Morgunblaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2004 39
ÍSLAND endaði í 11. sæti í opnum
flokki á Evrópumótinu í brids eftir
góðan endasprett en íslenska liðið
fékk m.a. 73 stig af 75 mögulegum í
þremur síðustu umferðunun. Þetta
er vel viðunandi árangur þótt auðvit-
að hefði verið skemmtilegra ef liðið
hefði verið með í baráttunni um efstu
sætin.
Ítalir unnu mótið sjötta árið í röð,
sem er met. Yfirburðir ítalska liðsins
voru í raun ótrúlegir og það hafði
nánast tryggt sér sigurinn þótt
þriðjungur væri eftir af mótinu.
Ásamt Ítölum og Svíum áunnu Pól-
verjar, Rússar og Englendingar sér
þátttökurétt á næsta heimsmeistara-
móti, sem fer fram í Portúgal haustið
2005.
Ítölsku Evrópumeistararnir heita
Lorenzo Lauria, Alfredo Versace,
Norberto Bocchi, Giorgio Duboin,
Fantoni Fulvio og Claudio Nunes.
Þetta var sjötti Evrópumeistaratitill
Laurias og hefur aðeins Georgio
Belladonna unnið mótið oftar eða 10
sinnum. Bocchi og Duboin hafa unn-
ið mótið fimm sinnum í röð en þetta
var fyrsti EM-sigur Nunes og Fulv-
ios. Þeir eru hins vegar heimsmeist-
arar í tvímenningi.
Þegar mótið var reiknað út sem
Butler-tvímenningur voru þeir
Bocchi og Duboin í efsta sæti, Nunes
og Fulvio í 2. sæti og Versace og
Lauria í 4. sæti af rúmlega 100 pör-
um. Þeir Jón Baldursson og Þorlák-
ur Jónsson voru í 12. sæti, Matthías
Þorvaldsson og Magnús Magnússon
voru í 28. sæti en Bjarni Einarsson
og Þröstur Ingimarsson náðu sér
ekki á strik í mótinu og enduðu í 95.
sæti.
Það er augljóst, þegar fylgst er
með Ítölunum spila, að þar eru á ferð
vel þjálfaðir spilarar, fullir sjálfs-
trausts og einnig treysta þeir hver
öðrum fullkomlega. Spilamat þeirra
nýtur sín sérstaklega vel í sagnbar-
áttu og vörn og allt virðist áreynslu-
laust. Ágætis dæmi er þetta spil úr
leik Ítala og Tyrkja, sem Ítalir unnu
25:5.
Austur gefur, NS á hættu
Norður
♠109543
♥Á
♦K4
♣ÁG1098
Vestur Austur
♠ÁG ♠K6
♥42 ♥DG10853
♦Á1087653 ♦G9
♣76 ♣D32
Suður
♠D872
♥K976
♦D2
♣K54
Við bæði borð spilaði suður 4
spaða eftir að austur hafði opnað á 2
hjörtum. Við annað borðið stakk
tyrkneski spilarinn í vestur inn 3
tíglum en spilaði síðan út hjarta.
Versace, sem var sagnhafi, tók slag-
inn í borði með ás og spilaði spaða á
áttuna. Vestur drap með gosa og tók
nú tígulás og spilaði meiri tígli en
Versace átti slaginn í borði og spilaði
meiri spaða. Þegar trompið lá 2-2 var
aðeins eftir að finna laufadrottn-
inguna. Vestur spilaði sig út á hjarta
og Versace tók með kóng og tromp-
aði hjarta. Hann taldi nú líklegt að
austur ætti skiptinguna 2-6-2-3 og
lagði því af stað með laufagosann úr
borði og hleypti honum. 10 slagir og
620 til Ítalíu.
Við hitt borðið sátu þeir Fulvio og
Nunes AV. Fantoni í vestur sagði
aldrei frá tíglinum sínum og því er
ekki víst að tyrkneski sagnhafinn
hefði dregið sömu ályktanir og Vers-
ace. En á það reyndi aldrei.
