Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝ Droplaug Bene-diktsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 17.
október 1937. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi 1. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Benedikt Guðnason,
f. 1908, d. 1996 og
Þuríður Guðjóns-
dóttir, f. 1908, d.
1991. Bræður Drop-
laugar eru Gunnar, f.
1941, kvæntur Ernu
Kjærnested og Ör-
lygur, f. 1943, kvæntur Ingigerði
Gissurardóttur.
Árið 1960 giftist Droplaug Jóni
Stefáni Hannessyni húsasmíða-
meistara, f. 8. janúar 1936, d. 6.
janúar 2003. Foreldrar hans voru
Hannes Jónas Jónsson, f. 1892, d.
1971 og Ólöf Guðrún Stefánsdótt-
ir, f. 1900, d. 1985. Börn Drop-
laugar og Jóns eru: 1) Benedikt
Þór, f. 1957, maki Fanney Helga
Friðriksdóttir. Börn þeirra eru
Arna Þórey, maki Óskar Bjarni
Óskarsson, synir þeirra Arnór
Snær og Benedikt Gunnar og
Friðrik, maki Anna Dúna Rúnars-
dóttir og Droplaug. 2) Hannes
Jónas, f. 1959, maki Auður Gunn-
arsdóttir. Börn þeirra eru Rósa
Þórunn og Jón Stefán. 3) Krist-
jana Þuríður, f. 1961, maki Stefán
Ásgeirsson. Dætur þeirra eru
Hanna Jóna, dóttir hennar og
Kristjáns P. Krist-
jánssonar er Petrún-
ella Aðalheiður og
Unnur Ósk. 4) Andr-
ea Kristín, f. 1966,
maki Jóhannes Ingi
Kolbeinsson. Börn
þeirra eru Þuríður,
dóttir hennar og
Hlyns Ö. Einarsson-
ar er Emilý Dögg,
Jónína Jófríður og
Högni Steinn.
Droplaug ólst upp
í Ljósaklifi í hraun-
inu vestan Hafnar-
fjarðar. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík árið 1954. Þá
hóf hún störf sem ritari hjá Loft-
skeytastöðinni í Gufunesi og
starfaði þar til ársins 1959. Fyrstu
búskaparár Droplaugar og Jóns
voru í Ljósaklifi en árið 1963
fluttu þau í Garðbæ þar í grennd.
1967 fluttu þau á Álfaskeið 89 í
Hafnarfirði. Droplaug hóf störf
árið 1971 á Fasteignasölu Árna
Gunnlaugssonar. Frá árinu 1986
vann hún við verktakafyrirtæki
þeirra Jóns auk þess sem hún
annaðist aldraða foreldra sína.
Droplaug var lengi virk í fé-
lagsmálum m.a. hjá Félagi óháðra
borgara í Hafnarfirði og hjá Sál-
arrannsóknafélagi Hafnarfjarð-
ar.
Útför Droplaugar verður gerð
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Það er febrúar og úti er slydda og
degi er tekið að halla. Ég stend í
tröppunni við innganginn að dauflega
upplýstri stofunni á Álfaskeiðinu. Ég
er að horfa á ömmu Droplaugu, sitj-
andi í svarta leðursófanum sínum.
Hún er að lesa bók við birtuna úr
gyllta ljóskúplinum sem hangir úr
loftinu við stofugluggann sem vísar út
í garð.
Ég hef hljótt um mig svo ég veki
ekki athygli á mér. Á þessari stundu
finn ég til svo mikillar ástar á ömmu
minni og veit að ég verð að festa mér
þessa stund og þessa sýn í minni, því
ég geri mér grein fyrir því að það er
ekki sjálfgefið að finna til svo full-
kominnar hamingju og öryggis.
Amma mín veitti mér alla sína þol-
inmæði, ást og umhyggju og hún var
mér sem önnur móðir. Hún elskaði
mig fyrir þá manneskju sem ég var,
og veitti mér skilyrðislausan stuðn-
ing.
