Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 20

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 20
Suðurlandsbraut 2, þar sem bráð- lega verður tekið í notkun hið nýja Hótel Esja. Jón var mikill þrekma’ur og ósérhlífinn. Vann hann að iðn sinni fram á áttræðis- aldur, hin síðari ár í samstarfi við son sinn. Var Jón mikiU gæfumað- ur í öllum sínum störfum bæði er varðaði þá sem hann vann fyrir, svo og þá sem unnu undir hans stjórn. Skyldurækni og samvizku- semi voru mjög ríkir þættir í fari hans og með fordæmi sínu var honum einkar lagið að fá starfs- menn sína til að sýna hið sama. Minnist ég þess ekki að hafa heyrt, að hann hafi orðið fyrir neinum óhöppum á hinum langa starfs- aldri. í einkalífinu var Jón einnig mik ill auðnumaður. Árið 1921 byggðu Jón og Kristín sér hús að Urðar- stíg 15 og bjuggu þau þar allt þar til á síðasta ári, er Kristín lézt hinn 1. september. Vantaði hana þá þrjá daga í að verða níræð. Hafði sambúð þeirra þá staðið í rúm 60 ár. Síðustu ár ævi sinnar hafði Kristín verið rúmliggjandi o,g kom þá ekki hvað sízt fram, hve traustur og umhyggjusamur Jón var. Var sambúð þeirra einkar kær og eftir andlát hennar mátti glögglega sjá að þar fór ekki sami maður og áður. Jón og Kristín eignuðust fimm börn, en þau eru: Elín gift Sigurði Bjarnasyni, Guð- rún gift Guðlaugi Þorsteinssyni, Aðalheiður gift Kristjáni Thorlací- us, Sigurlaug gift Aðalsteini Egiis- syni og Eiríkur kvæntur Sjöfn Jónsdóttur. Jón og Kristín voru mjög bók- hneigðar manneskjur og á Urðar- stíg 15 var mikið og gott bóka- safn. Það var ein bezta dægrastytt- ing þeirra hin síðari ár eftir að Kristín hafði misst sjónina, þegar Jón las fyrir hana og þá helzt um eiitthvað er minnti á líf þeirra i sveitinni áður fyrr. Jón var mikill unnandi íslenzkr- ar náttúru og naut hann helzt hvíldar frá daglegum önnum er hann í góðu veðri gat rennt fyrir silung eða lax. Hann hafði óbilandi trú á landinu og gæðum þess. Einn ríkasti þáttur í fari Jóns og það er að okkur barnabörnum hans og síðar barnabarnabörnum snéri var, hversu sérstaklega barn- góður hann var. Átti þetta við bæði um okku-r skyldmenni hans sem og önnur börn. Minnumst við hans með mikilli virðingu og þakk MINNING Sesselja Guðmundsdóttir frá Búð í Þykkvabæ, fyrrum húsfreyja á Bryggjum í Austur-Landeyjum Fædd 11. júní 1888. Dáin 16. júní 1970. Værð nú hlauztu víst og friðinn. Virðist tíminn nokkuð iðinn bleik að gera blóm á engi, breyta ævisumri í haust. Klukka dauðans kallar mengi, köld er hennar þunga raust. Hinztu ár á hækjum varstu, hugprúð elll og sjúkleik barstu. Lifði vonin ljúf í brjósti, lágt þó skini ævisól. Veraldar í vosi og gjósti veitti trúin öruggt skjól. ,K.yrrðin æ þig kringum ríkti, kvöldin vetrar iðja mýkti. Hannyrðir til halds og prýði heimilinu gáfu svip. Þú varst hetja í þínu stríði, þú kunnir hin réttu grip. Þjóðleg fræði þekktir. kunnir. Þykkvabænum sífellt unnir. læti fyrir atlæti hans í öllu okkar lífi. Því er það, að þeim er vel borgið förunautunum litlu, er verða honum samferða á þeirri ferð, sem nú er að hefjast. Sá tími ársins, sem færir okkur birtu og yl fer 1 hönd. Er það táknrænt fyrir ævi Jóns að kveðja á þessum tíma, þegar svo bjart er yfir öllu. Við sem eftir ilfum sætt- um okkur við vilja Hans, er öllu ræður því: Sé það svo. Nú hvílist hann. Hægist treginn ólmi. Það er gott fyrir gamlan mann Guði að falla á hólmi. M.J. Vertu sæll. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þorsteinn Guðlaugsson. Oft ég hlýddi á þig segja ýmsum liðnum stundum frá. Fannst mér sjálfum, að ég eygja ævaforna tímann þá. Kvödd ert þú af kærum vinum, komin burt frá jarðlífshrinum. Hábæjar und helgum sverði, við hlið þíns góða eiginmanns, hvílan hinzta vær þér verði. Vefur minning bjartan kranz. Auðunn Bragi Sveinsson. 20 ISLENDINGAÞÆrTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.