Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÓDYSSEIFSKVIÐA HÓMERS Í NÝRRI ÚTGÁFU
GLÆSILEG ÞÝÐING SVEINBJARNAR
EGILSSONAR BIRTIST HÉR Í NÝRRI
ÚTGÁFU SVAVARS H. SVAVARS-
SONAR SEM JAFNFRAMT SKRIFAR
EFTIRMÁLA. VERKINU FYLGJA
NAFNASKRÁR OG SKÝRINGAR AUK
KORTS SEM SÝNIR HRAKNINGA
ÓDYSSEIFS UM MIÐJARÐARHAFIÐ.
KOMIN ÚT Í KILJU!
ÖNDVEGISVERK
HEIMSBÓKMENNTANNA
VERÐ: 1.980 KR.
BJARTUR
„BREYTUM þessu!“ er heiti umferð-
aröryggisáætlunar í tíu liðum sem
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hratt úr vör í gær og sem ætl-
að er að fækka alvarlegum slysum á
þjóðvegum landsins. Einbreiðum
brúm verður fækkað, hraðaeftirlit
aukið og unnið að því að banna
lausagöngu búfjár.
„Á hverju ári deyja milli tuttugu
og þrjátíu Íslendingar í umferðar-
slysum. Auk þess slasast tugir svo al-
varlega að þeir verða aldrei samir á
eftir. Það er óeðlilegt og óásættan-
legt,“ sagði samgönguráðherra í
ræðu sinni á blaðamannafundi í gær.
Myndavélaeftirlit verði aukið
Í samtali við Morgunblaðið sagði
hann að stóra málið væri að hægja á
umferðarhraðanum og fá fólk til að
aka á löglegum hraða. „Við verðum
að auka eftirlitið með ökuhraðamæl-
ingum og myndatökum. Það mun
verða sett af stað átak í því og það
þarf að gerast í samvinnu við lög-
regluna,“ sagði Sturla. Hann sagði
að reynslan, t.d. í Hvalfjarðargöng-
unum, sýndi að myndavélaeftirlit
hefði þau áhrif að ökumenn gættu
sín betur. Áður en langt um líður
yrði væntanlega sagt frá innkaupum
og uppsetningu á myndbúnaði.
Í ræðu sinni sagði ráðherra að
myndavélar sem mæla hraða á
ákveðnum vegaköflum væru sér-
staklega áhugaverðar. „Þá vinna
tvær myndavélar saman, önnur tek-
ur mynd í upphafi vegarkaflans og
hin í lokin. Síðan er reiknaður út
meðalhraði bílsins. Slíkar mynda-
vélar gætu haft mikil áhrif í dreif-
býli þar sem eftirlit er lítið en hrað-
inn oft þeim mun meiri.“
Sturla nefndi einnig tölvukubba í
hvern bíl, þráðlausan ökurita sem
fylgist með aksturslagi, sem er lausn
sem nú er orðin tæknilega fram-
kvæmanleg. „Þetta er lausn sem
vert er að skoða með tilliti til um-
ferðaröryggismála um leið og þar
getur legið framtíðarlausn í gjald-
töku á vegakerfinu. Hins vegar er
alveg ljóst að kerfi eins og þetta yrði
að taka tillit til persónuverndarsjón-
armiða. Slíkt kerfi mætti aldrei vera
hægt að nota til að fylgjast með ferð-
um fólks,“ sagði Sturla.
Engar einbreiðar brýr
verði á hringveginum
Einbreiðum brúm verður fækkað
og er gert ráð fyrir að á næstu 12
mánuðum verði 20 einbreiðar brýr
aflagðar. Aðspurður sagði Sturla að
enn væru margar einbreiðar brýr
eftir, en að í endurskoðaðri sam-
gönguáætlun sem lögð verður fram
næsta vetur yrði sett fram áætlun
um hvenær stefnt er að því að ein-
breiðar brýr verði algjörlega horfn-
ar af hringveginum.