Einhverjar bestu minningar sem
ég á eru um hana. Bíóferðir okkar
leiddu af sér smekk minn á bíómynd-
um. Uppáhalds dagarnir mínir eru
gráir rigningardagar því vorið sem
ég var tólf ára fórum ég og amma til
Glasgow og þá voru gráir rigningar-
dagar. Hún var ein allra besta vin-
kona mín.
Við amma, Þurí og afi Jón vorum
oft eins og lítil aukafjölskylda vegna
þess hve mikið við vorum hjá þeim, og
ég vona að amma og afi hafi gert sér
grein fyrir hve mikils virði þau voru
okkur frænkunum.
Elsku amma mín. Þú varst engill á
jörðu. Þakka þér fyrir þá gjöf sem ást
þín var.
Þín ömmustelpa,
Hanna Jóna.
Elsku amma mín.
Nú ertu loksins búin að fá hvíldina
þína, sem mér finnst samt vera allt of
snemma en ég veit að þér líður mikið
betur núna þó að það sé erfitt að
sætta sig við að þú þyrftir að fá þenn-
an sjúkdóm. Nú ertu komin til afa og
þið getið aftur verið saman. Ég á svo
margar góðar og skemmtilegar
minningar um þig. Það var alltaf svo
gott að koma til ykkar afa á Álfa-
skeiðið þar sem ýmislegt var brallað.
Þú hugsaðir alltaf svo vel um okkur
barnabörnin. Mér finnst leiðinlegast
að litlu strákarnir mínir hafi ekki get-
að kynnst þér og afa eins og ég gerði,
en svona er víst lífið og þó að þeir hafi
heimsótt þig á Sunnuhlíð þá er það
ekki eins og var að koma á Álfaskeið-
ið þegar ég var lítil. Ég mun gera allt
sem ég get til þess að segja þeim sem
mest frá ykkur.
Takk fyrir allt elsku amma.
Við fjölskyldan sendum öllum okk-
ar bestu samúðarkveðjur frá Spáni.
Þín
Arna.
Í dag verður systir mín borin til
grafar, aðeins 66 ára að aldri. Virk
ævi 58 ár. Orrustan við Parkinson í
átta ár. Hann herti tökin eftir því sem
á leið. Jón maður hennar veikist um
líkt leyti. Látinn 2002. Fyrsta minn-
ing mín um Droplaugu: Loftvarnarf-
lautur þeyttar með miklum gný við
Gunnarssund. Flug í grastó við götu.
Hugheil huggun. Uppgötvun: Ein-
staklega góð systir. Er lífshretin
óhjákvæmilegu hrelldu síðar, góður
stuðningur góðrar systur. Minning
mín um árslok 1955: Droplaug komin
með gullfínan samkvæmiskjól, ný-
keyptan. Jón kominn til sögu. Hrað-
mælt í fyrstu sem hugsaði hún: Eyddi
ég of miklu? Sannfæring til allra um
ágæti kjólsins og vel fór hann. Ekki
skuggi á gleði í minningum þó bílseta
í ófærð á Öskjuhlíð yrði tveir tímar.
Ballið var KR-ball og stóð lengi! Hús-
móðurstörfin. Stórt heimili. Gestrisin
hjón. Samkvæmin orðlögð. Börn í há-
vegum höfð. Að þeim uppvöxnum,
vinna utan heimilis, bæjarmálaþátt-
taka, sálarrannsóknarfélag, ferðalög,
Glasgow í forgangi. Ótrúleg hugarró.
– Þetta er skyndisýn mín á líf og góð-
vild einstakrar systur. Hún hafði sín-
ar skoðanir á hlutunum, en þröngvaði
þeim aldrei upp á neinn. Hún hafði
gaman af því að tala, vel máli farin, og
því sorglegast á að horfa hve sjúk-
dómurinn gerði henni það erfitt. En
hugurinn var alveg tær til síðustu
stunda. Ávallt kvað hún sér líða vel,
aldrei kvalin, en hvað hún hugleiddi
veit enginn. Æðruleysið undravert.