Fantoni spilaði út tígulás og meiri
tígli. Sagnhafi drap í borði og spilaði
spaða á áttuna og gosann og þá spil-
aði Fantoni einfaldlega þriðja tíglin-
um; sá af trompslagnum að Nunes í
austur ætti væntanlega spaðakóng-
inn. Og Nunes trompaði með kóng,
eins og um var beðið og spaðaásinn
var fjórði slagur varnarinnar. 100 til
Ítalíu og 12 stig.
Tíu fyrstu slagirnir í vörn
Það sáust ýmsar skrautlegar tölur
á mótinu og m.a. var sett nýtt met á
Evrópumótum þegar spilarar fóru
tvívegis 3.400 niður. Í annað skiptið
gátu Svíar skrifað þessa tölu í sinn
dálk þegar andstæðingar þeirra
lentu í misskilningi í sögnum og end-
uðu í 6 hjörtum redobluðum og
trompliturinn var fjórir hundar á
móti eyðu.
Íslendingar fengu einnig háa tölu í
þessu spili í leiknum við Finna:
Vestur gefur, NS á hættu:
Norður
♠2
♥32
♦ÁK7
♣KD87643
Vestur Austur
♠ÁDG87 ♠10954
♥K54 ♥ÁD1097
♦843 ♦G82
♣52 ♣4
Suður
♠K83
♥G86
♦D1065
♣ÁG10
Við annað borðið fengu þeir Þröst-
ur Ingimarsson og Bjarni Einarsson
góða tölu í NS þegar þeir sögðu og
unnu 5 lauf; vörnin reyndi að taka
tvo spaðaslagi og þá var hægt að
henda hjarta í norðri niður í fjórða
tígulinn.
Við hitt borðið sátu þeir Jón Bald-
ursson og Þorlákur Jónsson AV og
Osmo Kiema og Jouni Juuri-Oja NS:
Vestur Norður Austur Suður
Þorlákur Kiema Jón Juuri-Oja
1 spaði 2 lauf 2 grönd 3 grönd
pass pass 4 hjörtu pass
4 spaðar 4 grönd dobl//
2 grönd Jóns sýndu 4-litarstuðn-
ing við spaðann og voru áskorun í
geim. Jón vildi síðan ekki láta and-
stæðingana spila 3 grönd, enda
hætta á að þau ynnust. Hann sagði
því frá hjartalitnum á leiðinni í 4
spaða og gat þá doblað 4 grönd með
góðri samvisku; það er raunar ótrú-
legt að Kiema skuli segja 4 grönd og
síðan sitja í þeim dobluðum eftir
þessar sagnir.
Þorlákur spilaði að sjálfsögðu út
hjarta og vörnin tók fyrstu 10 slagina
á hálitina, 2.000 til Íslands og 21 stig.
Ótrúlegir yfirburð-
ur Ítala á EM í brids
BRIDS
EM í Malmö
EVRÓPUMÓTIÐ í brids
Guðm. Sv. Hermannsson
ÞEIR Michael Adams (2.731) og
Rustam Kasimdzhanov (2.652) tefla
nú um heimsmeistaratitil FIDE í
skák í Líbýu. Fyrstu skákinni af sex
lauk með jafntefli, en Adams, sterk-
asti skákmaður Breta, var með hvítt.
Hann er 32 ára en andstæðingur
hans, sem varla telst til þekktustu
skákmanna heims, er 24 ára Úsbeki.
Kasimdzhanov hefur staðið sig vel í
keppninni til þessa og hefur sigrað þá
Vassily Ivanchuk (2.716), Alexander
Grischuk (2.719) og Veselin Topalov
(2.737). Eftir þá frammistöðu er varla
hægt að halda því fram að Michael
Adams eigi sigurinn vísan í þessu ein-
vígi, en hann sigraði Teimour Radj-
abov (2.670) í undanúrslitum.
Margir höfðu vonast til að sjá
Topalov í úrslitunum, enda hafði hann
teflt manna skemmtilegast fram að
undanúrslitunum. Þar varð hann þó
að láta í minni pokann fyrir Kas-
imdzhanov. Eftirfarandi skák tefldi
Topalov í fjórðungsúrslitum.
