn. Toppurinn
á tónleikunum var þegar hljómborðs-
leikarinn Don Airey tók sóló og
skellti allt í einu „Á Sprengisandi“ inn
í syrpuna. Ég hélt ég yrði ekki eldri
og þakið ætlaði að rifna af höllinni
þegar áhorfendur glöddust tak-
markalaust yfir gríninu.
Vissulega voru tilþrifin í söngnum
ekki eins og þegar sveitin „var upp á
sitt besta“, enda ekki við því að búast,
menn eldast og það er eiginlega hálf-
hallærislegt að sjá menn enn vera að
rembast af vanmætti við hluti sem
þeir ættu að vera löngu hættir að
reyna. Það er þroskamerki að finna
nýjan styrkleika með breyttum að-
stæðum. Ian Gillan hefur sjálfur lýst
því yfir að hann hafi dregið úr ýlfrinu
til að halda röddinni, því hann geri
sér grein fyrir því að aldurinn færist
yfir. Þetta þykir mér skynsamleg
ákvörðun og lýsa manni sem gerir sér
grein fyrir takmörkum sínum og vill
geta haldið áfram að gera það sem
hann gerir vel; að gleðja áhorfendur
með tónlist.
Það er nákvæmlega þetta sem
stendur upp úr eftir tónleika Deep
Purple. Það gladdi mig ósegjanlega
að sjá þessa menn svona hressa, með
svona skemmtilega sýningu, syngj-
andi og spilandi lögin sem þeir hafa
sungið og spilað í þrjátíu ár eins og
þeir væru að spila þau í fyrsta sinn,
algjörlega ósjúskað, með sömu spila-
gleðinni. Það fyllti mig trú á það að
aldurinn er hugarástand, það er ekki
hægt að tala um of gamla tónlist-
armenn. Allar fýlupokaathugasemdir
um ellibelgi segi ég úr lausu lofti
gripnar. Deep Purple voru alveg jafn
brjálaðir og þeir hafa nokkurn tíma
verið og það var hrein unun á að
horfa. Þetta voru rokkhundatónleikar
af gamla skólanum, gítarneglur og
kjuðar gefin út í salinn með látum og
tekið í hendur áhorfenda eins og ekk-
ert væri.
Enn
brjálaðir
Tónleikar
Laugardalshöll
Deep Purple og Mánar í Laugardalshöll,
miðvikudaginn 23. júní 2004.
Deep Purple
Svavar Knútur Kristinsson
Morgunblaðið/Sverrir
Ian Paice lamdi húðirnar sem maskína væri.
Útvarpsmaðurinn Tony Black-well, sem rekinn var fyrr í vik-
unni fyrir að vera of duglegur að spila
lög með Sir Cliff Richards, hefur ver-
ið endurráðinn. Blackwell hafði rifið í
beinni útsendingu minnisblað frá yf-
irmönnum sínum sem fyrirskipuðu
honum að róa sig í Richards-
lögunum. Eitthvað fór það fyrir
brjóstið á útvarpsstjórum og létu þeir
hann flakka. Eftir það rigndi hins-
vegar inn kvörtunum og hlustendur
hringdu inn í hrönnum til að lýsa yfir
stuðningi sýnum við Blackwell og
Cliff Richards. Sáu stjórar sig því til-
neydda til að endurráða þennan dáða
útvarpsmann og fer hann í loftið á ný
í dag …
Leikarinn Alec Baldwin varð ádögunum að lúta í lægra haldi í
forræðisdeilu við fyrrum eiginkonu
sína, Kim Basinger, um forræði yfir
dóttur þeirra, hinni átta ára Ireland.
Honum er þó leyfilegt að hitta
dóttur sína aðra hverja helgi en verð-
ur að hafa „kvenkyns aðstoðarmann“
við höndina með-
an Ireland dvelst
hjá honum.
Þau Basinger
og Baldwin voru
gift í 10 ár en hefa
staðið í forræð-
isdeilunni síðan
þau skildu fyrir
tveimur árum …
BræðurnirLiam og
Noel Gallagher í
hljómsveitinni
Oasis leggja
mikla áherslu á að
komið verði í veg
fyrir fíkniefna-
notkun baksviðs á
fyrirhugðum tón-
leikum sveitarinnar á tónleikahátíð-
inni Glastonbury. Þeir segja að engin
ólögleg efni megi sjást á tónleikum
þeirra.
Götublaðinu Daily Star finnst af-
staða bræðranna athygliverð þar sem
þeir hafi í gegnum tíðina komist í
kastljós fjölmiðla fyrir slark og áflog.
Þeir tímar eru nú að baki því Gallag-
her-bræður eru orðnir ráðsettir feð-
ur …
Fólk folk@mbl.is