Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 1
FYRSTU skóflustungur að
Fjarðaáli, álveri Alcoa, voru teknar
í gær á jörðinni Hrauni við Reyð-
arfjörð í blíðskaparveðri að við-
stöddum boðsgestum. Miklar ör-
yggisráðstafanir voru gerðar á
staðnum og var gestum ekið í rút-
um frá Reyðarfirði. Friðsöm mót-
mæli voru við afleggjarann að ál-
verslóðinni, sem skipulögð voru af
Náttúruvaktinni, baráttuhópi fyrir
náttúruvernd og virkara lýðræði.
Við athöfnina sagði Tómas Már
Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, að
merkum áfanga væri náð og dag-
urinn í gær væri stór í sögu Aust-
fjarða og landsins alls. Álverið
myndi ekki aðeins skapa tekjur á
Austfjörðum heldur fyrir þjóðina
alla. Á framkvæmdatíma til ársins
2007 munu skapast um 2.300 árs-
verk og allt að 750 ný störf, þar af
um 450 við álverið. Vegna fram-
kvæmdanna er reiknað með að
landsframleiðsla aukist á árunum
2003 til 2006 um 3% og árlegur
hagvöxtur á tímabilinu verði 1,5%
meiri en ella.
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri í Fjarðabyggð, sagði við at-
höfnina að ekki aðeins sveitarfélagið
þyrfti að standa sig í uppbyggingu
þjónustu á svæðinu heldur ríkis-
valdið einnig, s.s. í heilbrigðis- og
menntamálum og löggæslu. Til þess
þyrfti aukna fjármuni og aukna
starfsemi. Benti hann á að tekju-
skattur ríkisins af starfsmönnum
við byggingu álversins yrði um 4
milljarðar króna. Með þeim fjár-
munum mætti fjármagna opinbera
þjónustu á svæðinu.
Valgerður Sverrisdóttir sagði
við Morgunblaðið, spurð um við-
brögð við orðum Guðmundar, að
þessi vinna væri þegar hafin innan
samstarfsnefndar stjórnvalda,
heimamanna, Alcoa og Bechtel.
Mikilvægt væri að ræða um þessar
aðstæður og bregðast á einhvern
hátt við. Átti hún ekki von á öðru en
að ríkisstjórnin myndi í fjárlaga-
gerð sinni taka tillit til aðstæðna á
Austurlandi.
750 ný störf skapast
vegna álvers Alcoa
Ríkið þarf að standa sig í uppbyggingu, segir bæjarstjóri Fjarðabyggðar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Álskóflum beitt í Reyðarfirði
SKÓFLUSTUNGUR teknar að nýju álveri Fjarðaáls í Reyðarfirði:
Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Bernt Reitan, for-
stjóri frumframleiðslu hjá Alcoa, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra og Andy Greig, yfirmaður hjá Bechtel. Tómas Már Sigurðs-
son, forstjóri Fjarðaáls, fylgist með álengdar. Stór dagur/26–27
STOFNAÐ 1913 185. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ást, vin-
átta og hár
Lífspeki
trúðsins
Atvinnutrúður heldur námskeið
á Íslandi Daglegt líf
Íþróttir
Víkingar úr fallsæti Styrkleika-
listi í handbolta Hörð keppni í
línubeitingu og gróðursetningu
Hippastemmning verður við völd
í Austurbæ í kvöld Menning
Efa ágæti
dagvistunar
BRESKA stjórnin er að
endurmeta fyrri áætlanir
sínar um barnagæslu og
leikskóla vegna vaxandi
vísbendinga um að dag-
vistun barna yngri en
tveggja ára geti leitt til
andfélagslegrar hegðunar
og árásargirni.
Breska stjórnin hefur
lagt á það mikla áherslu
að konur hverfi sem fyrst aftur til vinnu eftir
barnsburð en nú ætlar hún að venda sínu
kvæði í kross í þeim efnum og lengja barns-
burðarleyfið. Var búist við því í gær að
Margaret Hodge, sem fer með málefni barna
í bresku stjórninni, myndi tilkynna að barns-
burðarleyfið yrði aukið úr sex mánuðum í
eitt ár. Kom þetta fram í The Guardian.
Ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu er
sú að niðurstaða rannsókna víða um heim er
mjög lík og bendir til að dagvistun barna
yngri en tveggja ára geti haft slæm áhrif á
tilfinninga- og félagslegan þroska þeirra.
Þetta snýst hins vegar við séu börnin orðin
þriggja ára eða eldri.
Ástæðan fyrir þessum óhollu áhrifum á
börnin er meðal annars sögð sú að þau fái
ekki nógu mikla athygli og umönnun nema
starfsfólkið á dagvistunarheimilunum sé
þeim mun fleira. Annað er að heimilunum
helst mjög illa á fólki enda launin lág og kröf-
ur til starfsreynslu og þekkingar því litlar.
Margaret Hodge
Olíuverð
snarhækkar
New York. AFP.
HEIMSMARKAÐSVERÐ
á olíu snarhækkaði í gær
eftir að Tom Ridge, banda-
ríski heimavarnaráðherr-
ann, varaði við því að al-
Qaeda hefði í hyggju að
fremja hryðjuverk í Banda-
ríkjunum til að trufla for-
setakosningarnar þar í nóv-
ember.
Viðmiðunarverð á hrá-
olíu á markaðnum í New York hækkaði um
1,25 dollara í 40,33 dollara á fatið. Er þetta í
fyrsta skipti frá 1. júní sem olíuverðið fer yfir
40 dollara. Brent-hráolía úr Norðursjó hækk-
aði um 1,16 dollara í 37,77 í London.
Ridge sagði að bandarísk yfirvöld hefðu
fengið „trúverðugar upplýsingar“ um að al-
Qaeda ráðgerði hryðjuverk í Bandaríkjunum
fyrir kosningarnar, hugsanlega í tengslum við
landsfund demókrata í Boston 26. til 29. júlí
eða landsfund repúblikana í New York 30.
ágúst til 2. september.
Tom Ridge
AÐ MINNSTA kosti ellefu manns
lágu í valnum eftir að uppreisn-
armenn skutu allt að 38 sprengjum
á höfuðstöðvar íraskra þjóðvarð-
liða í borginni Samarra norður af
Bagdad í gær.
Bandarískir hermenn héldu vörð
um bygginguna þegar árásin var
gerð. Fimm þeirra féllu og tuttugu
særðust.
Tveir þjóðvarðliðar biðu einnig
bana og fjórir særðust. Bandarísk-
ir hermenn og íraskir þjóðvarð-
liðar héldu uppi hörðum árásum á
uppreisnarmennina í nokkrar
klukkustundir. Talsmaður Banda-
ríkjahers sagði að fjórir uppreisn-
armenn hefðu fallið þegar her-
þyrla skaut flugskeyti á byggingu í
borginni.
Læknar sögðu að fjögur lík
hefðu verið flutt á sjúkrahús í
Samarra en ekki var ljóst hvort
það voru lík mannanna fjögurra
sem féllu í flugskeytaárásinni. Um
30 óbreyttir borgarar særðust, að
sögn læknanna.
Heilbrigðisráðuneytið í Bagdad
skýrði frá því í gær að 388 Írakar
hefðu beðið bana og 1.680 særst í
átökunum í Írak í júnímánuði ein-
um.
Blóðugur bardagi í Írak
Samarra. AFP.
Nær 400 Írakar
féllu í júnímánuði
Reuters
Alþjóða-
dómstóllinn
úrskurðar
um múrinn
PALESTÍNSKUR drengur á
reiðhjóli í bakgarði heimilis síns
nálægt umdeildum múr sem Ísr-
aelar eru að reisa til að aðskilja
Jerúsalem frá Vesturbakkanum.
Alþjóðadómstóllinn í Haag birtir
í dag úrskurð sinn um hvort að-
skilnaðarmúrinn, sem liggur um-
hverfis svæði Palestínumanna á
Vesturbakkanum, sé lögmætur.
Nasser al-Qidwa, fulltrúi Palest-
ínumanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, kvaðst í gær vera bjart-
sýnn á að dómstóllinn kæmist að
þeirri niðurstöðu að múrinn væri
ekki lögmætur. Úrskurðurinn er
ekki bindandi.
♦♦♦