Nú að leiðarlokum vil ég, og ekki síð-
ur kona mín, Erna, þakka henni hlý-
hug og velgjörðir sýndar okkur og
börnum okkar alla tíð. Verður aldrei
fullmetið. Ernu þótti mjög gott að við
hana að ræða. Mannbætandi að eiga
við Droplaugu orðastað. Undir það
get ég tekið með henni. Droplaug leit-
aði ávallt bestu hliðanna á öllum mál-
um. Ég kveð mína góðu systur með
þakklæti fyrir heilræði öll og vel-
gjörðir, en ekki síst umönnun for-
eldra okkar síðustu æviár þeirra.
Megi þessari góðu konu vel farnast á
nýjum brautum.
Gunnar Benediktsson.
Ég finn til söknuðar og angur-
værðar en gleðst samt yfir að vinkona
mín er leyst úr viðjum erfiðs sjúk-
dóms sem gerði hana máttfarnari
með hverjum degi.
Við erum búnar að þekkjast lengi,
kynntumst þegar við vorum ungar
konur, nýfluttar í hálfbyggð hús við
sömu götu fyrir 37 árum.
Við urðum fljótt vinkonur og höf-
um gegn um árin verið saman á
mörgum gleðistundum og stutt hvora
aðra þegar á hefur bjátað í lífinu.
Þau Jón reyndust okkur afar góðir
vinir.
Börnin okkar léku sér saman og
samskiptin urðu nánari með hverju
árinu.
Droplaug og Jón voru afar barngóð
og umburðarlynd og skildu vel barn-
sálina. Ekkert þótti þeim sárara en ef
börn og ungmenni voru beitt órétti
eða þau vanrækt. Við kynntumst líka
foreldrum hennar sem bjuggu í
Ljósaklifi, húsi sem stendur úti í
hrauninu.
Þar áttu börnin margar gleði-
stundir og gátu byggt og brasað af
hjartans lyst og aldrei var amast við
þeim.
Það var mjög náið og fallegt sam-
band milli Droplaugar og fjölskyldu
hennar. Eftir að foreldrar hennar elt-
ust og misstu heilsuna hugsaði hún
um þau af fádæma alúð og elsku og
alltaf var Jón boðinn og búinn til að
aðstoða þau.
Við gátum rætt um alla hluti og oft
hljóp ég yfir og fékk hennar álit og
ráð. Hún hafði þann góða hæfileika að
gera aldrei of mikið úr hlutunum, oft
leystust vandamálin eða urðu lítil-
vægari eftir samtalið.
Þau hjónin veiktust næstum því
samtímis af sitt hvorum sjúkdómn-
um, þau studdu hvort annað eins
lengi og þau gátu á heimili sínu með
góðri hjálp barna sinna en það var
ekki langur tími því þau þurftu æ
meiri umönnun.
Droplaug sýndi ótrúlegan sálar-
styrk allan tímann. Aldrei sagði hún
annað en að sér liði vel og að hún væri
sátt, búin að skila sínu hlutverki.
Sunnuhlíð varð síðasti dvalarstað-
urinn og hjúkrunarfólk þar dáðist að
æðruleysi hennar og jafnlyndi.
Alltaf þegar ég kom í heimsókn
fagnaði hún mér með bjarta brosinu
sínu. Það yljar mér enn um hjarta-
rætur.
Guð geymi alla ástvini hennar.
Sólborg.
Þegar ólæknandi sjúkdómar hafa
lengi skert lífsnautn má líta á dauð-
ann sem lausn úr fjötrum og ávinning
í trausti á fyrirheit Drottins. Eftir
þunga sjúkdómsbyrði langan tíma,
sem Droplaug bar af aðdáunarverðu
æðruleysi og hugprýði, kom andlát
hennar ekki á óvart. Hún kvaddi
þakklát fyrir allt það góða og fagra,
sem lífið hafði áður gefið henni og
mat að verðleikum hlýja umhyggju
skyldmenna og starfsfólksins á
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, en
þar dvaldist Droplaug hátt í tvö ár.
