Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 33
Ég minnist þín, Jórunn, sem svo
hressri og fallegri stelpu sem vildi
öllum gott, sú minning sem situr fast
í hjarta mínu er sú hve vænt þér
þótti um alla, og hve nánar þið syst-
urnar voru, það var akkúrat það sem
mér fannst svo yndislegt. Minningin
um þig mun ætíð sitja í hjarta mínu.
Halla, Pálmi, Linda, Þórdís,
Finna, Guðjón,Tómas og Jonni,
megi guð vera með ykkur og styrkja
ykkur í þessari miklu sorg.
Sveinbjörg frænka.
Þeir deyja ungir sem guðirnir
elska.
Elsku Jórunn, við systurnar vor-
um staddar á Spáni ásamt fjölskyld-
um okkar, þegar pabbi hringdi og
sagði okkur þessi sorglegu tíðindi.
Þar vitum við að þú hefðir einmitt
viljað hafa einhverja ástvini þína.
Því að þú varst svo mikil heimskona.
Búin að vera þar, í Frakklandi og í
Englandi og talaðir öll þessi mál
reiprennandi. Þú gáfaða, fallega og
hressa frænka okkar, sem við pöss-
uðum þegar þú varst lítil og fyrir
átta árum snerist dæmið við og þú
passaðir fyrir okkur. Það er svo
ótrúlegt að þú skyldir velja þessa
leið. Við vissum að þú barðist við
sjúkdóm þinn en aldrei barstu það á
borð fyrir nokkurn. Þú varst alltaf
svo sterk og kát. Hvenær sem við
hittumst var alltaf kysst og hlegið,
sérstaklega yfir spilamennsku – það
var alltaf mest gaman í síðasta
spilinu.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Halla og Pálmi, Linda og
Þórdís Halla, Finna og Guðjón,
Tómas og Jonni, ömmur og afi. Okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur á
sorgarstundu. Góður Guð styrki
ykkur og leiði.
Ykkar frænkur,
Guðríður, Sigríður (Gauja
og Sigga) og fjölskyldur
þeirra.
Elsku Jórunn mín.
Ég trúi ekki að þú sért farin frá
okkur öllum. Frá því að ég man eftir
mér, man ég eftir þér. Þegar við vor-
um yngri að leika saman. Það var
svo fjörugt ímyndunaraflið hjá þér,
að við höfðum alltaf eitthvað að
gera. Mér þótti alltaf svo vænt um
þig og þyki auðvitað enn. Þú átt allt-
af brot af hjarta mínu. Það var alltaf
svo gott að hitta þig, því þú brostir
allan hringinn með þínu fallega
brosi þegar þú hittir mig. Svo hlý-
legt viðmót sem allir fengu frá þér.
Þú varst alltaf svo dugleg í öllu,
vinnu, skóla. Og ég man alltaf frá því
að við vorum yngri að þú vildir verða
læknir, og ég var oft að minna þig á
það þegar við vorum orðnar eldri og
þú fórst bara að hlæja. Þegar við
vinkonurnar vorum í partíi hjá þér,
fyrir ekki svo löngu síðan, fórum við
tvær inn í herbergi að tala saman og
ég sagði að gamla Jórunn væri kom-
in aftur. Og þú varst svo ánægð að
heyra það og þakkaðir mér fyrir. Þú
vissir hvað ég var að meina. Núna er
ég svo ánægð með þetta samtal okk-
ar því ég sagði þér hvað mér þætti
innilega vænt um þig, kæra frænka
mín.
Elsku Jórunn, ég elska þig af öllu
mínu hjarta og ég trúi því ekki að ég
sjái þig ekki meir, og þennan kraft
sem var alltaf í þér. Ég á svo góðar
minningar af okkur saman og það
getur enginn tekið þær frá mér. Ég
mun alltaf muna eftir þér, því þú
hefur átt, og þú munt alltaf eiga,
brot af mínu hjarta. Ég mun aldrei
gleyma þér elsku Jórunn mín og
vonandi líður þér vel þar sem þú ert
núna.
Kæra fjölskylda og Jonni, Guð
gefi ykkur styrk í sorginni.
Þín vinkona, bekkjarsystir og
frænka,
Svava Guðrún Hólmbergsdóttir.
Dofinn, tómleiki, ráðaleysi, bjarg-
arlaus, sorgmædd, söknuður, hlýja,
óraunveruleiki. – Þetta eru þau orð
sem komu upp í hugann þegar við
settumst niður á Kaffi Duus til að
minnast þín. Duus var þinn vinnu-
staður og meira en það, því við töl-
uðum oft um að þetta væri líka okk-
ar annað heimili, því allir sem vinna
hér og hafa unnið koma í öllum frí-
stundum bara til að segja hæ og fá
sér einn kaffibolla og tala saman.
Svona líður okkur, þú ert farin og
kemur ekki aftur, þú sem allaf varst
brosandi, glaðleg, falleg og hlý þeg-
ar þú gekkst um salinn.
Allaf tilbúin að gefa öllum allt sem
þú áttirm faðmaðir, straukst og
gafst öllum sem þú umgekkst bros.
