Morgunblaðið - 25.06.2004, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
SÍMINN hefur undanfarið ár sett upp
móðurstöðvar eða senda fyrir farsíma í
sextán ferjum og farþegaskipum í Evrópu.
Stöðvarnar tengjast símakerfi í landi
gegnum gervihnött og gera farþegum
skipanna kleift að tala í farsíma þótt skipið
sé utan þjónustusvæða símafyrirtækja í
landi.
Eins og stendur er um að ræða ferjur og
farþegaskip á innhöfum í Evrópu, á Adría-
hafi, Eystrasalti og Norðursjó.
Síminn/12
Síminn á sjóinn
ÁRNI Þór Sigurðsson var
endurkjörinn forseti borgar-
stjórnar við upphaf borgar-
stjórnarfundar
í gær með
samhljóða at-
kvæðum allra
borgarfull-
trúa, en eftir
því sem næst
verður komist
er þetta í
fyrsta skipti
sem allir
borgarfulltrú-
ar greiða fulltrúa meirihlutans
atkvæði sitt.
„Ég lít þannig á að þetta sé
góður stuðningur við þau störf
sem ég hef unnið að undanfar-
in tvö ár sem forseti og þær
breytingar sem ég hef beitt
mér fyrir á starfsháttum í
borgarstjórn og aðstöðumálum
borgarfulltrúa,“ sagði Árni
Þór að fundi loknum.
Hefð hefur verið fyrir því að
minnihluti sitji hjá við kosn-
ingu forseta borgarstjórnar,
en sjálfstæðismenn og fulltrúi
Frjálslynda flokksins í borg-
arstjórn rufu þá hefð að eigin
sögn vegna ánægju með
hvernig Árni Þór hefur sinnt
starfi forseta, og því hvernig
hann hefur beitt sér fyrir
breytingum á starfsháttum
borgarstjórnar.
Gerir fundina
áheyrilegri
Árni segist vonast til að þær
breytingar á fyrirkomulagi
borgarstjórnarfunda sem hann
hefur beitt sér fyrir geti kom-
ist á þegar borgarstjórn kem-
ur saman á ný eftir sumarfrí,
en áður þarf félagsmálaráðu-
neytið að fjalla um málið.
Breytingarnar miða að því að
gera borgarstjórnarfundi
markvissari og áheyrilegri fyr-
ir borgarstjórnarfulltrúa jafnt
sem almenning.
Samstaða
um kjör for-
seta borg-
arstjórnar
Opið/11
Árni Þór
Sigurðsson
NEFND forstjóra Landspítala – háskólasjúkra-
húss (LSH), segir í nýrri skýrslu um ferliverk,
að efla þurfi verulega starfsemi dag- og göngu-
deilda spítalans. Jafnframt telur hún að skoða
þurfi vel möguleika á að auka þjónustu, sem
veitt er í heimahúsum, til að draga úr þörf fyrir
innlögn á LSH og stytta legutíma. Leggur
nefndin til fjölmargar tillögur í þessu sambandi í
fyrrgreindri skýrslu. Meðal annars leggur hún
til að leitað verði eftir því við heilbrigðisyfirvöld
að fjármögnun vegna göngudeildarþjónustu á
LSH verði breytt „og upp teknar verktengdar
greiðslur til spítalans vegna göngudeildarverka
í stað árlegra heildargreiðslna“, eins og segir í
skýrslunni.
Magnús Pétursson, forstjóri LSH, fagnar
skýrslunni og segir hana „stefnumótandi skjal
fyrir spítalann“. Stjórnarnefnd spítalans hefur
fjallað um skýrsluna og tekur undir efni hennar.
Magnús segir næstu skref að kynna hana fleiri
aðilum sem málið snertir. Hann leggur áherslu á
að breiður hópur áhrifafólks innan spítalans hafi
verið í nefndinni sem samdi skýrsluna.
Formaður nefndarinnar er Jóhannes M.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga. „Það
má segja að sífellt vaxandi þjónusta án innlagn-
ar verði dýrari fyrir einstaklingana þó svo hún
verði ódýrari fyrir samfélagið,“ segir hann að-
spurður, en þegar sjúklingar eru lagðir inn á
spítala, þ.e. verða yfir nótt, þá borga þeir ekkert
fyrir þjónustuna. Á hinn bóginn greiða sjúkling-
ar fyrir svokölluð ferliverk, en það eru þau verk
sem unnin eru á göngudeildum og dagdeildum.
Í markmiðskafla skýrslunnar segir: „Starf-
semi dag- og göngudeilda þarf að efla svo hægt
sé að mynda eðlilegt flæði milli mismunandi
þjónustustiga á LSH, þ.e. sjö daga-, fimm daga-
og dag- og göngudeilda til að bæta þjónustu við
sjúklinga og hagræða í rekstri.“
Í takt við framfarir
Þá segir að greiður aðgangur skuli vera að
þjónustu á göngudeildum, jafnt sérfræðilækna
sem annarra starfsmanna spítalans. Jóhannes
segir að styrking göngudeildar- og dagdeildar-
þjónustu sé þróun sem átt hafi sér stað hér á
landi sem og erlendis. Sú þróun taki mið af mik-
illi þróun innan læknisfræðinnar, t.d. vegna
tækninýjunga og nýrra lyfja.