Ég átti því láni að fagna að hafa um
langt skeið notið einlægrar vináttu
Droplaugar, trausts hennar og mann-
kosta. Mér er því ljúft að mega minn-
ast hennar með nokkrum orðum.
Fyrst man ég eftir Droplaugu sem
tápmiklu barni við leik á Austurgöt-
unni, en þar bjuggu foreldrar hennar
um árabil. Þegar hún var 10 ára flutt-
ist fjölskyldan í húsið Ljósaklif, sem
foreldrar hennar byggðu á einkar fal-
legum og kyrrlátum stað í hrauninu
vestast í Hafnarfirði. Þar naut Drop-
laug margra góðra ára við fegurð og
friðsæld umhvefis og heilbrigt heim-
ilislíf, sem hún oft minntist á. Og þar
stofnaði hún síðan sitt eigið heimili
með manni sínum, Jóni Stefáni Hann-
essyni, sem lést á síðasta ári, en árið
1967 fluttust þau í eigið hús að Álfa-
skeiði 89.
Kynni okkar Droplaugar hófust
fyrst að ráði en hún réðst til starfa á
lögmannsstofu minni árið 1971 og
vann þar um 12 ára skeið. Minnist ég
með þakklátum huga þeirra sam-
starfsára. Var mér það mikill fengur
að fá notið ágætra starfskrafta henn-
ar en öllum sín störfum sinnti hún af
mikilli vandvirkni og skyldurækni.
Hún var ætíð ljúf og lipur í öllum
samskiptum með góða skapgerð og
framkomu til fyrirmyndar.
Og ekki síður var það lán í barátt-
unni á árum áður á sviði hafnfirskra
bæjarmála, er hún gekk til liðs við
Félag óháðra borgara, en í stjórn
þess átti hún sæti í mörg ár. Aldrei
hlífði hún sér til starfa í þágu félags-
ins, úrræðagóð og hvetjandi í öflugu
félagslífi. Átti hún góðan þátt í far-
sælu framfaraskeiði, sem fylgdi 20
ára þátttöku óháðra borgara í stjórn
Hafnarfjarðarbæjar. Droplaug var
um árabil í barnaverndarnefnd og
gegndi fleiri trúnaðarstörfum fyrir
bæjarfélagið og félagasamtök.
Droplaug naut þeirrar gæfu að
eiga góða og grandvara foreldra, sem
kappkostuðu að búa börnin sín sem
best undir lífið með hollu veganesti.
Sagði hún glöð frá því hversu mikið
hún ætti foreldrum sínum að þakka,
enda reyndist hún þeim sönn hjálp-
arhella með kærleiksríkri umhyggju
fyrr og síðar á efri árum þeirra.
Mörg voru góðverk Droplaugar og
gjöful fórnarlundin. Þannig var hún
mjög örlát á hjálpsemi við sína af-
komendur, vildi ætíð stuðla að heill
þeirra og velgengni og vera þeim góð
fyrirmynd.
Hlutverki sínu hér á jörð skilaði
hún með sæmd. Trúin og heilbrigð
lífsskoðun voru henni leiðarljós og
styrkur. Hún er kvödd með virðingu
og einlægri þökk.
Megi fögur sál hvíla í friði og bless-
un fylgja börnum Droplaugar og öðr-
um skyldmönnum.
Árni Gunnlaugsson.
Þegar komið er að kveðjustund,
rifjast upp fyrir mér minnistæð atvik
úr sameiginlegum sjóði minninganna.
Þegar við Droplaug sem nú er kvödd
kynntumst fyrst voru þeir tímar hér á
Íslandi sem þeir sem yngri eru að ár-
um mundu varla leggja trúnað á.
