Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 24
MINNSTAÐUR
24 FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Húsavík | Þegar félagarnir Héð-
inn Jónasson og Hjalti Hálf-
dánarson, skipverjar á rækju-
bátnum Hinna ÞH, voru að landa
á dögunum í Húsavíkurhöfn bar
að erlenda ferðamenn. Þeir sýndu
rækjunni áhuga þar sem hún var
ísuð í körum og bauð Héðinn
þeim að bragða. Hrifust þeir af
rækjunni og þáðu slatta í poka.
Er þetta raunverulegt dæmi um
að ferðafólkið kann að meta at-
vinnulífið á stöðunum sem það
sækir.
Morgunblaðið/Hafþór
Ferðamenn bragða á úthafsrækju á kajanum
LAGÐUR verður grunnur að eflingu
ferðaþjónustu í strandhéruðum við
Norður-Atlantshaf og í Helsingja-
botni og markaðssetja svæðin. Þetta
er aðalmarkmið Norce-verkefnisins
um strandmenningu og ferðaþjón-
ustu sem stjórnað er hér á landi.
Verkefnið hófst fyrir frumkvæði
Íslendinga og var samþykkt af Norð-
urslóðaáætlun Evrópusambandsins.
Það tekur þrjú ár og er varið til þess
107 milljónum kr. á þessu tímabili.
Þátttakendur eru fimmtán frá
strandhéruðum á Íslandi, Grænlandi,
Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Finn-
landi, Orkneyjum, Hjaltlandseyjum
og Nýfundnalandi. Atvinnuþró-
unarfélag Norðurlands vestra er í
forsvari og Rögnvaldur Guðmunds-
son hjá Rannsóknum og ráðgjöf
ferðaþjónustunnar er verkefnis-
stjóri.
Rögnvaldur segir að þrjú svæði
séu undir hér á landi, Breiðafjörður,
Húnaflói og strönd Þingeyjarsýslu
en unnt sé að yfirfæra verkefnið á
önnur strandhéruð þótt þau séu ekki
beinir aðilar. Komið verður upp
tengslaneti og mynduð samstaða
milli svæðanna.
Samstarf við ferðaþjónustu
Fyrsti samráðsfundur þátttakend-
anna var nýlega haldinn á Húsavík í
tengslum við ferðalag um svæðin sem
áhersla er lögð á hér á landi. Rögn-
valdur segir að það hafi komið er-
lendu þátttakendunum á óvart
hversu þróuð ferðaþjónustan á Húsa-
vík er orðin. Hvalaskoðunin, Byggða-
safnið og Hvalasafnið vöktu athygli
þeirra. Ýmsar hugmyndir hafa komið
upp í vinnu hópsins, til dæmis hvern-
ig hægt er að bæta aðstöðu til nátt-
úruskoðunar, kynna matarmenningu
strandhéraða, handverk og skemmt-
anir sem tengjast sjó og strönd.
Hann tekur fram að verkefnið sé
unnið í nánu samstarfi við ferðaþjón-
ustufyrirtæki. „Hægt er að ýta undir
ýmislegt og vekja áhuga heima-
manna þannig að þeir geti nýtt þessa
vinnu áfram í samvinnu við ferða-
þjónustuna, eftir að Evrópuverkefn-
inu lýkur. Þannig vonumst við til þess
að hægt verði að auka áhuga ferða-
fólks á þessum svæðum og þar með
efla atvinnulífið. Ekki veitir af því
mörg svæðanna hafa átt undir högg
að sækja,“ segir Rögnvaldur.
Nýta strandmenningu
til að laða að ferðafólk
Sauðárkrókur | Formaður fram-
kvæmdanefndar um gerð íþrótta-
mannvirkja á Sauðárkróki afhenti
nú í landsmótsviku landsmótsnefnd
hið nýja íþróttasvæði til notkunar.
Það var Viggó Jónsson, sem verið
hefur í forsvari fyrir framkvæmd-
unum, sem afhenti Bjarna Jónssyni,
framkvæmdastjóra landsmóts-
nefndar, völlinn formlega en hann
kostar 150 til 200 milljónir.
Í máli Viggós kom fram að fram-
kvæmdir hófust við endurbyggingu
svæðisins í ágúst 2002 og því hefur
tekist á tiltölulega stuttum tíma að
framkvæma þær breytingar og end-
urbætur sem orðnar eru. Sagði
Viggó að hér væri einn tæknilega
best búni íþróttavöllur á landinu nú
kominn, með hitalögnum í hlaupa-
brautum, fjórum langstökks-
gryfjum, ljósleiðaratengingum um
vallarsvæðið, hlaupabrautum fyrir
skemmri vegalengdirnar þannig að
unnt er að hlaupa til bæði norðurs og
suðurs, og tvöfalt efnislag á atrennu-
braut fyrir spjótkast. Þá hefði knatt-
spyrnuvöllurinn allur verið lagður
með sérstöku undirlagi þannig að
hann gæti orðið sem bestur.
Kostnaður við gerð vallarins er
orðinn 150–200 milljónir, en einnig
kom fram hjá Viggó að sjálf-
boðaliðar hefðu lyft grettistaki við
þessa framkvæmd. Þegar Bjarni
Jónsson veitti vellinum viðtöku
sagðist hann þess fullviss að á hon-
um yrðu fjölmörg frábær íþrótta-
afrek unnin á komandi dögum.
Ný íþróttamannvirki afhent landsmótsnefnd
Einn best
búni
íþróttavöll-
ur landsins
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Afhending: Bjarni Jónsson, formaður landsmótsnefndar, þakkar fram-
kvæmdastjóra framkvæmdanefndar, Viggó Jónssyni, fyrir vel unnin störf.
LANDIÐ
Gott 382 fm atvinnuhúsnæði á tveim-
ur hæðum, 191 fm hvor hæð. Góð
aðkoma og fjöldi bílastæða. Eignin
gæti hentað vel undir verslun, þjón-
ustu, skrifstofur, félagsstarfsemi,
listamann eða heildsölur. Húsnæðið
er laust nú þegar. Tilboð óskast.
3727.
HÁHOLT 4 - MOSFELLSBÆ
Höfum verið beðin að útvega 2ja herb.
þjónustuíbúð. Ýmsir staðir koma til greina.
Nánari upplýsingar veitir
Magnea Sverrisdóttir fasteignasali.
2JA HERB. ÞJÓNUSTUÍBÚÐ ÓSKAST
BOSTON 26”
21 gíra Shimano. Hátt stýri,
breiður hnakkur með dempara.
Bretti, bögglaberi og standari
Tilboð kr. 23.700
Herrada
gar
Rincon 26”
Létt „oversize“ álstell, 24 gíra Shimano
Alivio og stillanlegur demparagaffall.
Tilboð kr. 35.900
Með diskabremsum.
Tilboð kr. 38.900
GSR AluxX F/S 26”
Létt ál fjallahjól 21 gíra með demparagaffli. Shimano gírar.
Frábær kaup. Tilboð kr. 25.900
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
07
.2
00
4
Apollo 26”
21 gíra Shimano/GripShift.
Verð áður kr. 24.900
Tilboð kr. 18.600
GSR F/S 26”
Alvöru herra
demparahjól 21 gíra.
Tilboð kr. 21.900
15-25%
afsláttu
r
afherra
hjólum
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett
og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði.
Ábyrgð og upphersla.