Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 26

Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Blaðsíða 26
Og enn var þa-ð fleira, sem HreiC ar hafði að minnast frá dvöl sinni í Grímsey. Þegar hann var þar, höfðu Grímseyingar eignazt mikið og vandað bókasafn, sem Willard Fiske, amerískur vísinda- og fræði- maður, hafði gefið þeim, ásamt gildum fjársjóði í peningum o.fl. Má nærri geta, hvílíkt yndi hon- um hefur verið, Hreiðari, að eiga frjálsan aðgang að safninu, geta sökkt sér þar niður í margs konar fræði og listir og svalað þekking- arþrá sinni, og þetta því fremur sem bókakostur almennings var um þessar mundir minni en =iðar varð. Grímsey, kvæði Hreiðars Geir- dals, hefur verið Grímseyingum alla tíð frá þvi það var ort til þeirra ára, sem nú eru að líða, hið sama og okkur íslending- um var öllum um langan aldur „Eldgamla ísafold'1 — „Ágætust auðnan þér upp iyfti, biðjum vér“ sungum við í gamla daga og endurtókum þetta hvað eftir ann- að, og ekki sízt ef einhverjir sem með voru, höfðu bergt ögn á guða- veigum þeim, er lífga sálaryl og leysa tllfinningar úr læðingi. Þetta stóð nú hvergi í kvæði Hreiðars. En mér er nær að halda, aS Grímseyingum hafi stundum verið eitthvað álíka innanbrjósts, þegar þeir fóru með það. Og naumast get ég trúað þvi, að til séu margir fslendingar, sem meira halda í heiðri þjóðsöng Matt- híasar, „Ó. guð vors lands“ fog er þá langt til jafnað) en Grímsey- Ingar hafa haldið söng Hreiðars Geirdals. Og það þori ég að full- yrða, að ekki var til í Grímsey. þegar ég átti þar heima, eitt ein- asta barn, sem ekki kunni að minnsta kosti fyrsta erindi þessa kvæðis, væri það komið á þann aldur, að það gæti talað nokkurn veginn mælt mál. Við hvert einasta hátíðlegt tæki- fæ.ri sem Grímseyingar héldu upp á, og á hverri gleðisamkomu, er haldin var í eyjunni, meðan ég áttj þar heima, var söngur einna fyrir- ferðamestur liður á dagskránni. Þar sungu ekki aðeins fáeinir út- valdir. Þarna sungu allir, ungir og gamlir. Flestir sungu aðeins sömu rödd. Þá voru í eyjunni tveir á-gætir bassamenn og kunnu bassa við flest lög, sem sungin vorU. Veir drógu sig aldrei í hlé, þó að báðir væru orðnir nokkuð við aldur. - Ég mun aldrei hafa séð í Gríms- ey svo samstillta geislandi gleði 26 stafa af hverju andliti'sem á Fisks- afmæli, þegar söngur var hafinn með fyrsta erindi af kvæði Hreiðars Geirdals. Og hef ég þó oft séð Grímseyingar með gleðibragði. (Grímseyingar halda upp á afmælis dag Willards Fiskes á hverju ári. Sennilega hefur kvæði Hreiðars ver ið sungið í fyrsta skipti við það tækifæri.) Þegar hér var komið, hafði kvæð ið Grímsey verið sungið sem eins konar þjóðsöngur þessa fámenna, Iit-la eylands, hátt í hálfa öld. Brandur af brandi brennur unz brunninn er, funi kveikist af funa. Auðyitað er kvæðið Grímsey naumast meira en sem ein stein- vala i dálitlu steinasafni móts við allt annað, sem hann Hreiðar hefur ort, og ekki einu sinni víst, að það sé meðal þess, sem hann hefur kveð ið bezt. En ég efast um, að nokk- urt annað kvæða hans hafi í svo ríkum mæli hrifið hugi þeirra, sem með þau fóru, og það. Er