Þá verður lögð áhersla á að ná
samkomulagi við sveitarstjórnir um
allt land til að banna lausagöngu bú-
fjár og hrossa. „Ég mun leggja mjög
hart að sveitastjórnum að koma til
samstarfs við Vegagerðina og Um-
ferðarstofu um að girða vegi og
banna lausagöngu búfjár meðfram
þjóðvegum. Ég tel að það sé mikil
ábyrgð sem fylgir því hjá sveitar-
stjórnum að leyfa þetta,“ sagði
Sturla.
Einnig er hafin vinna við útfærslu
á reglugerð vegna svokallaðrar
„ökugerðishugmyndar“, en í þeirri
reglugerð er öllum sem taka bílpróf
skylt að taka tíma á sérstökum æf-
ingasvæðum sem nefnast ökugerði.
Þar er ætlunin að nemendur öðlist
skilning á því hversu bjargarlausir
þeir eru t.d. í hálku ef ekið er hraðar
en aðstæður leyfa. Þá verða slysa-
rannsóknir efldar og vegamerk-
ingar bættar, sérstaklega leiðbein-
andi hraðamerkingar á erfiðum
vegaköflum á borð við krappar
beygjur.
Sturla sagði að alltof margir er-
lendir ferðamenn lendi í slysum á
þjóðvegunum. Muni Umferðarstofa
gefa út sérstakt myndband fyrir þá
svo hægt verði að undirbúa þá betur
en nú er gert.
Umferðareftirlit aukið
með hraðamælingum
Morgunblaðið/Þorkell
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti „Breytum þessu“, aðgerða-
áætlun í tíu liðum, sem er ætlað að fækka alvarlegum slysum á þjóðvegum
landsins. Mikilvægast telur ráðherra að dregið verði úr umferðarhraða.
ÁSKRIFENDUM Morgunblaðs-
ins býðst nú sú nýjung hjá Frí-
þjónustu blaðsins að sækja blað
sitt á flestum sölustöðum Morg-
unblaðsins úti um landið, gegn
framvísun Fríþjónustumiða.
Áskrifendur sem vilja nota þessa
þjónustu þurfa að hafa samband
við áskriftardeild til að fá Fríþjón-
ustumiðana senda. Þetta er sér-
staklega handhægt fyrir þá
áskrifendur sem ekki ætla sér að
dvelja lengi á sama stað í fríinu.
Jafnframt býðst sú nýjung að
láta senda blaðið til vina eða ætt-
ingja meðan á fríinu stendur.
Undanfarin sumur hefur áskrif-
endum staðið til boða að láta safna
blaðinu fyrir sig á meðan þeir eru í
fríi eða að fá blaðið sent á nýjan
dvalarstað svo fremi blaðberi sé á
staðnum eða póstur borinn út. Þá
býðst áskrifendum áfram að fá
blaðið sent plastað og merkt á
valda sölustaði blaðsins nærri
helstu sumardvalarsvæðum.
Ný þjónusta fyrir áskrif-
endur Morgunblaðsins
„Ó, AÐ við hefðum aldrei sést. Elsku
vinurinn góði.“ Undir nýrri auglýs-
ingaherferð Umferðarstofu, sem er
ætlað að draga úr umferðarhraða,
hljóma vísur Vatnsenda-Rósu meðan
flogið er yfir götur og vegi þar sem
sést móta fyrir andlitum fólks á öll-
um aldri þrykktum í malbikið. Þessi
andlit tákna fórnarlömb umferðar-
slysa. Herferðinni er ætlað að vekja
fólks til umhugsunar um umferðar-
hraða og er vonin sú að boðskapur-
inn skili sér í betri og öruggari um-
ferð. Auglýsingarnar munu birtast í
sjónvarpi, útvarpi, dagblöðum og á
biðskýlum strætisvagna.
Samkvæmt upplýsingum Umferð-
arstofu er umferðarhraði meðal
helstu orsaka banaslysa og annarra
alvarlegra umferðarslysa, sam-
kvæmt niðurstöðum slysarann-
sókna. Allar rannsóknir sýna að til
að ná árangri í baráttunni gegn um-
ferðarslysum skipti miklu máli að
umferðareftirlit sé markvisst. Sam-
hliða auglýsingaherferðinni mun
Umferðarstofa hvetja öll lögreglu-
umdæmi landsins til samstarfs til að
ná sem mestum árangri í baráttunni
við hraðakstur.