Þú varst þannig stelpa að öllum
þótti vænt um þig. Það tók fólk ekki
langan tíma að kynnast þér því þú
varst svo hlý og góð.
Alltaf gafst þú manni knús og
koss.
„Hvernig hafið þið það, elsku dúll-
urnar mínar?“ var sú setning sem
maður heyrði um leið og þú birtist.
Þú lýstir upp umhverfið með þínum
hlýja og glaðlega persónuleika. Þér
var alltaf í mun að vita hvernig
manni leið og hvort ekki væri allt í
lagi og ávallt að reyna að passa upp
á alla í kringum þig.
Þú varst gleðigjafi, ótrúlega dug-
leg og drifin og alltaf var stutt í grín
og glens.
Engri manneskju höfum við
kynnst sem var jafn fordómalaus.
Í þínum augum voru allir jafnir,
þannig varst þú.
Elsku hjartans Jórunn, þín verð-
ur sárt saknað og minning þín mun
lifa í hjörtum okkar allra um
ókomna tíð.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
og varðveita fjölskyldur ykkar
Jonna á þessum erfiðu tímum.
Hvíl í friði, elskan.
Starfsfólk Kaffi Duus.
Okkar fyrstu kynni voru þegar þú
sóttir um vinnu hjá okkur á Kaffi
Duus síðla vetrar 2003. Ég sá strax
að þar var karakter á ferð. Er ég
ævinlega þakklát fyrir að fá að
kynnast þér, þú yndislega Jórunn,
það eru til svo mörg dásamleg lýs-
ingarorð sem hægt væri að rita hér á
blað en þeir sem þekktu þig vita al-
veg um hvað ég er að tala.
Það sem mér fannst svo vænt um
er að þegar þú tókst á móti fólki, þá
var alltaf þessi einlæga blíða til stað-
ar, óháð kyni og aldri, sama hvað
gekk á hjá þér. Þér var svo mikið í
mun að gleðja aðra og þú máttir
ekkert aumt sjá. Ósérhlífin í vinnu
og dugnaðarforkur og talandi ekki
um blíðuhót þín, sem komu öllum í
gott skap og ekki má gleyma
frönsku kossunum hvorn á sína kinn
sem maður fékk á nánast hverjum
degi. Þessi setning, hvernig hefurðu
það, elsku dúllan mín? er Jórunn í
hnotskurn og er í rauninni allt sem
segja þarf.
Mér finnst það ótrúlegt að svona
lífsglöð og hjartahlý manneskja
skuli ekki vera lengur hér meðal oss,
en Jórunn, ég segi þér að ef það
væru til fleiri þínir líkar hér á jörðu
væri heimurinn svo sannarlega
miklu miklu betri. Mundu að ég mun
geyma þig í hjarta mínu og þegar
minn tími kemur, veit ég að þú munt
taka brosandi á móti mér og kyssa
mig á sitthvora kinn.
Kristín Örlygsd.
Elsku Jórunn mín.
Það er ótrúlegt að þessi yndislega
og fallega manneskja sé farin frá
okkur. Ég hef þekkt Jórunni í mörg
ár en náði að kynnast henni enn bet-
ur þegar hún byrjaði á Duus. Við
náðum strax vel saman. Það var allaf
gaman að hitta Jórunni, hún tók
alltaf vel á móti öllum. Ég á eftir að
sakna allra faðmlaganna og
væntumþykjunnar, sem hún sýndi
mér, stærra hjarta hef ég ekki
kynnst. Ég er mjög þakklát fyri að
Jórunn kom í útskriftina mína hinn
12. júní síðastliðinn. Þetta kvöld var
frábært og við skemmtum okkur
ótrúlega vel.
Jórunn, takk fyrir allar stundirn-
ar sem við áttum saman, þetta er
mikill missir og ég á eftir að sakna
þín endalaust. Ég veit að þér líður
betur núna elskan mín og ég mun
hitta þig í draumum mínum.
Elsku Jonni, Pálmi og fjölskylda,
ég votta ykkur samúð mína. Megi
Guð vera með ykkur.
Ragnheiður Möller.
Það er svo margt sem þyrlast upp
í huganum, svo mörg sögð og ósögð
orð, minningar og hugsanir um
Skellibjöllu. Það er bara ein Skelli-
bjalla sem flögrar um og lýsir allt
upp með ljósinu sínu. Jórunn var
Skellibjallan okkar, hún lýsti allt
upp hvar sem hún kom. Skellibjallan
okkar flaug til Spánar, London og
Parísar, þar sem hún blómstraði í
leik og starfi. Boston var síðasta
borgin sem hún flaug til og það
huggaði okkur Bebbu þar sem við
sátum í fallegri kirkju í Boston á
laugardaginn og báðum fyrir Skelli-
bjöllunni okkar sem hafði kvatt okk-
ur svo snögglega. Það er ekki margt
sem þerrar tárin okkar, en brosandi
augun þín, kossinn þinn og knúsið
sem tók alltaf á móti okkur er það
sem yljar okkur svo mikið og við er-
um svo þakklát fyrir.