ekki óhugsandi, að minning- in um höfundinn, sem enn lifði með fólki í eyjunni, hafi valdið nokkru um áhrif söngsins og vin- sældir. Kvæðið Grímsey er fjögur erindi. Það hefst á þessum orðum: Þú varst fyrr af mönnum metin meira en eyðisker. Er ég átti heima í Grímsey og (má telja víst) frá upphafi, var það sungið með sama lagi og Reykjavíkurminni Steingríms „Yfir fornum frægðarströndum“. Seinna gerði Sigursveinn D. Kristinsson, með samþykki og vilja höfundar, nýtt lag við kvæðið. Það kom út í ljóðasafni með nótum „fslandsljóð- um“, sem þeir söfnuðu til í félági, Sigursveinn og Hallgrímur Jakobs- son, en Alþýðusamband íslands gaf út 1948. Hreiðar Geirdal fæddist 4. jan. 1880 að Gilsfjarðarmúla í Austur- Barðastrandarsýslu. Foreldrar hans voru Eyjólfur bóndi Bjarna- son, prests í Garpsdal, Eggertsson- ar Bjarnasonar, Pálssonar land- læknis og Jóhanna Halldórsdóttir, prests í Tröllatungu, Jónssonar. ííreiðar var bróðir hinna þjóð- kunnu og margdáðu systkina, Guð mundar E: Geirdals skálds og Höllu skáldkonu Eyjólfsdóttur á Lauga- bólí. Og hann var föðurbróðir þoss mikilhæfa öðlingsmann*, Sigujf karls Stefánssonar kennara frá Kleifum í Gilsfirði. Hann stundaði nám í unglinga- skóla að Heydalsá í Steingríms- firði 1897—1898. Síðan var hann við nám hjá séra Jónasi Jónassyni á Hrafnagili 1904—1905. Jónas varð einn af allra kærustu vinum hans. Hreiðar dáði hann síð- an allá ævi. (Orð Guðnýjar Hreið- arsdóttur.) Hjá Jónasi lærði Hreiðar meðal annars að lesa ensku og þýzku og dönsku. Má nærri geta, hvílíkur andans fjársjóður sá lærdómur hef- ur orðið honum, öðrum eins bóka- manni. Sumarið 1909 var Hreiðar á kennaranámskeiði (í Kennara- skóla íslands?). Hefur það þá ver- ið á fyrsta starfsári skólans. Hann var stofnaður 1908. Á Húsavík í S.-Þingeyjarsýslu lærði hann söðlasmíði og stundaði þá iðn þar um skeið. Þetta var á árunum 1901—1908, þó ekki óslit- ið, því að það var einnig á þessum tíma, sem hann var við nám hjá séra Jónasi á Hrafnagili. Seinna stundaði Ilreiðar söðla- smíði á fsafirði (á árunum 1912— 1914). Hann var barnakennari í Geira- dalshreppi 1898—1899. f Grímsey var hann barnakenn- ari 1908—1912, eins og áður segir Á fsafirði stundaði Hreiðar verzl unarstörf lengst af frá 1914, þar til hann lét af starfi fyrir aldurssakir. Hann var mörg ár verzlunarstióri verzlunar, sem hann átti ekki sjálfur. Þá fluttist hann til Guðnvjar dóttur sinnar, sem þá var orðin ekkja. og þoldi með henni „súrt og sætt“, sagði Guðný en aðal- lega sætt“ hafði gamli maðiu'inn sagt, það sem eftir var ævinnar. En það urðu tæp fjórtán ár. Ég veit um mann, sem þekkti Hreiðar vel, búinn að vera sam- starfsmaður hans svo að mörgum árum skipti. Eftir honum hef ég, að hvert starf hans, Hreiðars, hafi einkennzt af drengskan og trú- mennsku, jafnt í stóru sem smáu. Ég hef það einnig eftir honum, að það hafi verið föst venja Hreið- ars að fara langar gönguferðir daglega að loknu dagsverki. Þeirri venju hélt hann áfram eftir að hann kom til Guðnýjar dóttur sinnar. Kvæði Hreiðars Geirdals hafa ÍSLEND1NGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.