Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 6
ina, og hefur velferð okkar í hendi 6ér. Árið 1926, hinn 21. maí giftist Jóhanna eftirlifandi manni sínum, Jóhannesi Þorgrímssyni. Hófu þau búskap fyrst í Dal hér í sveit, síð- ar bjuggu þau fjögur ár í Litlu- Þúfu, fluttu síðan að Eiðhúsum, eignuðust þá jörð og hafa búið þar síðan, eða þar til fyrir fáum árum, að þau afhentu jörðina í hendur tveim sonurn sínum. Jörð sína hafa þau bætt og aukið af húsum og ræktun. Þau eignuðust 11 börn. tvö dóu í æsku, hin níu eru öll upp komin, traust og dugandi fólk. Eins og gefur að skilja, hefur heimili Jóhönnu og Jóhannesar þurft mikils með, að koma upp níu börnum er meira en meðai- mannsverk. Oft við erfiðar aðstæð- ur, húsbóndinn vann oft hörð- um höndurn utan heimilisins, því að margs þurfti með. En samhug- ur og farsæld þeirra, ásamt miklu trausti og virðingu hvort fyrir öðru, gaf ’þeim það lán að sjá ávöxt síns erfiðis. Að færa þjóð sinni traust og dugmikið fólk, er dýrmætt framlag hvers og eins til sinnar þjóðar. Ég sagði hér fyrr í þessum fátæklegu línum, að Jó hanna hefði verið ferðbúin héð- an úr heimi, og hefði örugglega trúað á þann, sem hefur æðri mátt okkar í hendi sér. Svo sönn og heil var trú hennar á æðra tilveru- stig, að fyrir nokkrum árum birt- ist á prenti eftir hana í bók sem heitir, Dulrænar sagnir, lífsreynsla hennar og frásögn af því mikla veikindastríði, sem hún háði fyrir 25 árum. Þá voru dagar hennar taldir, af þeim sem til þekktu en kraftaverkið gerðist. Þar eru henn- ar eigin orð: „Ég var ekki trúuð á yfirnáttúrulega hluti. En nú neita ég engu. Ég vil bera sannleikan- um vitni og gefa guði dýrðina. Reynslan sannar mér, að krafta- v&rk geta gerzt ennþá. Ég er guði af hjarta þakklát fyrir þann frest og þá náð, að lofa mér að annast börnin mín, meðan þau voru lítil og ósjálf- bjarga og þurftu mín með. Ég segi eins satt og rétt frá eins og ég bezt veit, því í hvert sinn og ég hugsa um þennan atburð, fyllist hugur minn lotningu til hans, sem ræður yfir lífi og dauða.“ Jóhönnu á Eiðhúsum tókst það, sem hún þakkar guði fyrir. Að sjá börnin sín vr.xa og þroskast og geta gefið þeim gott veganesti ut í líf- Guðrún Halldórsdóttir Laugardaginn 30. maí sl. var jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju Guðrún Halldórsdóttir, en hún hafði andast á sjúkrahúsi Siglu- fjarðar hinn 23. sama mánaðar. Með Guðrúnu Halldórsdóttur er gengin ein hinna íslenzku alþýðu- kvenna, sem áttu það hlutskipti eitt, að afla sér og sínum lífsviður- væris með tveim höndum. Þessi fáu kveðjuorð eiga ekki að vera nein lofgrein, endá væri það henni sízt að skapi. Hitt er víst, að allt hennar samtíðarfólk hér í Siglufirði, og víðar, minnist hennar, sem sístarfandi glaðværr- ar og góðrar konu, sem innti öll sín störf af hendi með stakri alúð og samvizkusemi. Ef til vill mætti margt verzlunar- og skrifstofufólk minnast þess, þegar það gekk inn á vinnustaði sína hreina að morgni að þar höðu þreyttar hendur hlúð að, hendur sem virtu það eitt að skila sínu dagsverki af trúnaði, og var sízt hugsað um launin, enda var búðarþvottur lengi illa launuð atvinna. Guðrún heitin var elzt 10 syst- kina, fædd 10. september 1893, dóttir hjónanna Halldórs Jónsson- ar og konu hans Margrétar Frið- riksdóttur, sem lengst af bjuggu í Ólafsfirði. Iíún var sín æskuár i foreldra- húsum og tók til hendi við hin ýmsu störf, sém til falla á manxv- mörgum heimilum. Um 17 ára ald ur fór hún að heiman, og réðst í vistir. Fátækar stúlkuT - átitu þess sjaldan kost, fyrrihluta aldarinnar, að ganga „til mennta“ þótt þroski væri fyrir hendi. Flestra hlut- skipti varð því að fara í vistir til vandalausra og vinna þannig fyrir sér. Ung að aldri kom Guðrún hingað til Siglufjarðar og átti hér heima æ síðan. Fyrst lengi vel ið, sjá barnabörnin og barnabarna- börnin. Allt þetta þakkar hún að leiðarlokum, síðast en ekki sízt, kveður hún lífið með þeirri gleði að hafa eignazt þann lífsförunaut, sem reyndist henni hinn trausti og elskandi eiginmaður, sem aldrei lét bugast í öllu hennar lífi, bæði í blíðu og stríðu. Síðustu mánuði ævinnar dvald- ist Jóhanna sál. á sjúkrahúsinu á Akranesi, háði hún þar stranga og erfiða sjúkdómslegu, sem hún bar með einstakri hetjudáð, andaðist hún þar 8. júní s.l. Yfir sjúkrabeði hennar vakti síðustu vikurnar dótt- ir hennar, Soffía, sem vann þar einstætt kraftaverk, og þar með goldið móður sinni ríkulega sem hún hefur áður henni veitt. Útför Jó'hönnu var gerð frá Fáskrúðar- bakkakirkju að viðstöddu miklu fjölmenni. Um leið og ég enda þessar línur, vil ég segja þetta: Jóhönnu á Eiðhúsum færi ég kær- ar þakkir fyrir trausta og einlæga vináttu, ég og mín fjölskylda á dýrmætar minningar um hana, sem engin skuggi fellur á. Fáum er gefið slíkt þrek og henni, hún var sterk og viðkvæm í senn. En kær- astar þakkir flyt, ég henni fyrir veittan styrk á erfiðri stund, fjöl- skyldu minni til handa. Guð blessi minningu hennar. Borg, 14. júní 1970. Páll Pálsson. 6 ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.