Elsku Skellibjallan okkar, núna
er ljósið þitt slokknað hérna á þess-
ari jörð. Við trúum því að það hefur
kviknað á öðrum stað og skíni þar
skærast.
Halldís, Sigurður og Nói.
Fyrir tveimur árum kynntumst
við Jórunni. Betri meðmæli hafði ég
aldrei fengið og réði ég hana strax í
vist heima hjá okkur í París til að
gæta barna okkar í stórborginni yfir
skólaárið. Hún Jórunn okkar stóð
undir meðmælunum. Hún var með
eindæmum dugleg, þroskuð og
sjálfstæð og ávallt glöð í bragði.
Henni var mikið í mun að láta öllum
líða vel í kringum sig og gaf mikið af
sjálfri sér. Hjá henni var svo til
aldrei leiða að sjá, hvert augnablik
var fyllt áformum, framkvæmdum
og leik. Djúpt undir niðri kraumaði
þó viss vanlíðan og eirðarleysi sem
við reyndum að kryfja til mergjar í
sameiningu. En hugur mannsins er
margslunginn. Jórunn leitaði að
hinu hamingjusama og glaða barni í
sér í París um leið og hún þurfti að
taka mikilvæg spor inn í framtíðina.
Við vorum heppin að fá að hafa hana
hjá okkur í heila tíu mánuði. Við
samhryggjumst innilega fjölskyldu
hennar sem henni þótti svo vænt
um. Guð geymi þig, elsku Jórunn.
Unnur, Patrick,
Alexander og Elín.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 33
Kæra vina, ég sakna þín
ég vildi að þú kæmir aftur til mín
en þú ert umvafin ljósi þar
eins og þú varst reyndar allsstaðar,
sárt er að horfa á eftir þér
en ég veit þú munt muna eftir mér
því þitt hreina hjarta og þín bjarta sál
mun þerra okkar trega tár.
Elsku vinkona, hvíl í friði.
Þín
Jóna.
Ásjóna þín þokka ber, englar heimsins
líkjast þér.
Frelsi þú valdir frá þessum heimi,
Guð þinn þig ávallt geymi.
Elska þig, þín
Kristín Stefánsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
í skapi. Svo þótti pabba svo vænt
um öll börnin mín og sérstaklega
Helgu Bergþóru því að hún var svo
mikið hjá honum þegar hún var
yngri. Pabbi var líka góður við
fóstursyni mína, Brandon og Dust-
in, eftir að hann kynntist þeim.
Hann vildi aldrei skilja neinn út-
undan og sendi þeim alltaf gjafir
þegar hann sendi mínum börnum.
Já, svona var nú hann pabbi
minn. Ekkert nema góðmennskan.
Ég hefði varla getað átt betri föður
og ég á eftir að sakna hans mikið.
Lengi lifi minning hans.
Anna Kristín.
Mig langar til að þakka Jóu
frænku minni fyrir að hafa passað
mig þegar ég var lítil. Hún var
alltaf svo góð við mig. Ég sakna
hennar mjög mikið.
Vaktu, minn Jesús, vaktu’ í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgrímur Pétursson.)
Ég kveð Jóu frænku með sökn-
uði.
Halldís Thoroddsen.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er
á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út-
för hefur farið fram eða grein berst
ekki innan hins tiltekna skilafrests
er ekki unnt að lofa ákveðnum birt-
ingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda
þótt grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningar-
greinar
Bróðir minn,
JÓN ÁRNASON,
Þverá,
Eyjafjarðarsveit,
lést að Hornbrekku Ólafsfirði miðvikudaginn
7. júlí.
Fyrir hönd systranna,
Sigríður Árnadóttir.
Ástkær dóttir okkar, barnabarn og frænka,
SUNNEVA HAFBERG,
Reynimel 82,
Reykjavík,
lést af slysförum þriðjudaginn 6. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristjana Nanna Jónsdóttir, Einar Hafberg,
Sóley Sturludóttir, Jón Erlendsson,
Margrét Thorarensen, Ægir E. Hafberg,
Jón Sturla Jónsson,
Andri Már Jónsson,
Lára Hafberg.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HELGA ÁGÚSTA HJÁLMARSDÓTTIR
fyrrv. gjaldkeri Ríkisspítalanna,
Hlíðarhúsum 3-5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 7. júlí.
Árni Friðjónsson,
Vigfús Árnason,
Hjálmar Árnason, Berglind Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku sonur minn, faðir, bróðir okkar, barns-
faðir, barnabarn, frændi og vinur,
ATLI BENEDIKT HILMARSSON,
sem lést mánudaginn 5. júlí, verður jarðsung-
inn frá Svalbarðskirkju í Þistilfirði laugardaginn
10. júlí kl. 14.00.
Anna Sigrún Benediktsdóttir,
Kristófer Máni Atlason,
Abba Elizabeth,
Ída Margrét,
Daði Dodou,
Sylvíanna,
Berglind Elva Jóhannsdóttir,
Aðalbjörg Jóna Sigfúsdóttir,
Þórdís Hilmarsdóttir,
Sigurður Jens og fjölskylda,
Elfa og fjölskylda,
Sylvía Steinunn og fjölskylda,
Hulda Pálsdóttir.