Í skýrslunni er m.a. lagt til að uppbygging
sérhannaðs húsnæðis fyrir ferliverkastarfsemi
verði eitt af forgangsverkefnum við hönnun og
byggingu nýs húsnæðis spítalans. „Húsnæðið
verði í nánum tengslum við legudeildarhúsnæði
spítalans, rannsóknardeildir og myndgreining-
ardeildir og ætlað fyrir bráðamóttöku, göngu-
og dagdeildir og minni háttar skurðaðgerðir.“
Skýrsla nefndar forstjóra Landspítala – háskólasjúkrahúss um ferliverk
Starfsemi göngu- og dag-
deilda verði verulega efld
Dýrara fyrir einstak-
lingana en ódýrara
fyrir samfélagið
VÉDÍS Vaka Kristjánsdóttir, 6 ára gömul
stelpa, hefur haft í nógu að snúast und-
anfarinn mánuð en hún hefur haft eftirlit
með þresti sem gerði sér hreiður í blóma-
potti í garði ömmu hennar við Ofanleiti í
Reykjavík. Þrösturinn verpti fimm eggj-
um í hreiðrið og fór svo að lokum að þrír
ungar komust á legg.
Védís Vaka segir að hún hafi haft svo-
litlar áhyggjur af þrastarmömmunni þar
sem verið var að mála húsið við Ofanleiti.
Að þessu sinni var ekki málað svæðið fyr-
ir ofan blómapottinn en eins og Védís
Vaka segir hefði annars kannski verið
málaður goggurinn á einum fuglanna.
„Mamman var hrædd en ég sagði henni
bara að vera róleg.“ Védís Vaka segist
ekki viss um hvort það verði hreiður á
sama stað á næsta ári en ef svo fer muni
hún ábyggilega passa vel upp á að þrast-
armamma verði ekki fyrir óþarfa ónæði.
Ungur
fuglabóndi
við Ofanleiti
SEINKA varð síðari hluta frumsýningar söngleiks-
ins FAME í Vetrargarði Smáralindar í gærkvöldi
meðan sýningargestir horfðu spenntir á síðustu
mínútur leiks Portúgala og Englendinga á EM í fót-
bolta. „Stemningin var rosaleg og mikið skríkt,“
sagði Skarphéðinn Guðmundsson, blaðamaður
Morgunblaðsins, sem var meðal gesta á sýningunni.
„Áhorfendur voru ekki komnir inn í salinn þegar
hléið átti að vera búið, svo það var ekki hægt að
byrja aftur. Um leið og leiknum lauk fóru allir inn í
sal og sýningin gat hafist að nýju,“ sagði Skarphéð-
inn ennfremur. Löngu var uppselt á frumsýninguna
sem og næstu sýningar. Söngleikurinn byggist á
samnefndri kvikmynd Alans Parkers frá 1980. Þau
Ragnhildur Steinunn og Jónsi voru að vonum kát að
frumsýningu lokinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Frami eða fótboltinn?
Ekki hægt að hefja sýninguna eftir hlé vegna EM
ÞÓ AÐ Ísland eigi ekki fulltrúa í
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu, sem nú fer fram í Portúgal,
er ekki þar með sagt að keppnin sé
Íslendingum algerlega óviðkom-
andi. Íslenskir saltfiskframleið-
endur nutu góðs af keppninni í
Portúgal, því að í aðdraganda henn-
ar var óvenju góð sala á saltfiski til
landsins.
„Það hægist oft á sölunni á sumr-
in en núna var sölutímabilið þrem-
ur til fjórum vikum lengra en
venjulega og reyndar fór ekki að
hægjast um fyrr en keppnin byrj-
aði,“ segir Þórarinn Kr. Ólafsson,
vinnslustjóri í fiskverkuninni Þrótti
ehf. í Grindavík.
EM hefur áhrif
á saltfisksölu
Þyngri/11
EKKI er talið nauðsynlegt að breyta
landabréfum og fræðibókum þegar í stað
vegna niðurstaðna nýrra mælinga á hæð
Hvannadalshnúks, hæsta tinds Íslands.
Komið hefur í ljós, að hnúkurinn er 2.111
metrar á hæð, en hingað til hefur verið
stuðst við 100 ára mælingu danska land-
mælingamannsins J. P. Koch á vegum
danska herforingjaráðsins, en hann mældi
hnúkinn 2.119 metra háan. Óvissan í þeirri
mælingu var 5 til 10 metrar, en nú er óviss-
an einungis um einn metri.
Hvannadals-
hnúkur lægri en
áður var talið
Hvannadalshnúkur/4
♦♦♦
♦♦♦