Hvítt: Kharlov
Svart: Topalov
Biskupsleikur
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 c6 4. Rf3
Be7 5. 0–0 d6 6. a4 0–0 7. He1 Rbd7 8.
Rc3 Rc5 9. d4 exd4 10. Rxd4 a5
Nýr leikur. Þekkt er 10. – He8 11.
Bf4 Bf8 12. e5 dxe5 13. Hxe5 Bg4 14.
f3 Bh5 15. Hxe8 Rxe8 16. a5 Bg6 17.
Be3 Rc7 18. De2 a6 19. Df2 De7 20.
Rce2 He8 21. Bd2 R5e6 22. Rxe6
Rxe6 23. c3 Dc5 24. Dxc5 Bxc5+ 25.
Kf1 Hd8, og svartur stendur betur
(Heinemann-Enders, þýsku „Búnd-
eslígunni“1999).
11. Bf4 Rg4 12. Be2 Rf6 13. Bf3
He8 14. Dd2 g6 15. h3 –
Hvítur bíður átekta, en eftir 15. e5
dxe5 16. Bxe5 Rg4 17. Bf4 Bd7 18. h3
Rf6 19. Had1 Db6 20. Bg5 Be6 21. b3
hefði hann átt þægilegra tafl.
15. ... Rfd7 16. Had1 Bf8 17. g4!?
Db6 18. Bg2 Re5
Peðið á b2 er baneitrað: 18. ...
Dxb2?? 19. Hb1 Da3 20. Ha1 Db4 21.
Heb1 og svartur verður að fórna
manni á e4 til að halda taflinu áfram.
19. b3 Db4 20. Rde2 f6 21. Be3 h5
Topalov hefur miklar fórnir í huga,
annars hefði hann leikið 21. ... Rf7.
22. f4 –
Stöðumynd 1
22. ... Rxg4!? 23. hxg4 Bxg4 24.
Dc1 f5 25. Hd4 Db6 26. Dd2 Dc7 27.
Bf2 He6 28. Hc4 Hae8 29. Rd4 –
Stöðumynd 2
29. ... Hxe4!
Svartur bauð upp í dans og nú á
hann ekki um annað að velja en að
stíga dansinn af miklum móð.
30. Rxe4 Rxe4 31. Bxe4 fxe4 32.
Hc3 –
Eftir 32. Rxc6!? bxc6 33. Hcxe4
Hxe4 34. Hxe4 Kf7 35. c4 Bf5 36. He2
á hvítur unnið tafl, sem ef til vill er
einfaldara að tefla en framhaldið í
skákinni.
32. ... d5 33. Hg3 Bd6 34. Be3 Dd7
35. c3 –
Hann virðist mega taka peðið á a5,
en hann vill ekki eyða tíma í það og
eiga yfir höfði sér, að svartur leiki c5
og d4. Einnig virðist 35. Dxa5 g5 geta
orðið hvíti hættulegt, en það dugar
varla: 36. Dd2 Hf8 37. Hf1 gxf4 38.
Bxf4 Df7 39. Re2 Kh7 40. Hxg4 hxg4
41. Hf2 o.s.frv.
35. ... Hf8 36. Hf1 b6 37. Hf2 c5 38.
Rb5 Bb8 39. Hfg2 g5 40. Hf2 –
Ekki gengur 40. fxg5? Bxg3 41.
Hxg3 h4 42. Hg2 Bf3 43. Hf2 Dh3 44.
Dxd5+ Hf7 45. Dd8+ Kg7 og svartur
vinnur.
40. ... Kg7 41. Dc1 –
Þegar hér var komið skákinni átti
hvítur hrók yfir og betri tíma, en hann
fer á taugum í framhaldinu. Í þessari
stöðu hefur verið mælt með 41.
Hgg2!? sem besta leiknum, en ekki er
auðvelt að sýna fram á, hvernig hvítur
á að notfæra sér liðsmuninn, t.d. 41. ...
Kg6 42. Ra3 (42. fxg5 Bf3 43. Ra3
Bxg2 44. Hxf3 Bf3! virðist a.m.k. jafnt
fyrir svart) 42. ... Hf5 43. Rc2 Dd6 44.
fxg5 Bf3 45. De1 og líklega er staðan
nokkuð jöfn.
