Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ar
gu
s
04
-0
40
3
Það liggur fyrir að ánæsta ári verðaopnuð tvö ný hótel
í miðbæ Reykjavíkur.
Unnið er að því að breyta
húsi Eimskipafélagsins og
verður þar 71 herbergi
samkvæmt fyrirliggjandi
teikningum. Á horni Tún-
götu og Aðalstrætis er
verið að byggja hótel með
89 tveggja manna her-
bergjum. Þá eru áform
uppi um að reisa 200 her-
bergja hótelturn við
Grand hótel Reykjavík.
Ekki liggur fyrir dagsetn-
ing hvenær ráðist verður í
þær framkvæmdir en
mestum undirbúningi er
lokið. Ljóst er að sé eingöngu
horft til hótela þá fjölgar þeim um
tvö á höfuðborgarsvæðinu á
næsta ári og herbergjum um 160.
Ekki liggur fyrir hvaða breyting
verður á fjölda herbergja gisti-
heimila.
Magnús Haraldsson, einn eig-
enda gamla Landssímahússins
við Austurvöll, segir nú verið að
teikna og hanna nýtt hótel í hús-
inu. Sú vinna sé langt komin en
enn sé verið að breyta teikning-
um. Þegar því er lokið verður
óskað eftir samþykki skipulags-
og byggingasviðs Reykjavíkur-
borgar fyrir breytingunum.
Gangi það eftir segir Magnús að
hægt verði að hefja framkvæmdir
strax næsta vetur.
Mikil fjölgun gistirýma
Síðasta árið hefur gistirými
hótela og gistiheimila á höfuð-
borgasvæðinu aukist um tæp
20%. Munar þar mestu um
stækkun Nordica hótel og Foss-
hótel Barón við Barónsstíg og til-
komu Hótel Plaza við Ingólfstorg.
Á sama tíma hefur gistinóttum
fjölgað um 5% fyrstu fimm mán-
uði þessa árs. Þar af leiðandi hef-
ur nýting á rúmum á hótelum í
Reykjavík lækkað úr 55% árið
2000 í 44% á síðasta ári.
Þorleifur Þór Jónsson, hag-
fræðingur Samtaka ferðaþjónust-
unnar, segir ekki æskilegt að svo
mikil fjölgun gistirýma verði á
stuttum tíma. Heppilegra sé að
uppbyggingin eigi sér stað jafn-
óðum og fjölgun ferðamanna.
Hann segir engan stýra þessari
þróun og framboðið aðlagi sig að
eftirspurninni á næstu árum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þorleifi er hægt að líta á aukn-
ingu í framboði á gistirými sem
einfalda hagfræðijöfnu. Öðrum
megin séu væntanlegar tekjur af
hverju herbergi á ákveðnum tíma
og hinum megin er kostnaður við
að bæta herbergi við. Sá kostn-
aður skiptist í hreinan bygging-
arkostnað, þá verðhækkun sem
geti orðið á húsnæði á tímabilinu
og að endingu vaxtakostnað láns-
fjármagns eða þann arð sem
hægt er að hafa af eigin fé sé það
til staðar í öðrum fjárfestingum.
Séu tekjur hærri en gjöld er bætt
við herbergi, annars ekki.
Hagkvæm áform
„Það eru stór áform komin
langt, eins og stækkunin á Grand
hóteli, sem hafa alla burði til að
vera hagkvæm viðbót vegna þess
að sameiginlegt rými nýtist vel.
Það er mjög þungur rekstur að
fara að breyta húsnæði í hótel í
samkeppni við slíkt,“ segir Þor-
leifur.
Hann hefur áætlað vöxt ferða-
þjónustunn-
ar til ársins
2010 og ger-
ir ráð fyrir
svipuðum
vexti og ver-
ið hefur.
Gangi það
eftir muni
gistinóttum í
Reykjavík
fjölga úr ríf-
lega 700 þúsund 2003 í rúma
milljón árið 2010. Eftirspurninni
verði mætt með stækkunum og
nýbyggingum þannig að senni-
legt sé að hótelherbergjum fjölgi
úr rúmlega 2.500 í 3.400 á sama
tímabili.
Stærri rótgrónu hótelin hafa í
auknum mæli lagt meiri áherslu á
íburð í bland við venjuleg her-
bergi. Hótel Eimskip á að vera
fjögurra stjörnu hótel með fjór-
um tegundum herbergja; venju-
legum, lúxus, minni svítum og
tveimur glæsisvítum. 101 hótel er
einnig frekar lítið gæðahótel með
38 herbergjum.
Þorleifur segir erfitt að segja
fyrir um hvaða tegund gistingar
verði ofan á í framtíðarhótelbygg-
ingum. Þó sé líklegt að áhersla
verði lögð á aðstöðu sem henti
hinum almenna ferðamanni án
þess að lagt sé í þann íburð og að-
stöðu sem oft einkenni dýrustu
hótelin. Það sé væntanlega ekki
markaður fyrir nema eitt slíkt
hótel á landinu og það verði vænt-
anlega reist í tengslum við tón-
listar- og ráðstefnuhús við Aust-
urhöfn.
Samhliða byggingu tónlistar-
húss og ráðstefnumiðstöðvar við
Austurhöfnina í Reykjavík, sem á
að vera tilbúin til notkunar 2009,
er stefnt að því að reisa hótel í
háum gæðaflokki. Ekki liggur
fyrir hver muni reka hótelið.
Áform Austurhafnar-TR, sem er í
eigu ríkisins og Reykjavíkurborg-
ar, er að reisa fjögurra stjörnu
hótel sem gæti verið með 196
venjuleg herbergi.
Fréttaskýring | Gistirými eykst mikið
Fleiri lúxus-
herbergi
Gamla Landssímahúsinu breytt í hótel
– eftir að fá samþykki borgarinnar
Plaza, nýtt hótel við Aðalstræti.
Færri bjóða heimagistingu
Ferðafólki bjóðast fleiri gisti-
möguleikar en á hótelum og
gistiheimilum. Má nefna far-
fuglaheimili, orlofshús og heima-
gistingu. Athygli vekur að fram-
boð rúma í heimagistingu hefur
minnkað frá árinu 2000 þegar
1.358 rúm voru í boði en 818 árið
2003 samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni. Gististöðum hefur
líka fækkað á sama tíma úr 137 í
106. Fjöldi rúma á farfuglaheim-
ilum og orlofshúsum stendur
nánast í stað.
bjorgvin@mbl.is
,-. ,-% ,-/ ,-0 ,-1 ,-2
3!
4!' !
4
/%--
/---
%&--
%2--
%0--
%%--
%---
.&--
NÚ er tími sóleyja á Norðurlandi og kýrnar á Höllu-
stöðum í Blöndudal kunna vel við sig innan um þær.
Reyndar er brennisóley ekki vinsælt fóður búpenings.
Einmitt þess vegna kemur þeim svo vel saman hér,
blómunum og kúnni. Í erli nútímans er jórtrandi kýrin
til að minna á að tími er til alls sem skiptir máli.
Morgunblaðið/BFH
Kýr í blómahafi á Höllustöðum
ALÞJÓÐLEG samtök um vetnis-
orku, International Association for
Hydrogen Energy, veittu Braga
Árnasyni, prófessor við Háskóla Ís-
lands, nýlega Jules Verne-verðlaun-
in fyrir að hafa með samstarfi há-
skóla, stjórnvalda og atvinnulífs
unnið að því að gera Ísland að fyrsta
landi veraldar er byggist á vetnis-
hagkerfi árið 2030. Bragi tók við
verðlaununum á heimsráðstefnu um
vetnisorku sem fram fór í Yokohama
í Japan um síðustu mánaðamót.
„Þetta er mjög merkilegt. Þetta
er alþjóðleg viðurkenning,“ segir
Bragi, sem segir að þetta þýði að
Háskóli Íslands sé leiðandi í rann-
sóknum á vetnisorku í heiminum og
hagnýtingu vetnisorku. Verðlaunin
voru veitt í fyrsta skipti á 1.100
manna samkomu
í Japan.
Bragi segir að
honum hafi ekki
orðið neitt sér-
staklega við að
heyra af verð-
laununum. „Ég er
nú búin að fá svo-
lítið af svona dóti
áður, íslenskum
og þýskum fálka-
krossum og hinu og þessu,“ segir
Bragi. Í fréttatilkynningu frá HÍ
segir að í hinu alþjóðlega vísinda-
samfélagi sé skólinn talinn leiðandi á
sviði rannsókna og hagnýtingar
vetnisorku, sem sé ekki síst fyrir
einstakt frumherjastarf Braga
Árnasonar.
Jules Verne-verðlaunin
fyrir vetnisrannsóknir
Bragi Árnason
prófessor.
ALLIR hestar Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins í Laugardal fóru í
hagagöngu austur fyrir fjall síðast-
liðinn þriðjudag. Hestarnir eru búnir
að þjóna sínu hlutverki vel yfir vet-
urinn en aðalhlutverk þeirra er fyrir
börnin sem sækja garðinn.
Hestarnir sem fóru í sumarfrí eru
hryssurnar Sigurrós og Dagvör og
folinn Fylkir. Skjóni og Skuggi frá
Hestamiðstöðinni í Hindisvík munu
leysa þeirra hlutverk í hestateym-
ingunni fyrir gesti húsdýragerðsins.
Þá er Hegri frá Ríp kominn aftur í
húsdýragarðinn en hann er ekki al-
veg fulltaminn og getur því ekki
sinnt hestateymingu. Hryssan
Skerjála, frá Efri-Brú, er einnig í
heimsókn ásamt tæplega mánaðar-
gömlu folaldi sínu, Lipurtá.
Hestar fá
sumarfrí