Líkur á slysi margfaldast
eftir því sem hraðinn eykst
Í upplýsingum frá Umferðarstofu
segir að ekki sé ólíklegt að hægt
væri að fækka banaslysum og öðrum
alvarlegum slysum um allt að 30% ef
hraðatakmarkanir væru virtar.
Líkur á slysi aukast eftir því sem
umferðarhraðinn er meiri. Umferð-
arstofa tekur dæmi af götu þar sem
hámarkshraði er 60 km/klst. Við
hverja fimm kílómetra sem menn
aka hraðar en 60 tvöfaldast hættan á
að óhapp eigi sér stað. Þannig er hún
tvöfalt meiri á 65 km/klst, fjórföld á
70 km/klst, átta sinnum meiri á 75
km/klst og svo framvegis.
Helstu orsakir
banaslysa of
mikill ökuhraði
Vilja vekja fólk til umhugsunar
Hér sjást tvö andlit þrykkt í veginn
við einbreiða brú en þær geta verið
mjög hættulegar í umferðinni – og
þeim mun hættulegri eftir því sem
hraðinn er meiri.
EINKAHLUTAFÉLAGIÐ Múla-
virkjun er að hefja framkvæmdir við
tveggja megavatta virkjun í Straum-
fjarðará á Snæfellsnesi, skammt
fyrir neðan útfall hennar úr Baul-
árvallavatni. Samningar voru undir-
ritaðir í fyrradag, annars vegar við
Sparisjóð Mýrasýslu um fjármögn-
un og hins vegar við Hitaveitu Suð-
urnesja um orkukaup. Múlavirkjun
ehf. er í eigu þriggja aðila, eigenda
jarðanna Dals og Hofsstaða í Eyja-
og Miklaholtshreppi og Bjarna Ein-
arssonar á Tröðum í Snæfellsbæ.
Aðdragandi framkvæmdanna er
tvö ár. Alls veittu sautján aðilar um-
sögn sína og ellefu leyfisveitendur
eru að virkjuninni. Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen hannaði virkj-
unina í aðalatriðum, en að auki komu
Birkir Guðmundsson og fleiri að því
máli. Vélabúnaður verður keyptur
frá Austurríki. Framkvæmdir munu
hefjast nú eftir helgina við vegar-
lagningu að athafnasvæðinu og
gangsetning virkjunarinnar er svo
áætluð hinn 30. mars 2005.
Tímamótasamningur fyrir HS
Við undirskriftirnar kom fram hjá
forsvarsmönnum Múlavirkjunar að
Sparisjóður Mýrasýslu stæði vel við
slagorðið „hornsteinn í héraði“ með
því að fjármagna virkjunina, en
kostnaður er áætlaður 288 milljónir
króna. Þá lýstu þeir ánægju með
áræði og framsýni Hitaveitu Suður-
nesja, sem gerir tólf ára orkukaupa-
samning við virkjunina.
Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja
kvað fyrirtækið gera þennan samn-
ing til þess að hagnast á honum. Það
væri mikilvægt, að orkutökunni
væri hægt að stýra frá HS, en hún
hlypi frá 900 kw til 2300 kw á álags-
tímum. Hann sagði, að hér væri um
tímamótasamning að ræða. Hann
væri sá fyrsti í nýju umhverfi þar
sem sama væri hvaðan orkan er tek-
in. Lýsti hann ánægju HS með
samninginn.
Framkvæmdir munu
hefjast í næstu viku
Ólafsvík. Morgunblaðið.
YFIRBORÐ Baulárvallavatns, sem hér sést, verður óbreytt, en vatns-
söfnun verður í Hraunsfjarðarvatni. Fallhæð er 85 metrar og vatnsöryggi
verður með því besta sem gerist. Stöðvarhúsið verður um 1,5 km neðan
við útfall Baulárvallavatns og verður það eina, sem verður sýnilegt af
þjóðveginum um Vatnaleið, sem liggur þvert yfir Snæfellsnes í átt að
Stykkishólmi.
Morgunblaðið/RAX
Fallhæðin verður 85 metrar
Samið um fjármögnun og orkusölu Múlavirkjunar