41. ... Kg6 42. Df1 Hf5 43. Hgg2
Df7 44. fxg5 Bf3! 45. Hh2 Bxh2+ 46.
Hxh2 –
Stöðumynd 3
46. ... Hf4!!
Svartur fórnar skiptamun til við-
bótar, en það er líka eina leiðin til að
halda taflinu gangandi.
47. Bxf4 Dxf4 48. Hg2? –
Hvítur getur þvingað fram jafntefli
með 48. Dh3 Bg4 (48. ... Dxg5+ 49.
Kf2 Dd2+ 50. Kg3 Dg5+ 51. Kf2
Dd2+, jafntefli) 49. Df1 o.s.frv.
48. ... h4! 49. De1 –
Eða 49. Hb2 Dxg5+ 50. Hg2 Bxg2
51. Dxg2 h3! 52. Dxg5+ Kxg5 53. Kh2
Kg4 (53. ... e3 54. Ra3 e2 55. Rc2 Kg4
og svörtu peðin verða hvíti óviðráð-
anleg.
49. ... e3! 50. Hh2 Dxg5+ 51. Kf1
h3
Stöðumynd 4
52. Db1+ –
Hvítur er varnarlaus, þótt hann
eigi heilan hrók yfir! T.d. 52. Rd6 (52.
Hxh3?? Dg2+ mát) 52. – Kf6 53. Rc8
Be4 54. He2 Dg4 55. Rxb6 Df3+ 56.
Hf2 Dxf2+ 57. Dxf2+ exf2 58. Kxf2
h2 59. b4 h1D o.s.frv.
52. ... Be4 53. Db2 –
Eða 53. Dd1 Df4+ 54. Ke1 (54. Kg1
Dg3+ 55. Kf1 Bg2+) 54. – Dg3+ 55.
Ke2 (55. Kf1 Bg2+) 55. – Bf3+ og
svartur vinnur auðveldlega.
53. – Bd3+ og hvítur gafst upp.
Staða hans er rjúkandi rústir, eftir 54.
De2 (54. He2 Dg2+ 55. Ke1 Dg1+
mát) 54. – Df4+ 55. Ke1 Bxe2 56.
Hxe2 h2 o.s.frv.
Hvað getur maður sagt um slíka
taflmennsku í útsláttarkeppni um
heimsmeistaratitil? Merkilegast er,
að Topalov dugði jafntefli til að kom-
ast áfram í keppninni!
Óvænt hjá skákforritunum
Þann 4.–12. júlí stendur yfir heims-
meistaramót skákforrita og fer mótið
fram í Ísrael. Þremur umferðum af
ellefu er lokið. Junior er í efsta sæti
með 2½ vinning, en fimm forrit deila
öðru sætinu með 2 vinninga: Shredd-
er, Crafty, Diep, Falcon og Jonny.
Fritz verður hins vegar að gera sér
næstneðsta sætið að góðu og hefur
einungis náð einum vinningi.
Það er athyglisvert, að íslenski fán-
inn blaktir við hún fyrir utan bygg-
inguna þar sem skákmótið fer fram
þótt ekkert skákforritanna tengist Ís-
landi. Ástæðan er sú, að samhliða
heimsmeistaramótinu fer fram Ól-
ympíumót tölva og fjórða alþjóðlega
ráðstefnan um tölvur og leiki. Þar
kemur Íslendingur við sögu, bæði á
Ólympíumótinu og ráðstefnunni, en
það er doktor Yngvi Björnsson, dós-
ent við Háskólann í Reykjavík. Hann
er einn fróðasti Íslendingurinn á
þessu sviði, hefur lengi tengst tölvu-
skák og er góðkunningi höfunda
margra þekktustu skákforritanna
sem keppa á heimsmeistaramótinu.
HM í skák: Adams og Kas-
imdzhanov tefla til úrslita
SKÁK
Trípólí, Líbýa
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Í SKÁK
18. júní–13. júlí 2004
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Stöðumynd 1
Stöðumynd 4Stöðumynd 3
Stöðumynd 2
dadi@vks.is
Stíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og
niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki