Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 15

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 15
Bæðl voru þau fædd og uppal- in í Strandasýslu. Brynjólfur faðir Andrésar lézt erlendis þegar Andrés var í frumbernsku og mun hann látið eða ekkert hafa haft af honum að segja. Faðir Herdísar var Þorsteinn smiður Þorleifsson í Kjörvogi, mörgum að góðu kunnur. Andrés faðir Sigríðar var talinn hygginn búmaður og smiður góður, en Her dís gæðakona, myndarleg i sjón og reynd. Systkini Sigríðar voru 5, Andrea Steinþóra, Þorsteinn. Herdís, Ás- geir og Helgi, sem öll éru nú lát- in að ég held, nema Helgi, sem enn er á lifi, háaldraður og á heima í Grundarfirði. Sigriður ólst upp í foreldrahús- um og mun jafnan hafa dvalizt þar til 1909, en þá giftist hún Jóni Guðmundssvni frá Biarnastöðum, mesta efnismanni og góðum dreng, en hann fæddist 19. júní 1881. Foreldrar Jóns voru Guðmundur Stefánsson og kona hans Valgerð- ur Rrandsdóttir, sem híðast bjuggu á Níp og létust þar bæði. Jón og Sigríður byrjuðu búskap í Hvolsvelli og bjuggu þar i eitt ár 1910—1911. Þá fluttust þau vestur á Snæfellsnes og bjuggu á Hellu í Beruvík, þar til Jón lézt á bezta aldri 24. júní 1918. f Beru- vík voru þá 4 býli, sem nú eru öll komin í eyði. Jón var vel gefinn gæðadrengur og stundaði um 'Skeið barnakennslu, bæði í Beru- vik. Ólafsvík og Sandi og þótti góð úr kennari. Þá var barnakennsla illa launuð og auðgaðist hann því ekki á henni. Þegar hann dvaldist við kennslustörfin, kom því í hlut Sigríðar að sjá um heimilið og börnin, sem voru þá orðin 5, og fórst henni það vel, þótt eigi væri gnótt í búi. Börn þeirra voru: Anna Herdís, Páll, Valgerður, Kornelía og Guðmundur, sem öll eru á lífi nema Kornelía, er lézt í frumbernsku. Eru systkinin 4 sem á lífi eru mesta myndarfólk og vel látin af öllum. Er Anna Her dís, sem er þeirra elzt, búsett í Hveragerði og ljósmóðir þar frá 1958, gift Guðmundi Pálssyni frá Höskuldsey, góðum dreng og mætum og eiga þau 4 börn á lífi. Áður var Anna Herdís ljósmóðir í Staðarsveit í meira en aldar- fjórðung. Valgerður er i Vestur- heimi, gift þarlendum manni, Guð mundur býr í Ólafsvík, en hvar Páll býr er mér ekki kunnugt, held þó að hann eigi heirna í Hafnarfirði eða Reykjavík. Um það leyti sem Jón maður Sigriðar dó, eða nokkru fyrr, réðist sem vinnu- maður eða forsjá heimilisins til Sigríðar, ungur maður að nafni Jóhann Magnússon. Hann var sum- part Snæfellingur, Dalamaður og Strandamaður að ætterni, hæglát- ur gæðadrengur. Honum giftist svo Sigríður 1919 og bjuggu þau eitthvað áfram í Helludal. Fluttust svo þaðan að Fossi í Neshreppt ut- an Ennis, sem nú er í eyði og bjuggu þar í nokkur ár. Á Hjalla- sandi áttu þau líka heima um hríð. Þaðan lá svo leiðin að Barðastöð- um í Staðarsveit, og þar bjuggu þau lengst, eða meðan þeim var samvista auðið, en Jóhann varð ekki gamall maður og lézt á bezta aldri 21. s eptember 1938, eftir langvarandi kvalafulla sjúkdóms legu, og varð þá Sigríður ekkja í annað sinn. Börn þeirra Jóhanns og Sigríðar eru fjögur og óll á lífi, en þau heita: Helga, Magnús, Jón og Ingibjörg, öll gift og eiga börn. Helga, sem er þeirra elzt, er_ búsett í Vesturheimi. sift enskum manni. Hin munu búa í Revkjavík og Hafnarfirði, að ég held. Eftir lát .Tóhanns manns síns bjó Sig- ríður með börnum sínum um hrið á Barðastöðum, en fluttist svo með þeim til Hafnarfjarðar og dvaldist þar ásamt þeim í nokkur ár. Öll siðustu æviár sín var hún svo hjá Önnu Herdísi ljósmóður elzta' barni sínu i Hveragerði, og var þar allt gert til þess að gjcra henni líf ið sem ánægjulegast, og þar Iðzt hún 12. jan. eins og fyrr er getið Þegar hún hætti búskap á Barða- stöðum fluttu þau Herdís og Guð- mundur þangað og bjuggu þar um alllangt skeið eða til 1958, er þau fluttu austur í Hveragerði og hafa átt þar heima síðan. Eins og sést á þessu stutta yfirliti þá fór Sig- ríður heitin eigi varhluta af mæðu og andstreymi lífsins, en allt mót- læti bar hún með þolinmæði og bugaðist ei þótt böési móti. Barðastaðir í Staðarsveit, jörðin sem Sigríður bjó síðast á, er ríkis- jörð og ekki stórt ábýli. Þar hefir þó verið búið lengi og oft sæmi- lega. Þegar Sigríður og Jóhann fluttu þangað stóð bærinn i jaðri Bláfeldarhrauns, langt frá alfara vegi, en þar hafði bærinn staðið frá fyrstu tið. Þar var lítið tún og erfitt til ræktunar, en engiatekjur voru allgóðar og sæmilegt til beit- ar. Fáum árum eftir að bau fluttu þangað, var bærinn fluttur niður á melana skammt frá siónum og þar reist myndarlest íbúðarhús. Mun betra er þar til ræktunar og svo var þióðvegurinn bar þá ör- stutt frá ihúðarhúsinu. og síðast en ekki sizt. að bar sást betur til sanðfjár easnvart flæðihættu. en hún er talsverð á Barðastöðum og einn af ókostum iarðarinnar. Eftir að bærinn var fluttur niður á mcl- ana var bar oft gestkvæmt og móti öllum tekið af hinni alkunnu íslenzku gestrisni. Þá var verzlað á Rúðum og lágu bví Piðir margva Staðsveitunga um hlaðið á Barða- stöðum. Ég, sem línur þessar rita, minn- ist margra góðra og glaðra stunda á heimili þeirra hjóna, og margan kaffisopann drakk ég hjá þeim og svo síðar hjá Herdísi dóttur Sigríð ar og manni hennar Guðmundi, enda var góður kunningsskapur okkar á miili. Sigriður á Barðastöðum, eins og hún var jafnan nefnd í Staðar- sveit, var myndarkona í sjón, hæg lát í fasi og hafði góða skapgerð. Hún var óhlutdeilin um annarra hagi og sameinaði flesta beztu kosti íslenzkra sveithúsfreyja. Vel var hún verki farin og vel greind. Ilún fór aldrei mikið út af heimili sínu, og var ekki fyrir það að trana sér fram né fáta á sér bera. Hún var öllum góð og vann verk sín hljóð líkt og konan Framhald á bls. 28. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.