Það var árið 1942 sem leiðir okkar
lágu saman í Sunnudagaskóla
K.F.U.M og K. á horni Hverfisgötu
og Hraunstígs í Hafnarfirði, en þar
bjuggum við tvær litlar hnátur og var
hún eins ljós og norræn yfirlitum og
hugsast gat.
Minnist ég þess sérstaklega hvað
Þuríður móðir Droplaugar kom mér
fyrir sjónir sem sérlega góð kona og
kynntist ég því betur seinna að á milli
mæðgnanna var einstaklega kært
samband alla tíð.
Á þessum árum var unað við leiki í
hrauninu og svo kallað „Simba-tún“
var alveg við húsdyrnar hjá Drop-
laugu. Ég minnist einnig tíðra heim-
sókna hjá föður ömmu Droplaugar í
Gunnarssundinu þar sem þáður var
velgjörningur. Um tíu ára aldur flyt-
ur svo fjölskylda Droplaugar að
Ljósaklifi vestast í Hafnarfirði, var
það þá næstum dagsferðalag að fara
þangað og meðal annars brugðum við
okkur oft á skauta á Balatjörn þar
sem Droplaug sýndi frábæra leikni
svo að eftir var tekið.
Að lokinni fermingu í maí 1951
varð að taka ákvörðun um að hverju
skyldi stefnt í lífinu. Hóf Droplaug þá
nám við bóknámsdeild í Flensborg-
arskóla en seinna meir við Kvenna-
skólann í Reykjavík þar sem hún lauk
námi og gladdist hún mikið yfir því að
hafa tekið þá stefnu í lífinu.
Droplaug var hamingjusöm er hún
kynnti Jón sinn fyrir góðum vinum
sínum um páskana 1957, og sáum við
að þar fór ekki á milli mála að þarna
var kominn tilvonandi lífsförunautur-
inn góði.
Droplaug var um árabil í sauma-
klúbb okkar skólasystra úr Kvenna-
skólanum, þar sem ferðalög innan-
lands með mökum var árlegur
viðburður og oftast var Jón þar á bak
við myndavélina að mynda ógleym-
anleg augnablik hjá hópnum.
Já Droplaug og Jón áttu farsælt líf,
eignuðust fjögur mannvænleg börn.
Hún var kvik í hreyfingum og björt
yfirlitum eins og hafði verið í
bernsku, hann rólegur og yfirvegað-
ur. Fjölskyldan byggði sér hús við
Álfaskeið og samgangur var mikill á
milli heimila þar. Allt lék í lyndi en
skyndilega dregur ský fyrir sólu.
Bæði urðu þau fyrir þeirri bitru
reynslu að veikjast á besta aldri af
sjúkdómum sem nú hefur lokið jarð-
vist þeirra, þvílík sorg.
Þegar við Birna sameiginleg vin-
kona okkar, komum í heimsókn að
sjúkrabeði þessarar unglegu, vel til
höfðu konu urðum við vitni að því
hugrekki, æðruleysi og styrk sem
Droplaug sýndi í þessum erfiðu tímu.
Á þessum erfiðu tímum hafði hún
mikla unun af því að hlýða á upp-
llestra úr góðum bókum og hlusta á
fallega tónlist og hafði hún einkar
gaman af að hlusta á sígilda tónlist.
Hvíl í friði Droplaug, þökk fyrir
samfylgd þína í lífinu.
Soffía Stefánsdóttir.
DROPLAUG
BENEDIKTSDÓTTIR
Nú er sál þín rós
í rósagarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti
(Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir.)
Minningin um fallega, glaðlega
og góðhjartaða konu lifir ætíð í
hjörtum okkar.
Fríða Ólöf, Ragnheiður og
Benedikt Gunnarsbörn.
HINSTA KVEÐJA
Fleiri minningargreinar
um Droplaugu Benediktsdóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga. Höfundur
hennar er: Ásgerður Halldórsdóttir