Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Page 9
MINNING
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
FRÁ HRÚTSSTÖÐUM
Fædd 13. júlf 1876.
,Dáin 23. apríl 1970.
Skin og skúrir skiptust á á ævi
Guðbjargar Jónsdóttur. Líf fá-
tækra alþýðukvenna á síðustu ára-
tugum aldarinnar, sem leið, og
fyrra helmingi þessarar aldar var
sjaldan neinn dans á rósum. Ár-
ferði var oft hart til lands og sjáv-
ar, og framfara og taekni nútim-
ans var lítt eða ekki farið að gæta
1 sveitum landsins til að létta kjör
almennings. Lífsbaráttan var hörð,
og þeir, sem heltust úr lestinni,
áttu sér fárra kosta völ. Hjá því
varð þess vegna ekki komizt að
berjast upp á líf og dauða við oft
á tíðum harla erfið lífskjör.
Ouðbjörg var ekki gömul þeg-
ar hún og hennar fólk sættu harð-
ræðum lífsins. Systkinin voru tólf,
aðeins helmingur þeirra komst á
legg, hin dóu öll í bernsku. Hún
Var um fermingaraldur, þegar
hún missti föður sinn með hryggi-
legum hætti: hann varð úti í kaup-
staðarferð.
Guðbjörg Jónsdóttir fæddist I
brándarkoti í Laxárdal. Dalasýslu,
13. júli 1876. Foreldrar hennar
voru: Jón bóndi Jónsson. Árnason
®r, frá Glerárskógum, og kona
hans Solveig Jónsdóttir Vigfússon
®r frá Dröngum á Skógarströnd.
Börn þeirra urðu 12 eins og áður
sagði.
Guðbjörg ólst upp í fæðingar-
sveit sinni. Um skólagöngu og
ttienntun var, að sjálfsögðu, ekki
®ð ræða, þótt nægar hefði hún
'gáfur og vilja til slíks. Bæði var
Það, að fjárhagur le.yfði ekki slíkt,
og auk þess var það sízt í tizku
^ þeim tímum, að stúlkur hlytu
^lsögn að neinu tagi umfram hið
ðaglega amstur og búskaparstúss.
Mun Guðbiörg frænka mín þó
hafa þráð það alla ævi að njóta
fræðslu og lestrar, og til þess var
hún sérstaklega vel hæf sókum
gáfnafars og allrar andlegrar gerð
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
ar. Hún varð snemma gervileg
stúlka og frið sýnum.
Hún giftist 26. júni 1907, Böðv-.
ari Marteinssyni Magnússonar frá
Hamraendum í Stafholtstung-
um, en móðir Böðvars var Hall-
fríður Þórðardóttir, Steinþórsson-
ar frá Innra-Hólmi á Akranesi. —
Böðvar var merkilegur maður fyr-
ir ýmissa hluta sakir,- mikill og
stórhuga f;jörmaður. Sá maður var,
að eðlisfari, tæplega vel lagaður
til þess að berjast við fátækt og
kröpp kjör. Honum hefði hentað
betur að hafa mikil umsvif og
hafa stórframkvæmdir með hönd-
um. Slikur var stórhugur hans
alla tíð. þótt ævikiörin leyfðu hon-
um aldrei að njóta þeirra hæfi-
Ieika.
Börn þeirra Guðbjargar og
Böðvars voru: Árni, mikill efnis-
maður, sem lézt af slysförum,
kornungur, Solveig, ekkja Stefáns
Hjartarsonar frá Hjarðarholti, og
Hallfríður, gift Svavari Jóhannes-
syni. Þær systurnar eru báðar bú-
settar í Kópavogi.
Guðbjörg og Böðvar settust að
í Búöírrdai og bjuggu þar um
nokkurra ára skeið. Á þeim árum
fékkst Böðvar allmikið við smíðar,
en hann var járnsmiður góður, og
mun hafa haft allmikla stoð af
þeirrí iðn.
En árið 1920 bregða þau á það
ráð að hefja búskap á Hrútsstöð-
um, sem þá voru í eyði, og varð
Böðvar því að byggja upp öll hú°
bæði íbúðarhús og peningshus.
Jörðin var lítil, og búið því aldrei
stórt, en eins og áður er sagt,
hafði Böðvar jafnan nokkra stoð
af smíðum. Þau fluttust í Kópa-
vog 1954 og þar lézt Böðvar tveim-
ur árum síðar.
Fyrir allmörgum árum varð
Guðbjörg fyrir-því slysi að bein-
brotna illa, og mátti heita farlama
manneskja upp frá því. En þetta
nýja böl sitt bar hún með því
æðruleysi og rósemd, sem virtist
bæði meðfædd og tamin. Síðustu
árin dvaldist hún á heimili Hall-
fríðar dóttur sinnar ög manns
hennar, umvafin umhuggju og ást
ríki dætra sinna, tengdasonar og
barnabarna. Ævikvöld hennar var
friðsælt og 'kyrrlátt eftir langt og
að mörgu léyti mótdrægt líf, sem
átti sér auðvitað líka sínar björtu
hliðar.
Þegar ég nú hugleiði minningu
Guðbjargar föðursystur minnar,
virðist mér að það, sem einkenndi
hana einkum, hafi verið rótgróin
og eðlislæg prúðmennska, grund-
Völluð á djúpri trúartilfinningu og
virðingu fyrir lífi og tilfinningum
samferðamannann'a. Hún var göf-
ug kona af traustum stofni og
sjálf traustur stofn í hrjóstrugum
jarðvegi og þröngum kjörum. Hún
var hlédræg og allra manna yfir-
lætislausust. Samt verður minning
hennar ætíð skýr og yfirbragðs-
mikil í hugum þeirra, sem þekktu
hana bezt.
Ragnar Jóliannesson.
Kveðja frá barnabarni.
Er sumardagurinn fyrsti rann
tpp bjartur og fagur, og sólin
9