Íslendingaþættir Tímans - 10.07.1970, Page 17
og linnulausa baráttu að forða búi
sínu frá áföllum og skakkaföllum,
sem ekki voru ótíð á þeim árum,
og höfuð orsök efnalegs ófarnaðar
hjá mörgum. Börnuim sínum vildu
þau veita sem bezt og hollast upp-
eldi og standa að sínum hluta, að
þörfum og skyldum síns byggðnr-
lags. í þessu andrúmslofti ólst
Kristján upp og mótaði það hann,
að verulegu leyti, þegar á unga
aldri, eins og raunar systkinin öll.
En þau eru: Björn, bóndi í St.
Sandfelli, (félagsaðili við Kristján),
Haraldur, bóndi á Eyjólfsst., Bene-
dikt, bóndi Ásgarði kvæntur Þur-
íði Guðmundsdóttur, Þorgrímsson-
ar, bónda í Tunguhaga, og Sigrún,
húsfreyja í Arnkelsgerði á Völlum
gift Nikulási, hreppstjóra, Guð’
mundssyni. Allt er þetta mesta
dugnaðar- og sæmdarfólk.
Vorið 1922 lauk Kristján ágætu
prófi frá Alþýðuskólanum á Eið-
um, eftir tveggja vetra nám. Var
Björn bróðir hans þar einnig sam-
tímis, þó að hann væri nokkrum
árum eldri. Þar var þá skólastjóri
séra Ásmundur Guðmundsson, síð-
ar biskup. Voru þeir bræður í
miklu afhaldi hjá skólastjórahjón-
unum, fyrir ástundun og dugnað
í námi og ekki síður, að ég hygg,
fyrir hina traustu manngerð, er
þeir báru með sér, og heiibrigðan
metnað, sem fram kom í fari
þeirra. Skapaðist á milli þessa
fólks einlæg vinátta, sem hefur
verið æ síðan og orðið þeim bræðr
um til hvatningar og óblandinnar
ánægju á lífsleiðinni.
Um þetta leyti er bílaöldin fyrir
alvöru að hef.jast hér á Austur-
landi, þó að vegir væru i
fyilsta máta ófullkomnir og
flestar ár óbrúaðar. Verður
varla með orðum lýst, þeim
mikla mun, sem er á því að
vera vörubílstjóri nú, eða á þeim
árum. Kaupfélag Héraðsbúa hafði
á þessu tímabili mikla bílaútgerð,
til flutninga á þungavörum bænda
við þessar slæmu aðstæður. Til
greina kom því ekki í þetta starf,
annað en úrvalsmenn að dugnaði
og lagvirkni. Bílaviðgerðir, og allt
þar að lútandi, voru þá einnig að
mestu leyti á þeirra vegum. Krist-
ján gerðist bílstjóri hjá Kaupfélagi
Héraðstoúa upp undir áratug, eða
þar til búskapur í Sandfelli tók
krafta hans alla. Kristján var mik-
ill smiður, þó ekki væri hann
lærður í þeirri grein. Einn af þess-
um sjálfmenntuðu hagleiksmönn-
um, sem lagði gjörva hönd á hvað
eina sem fyrir hendi lá.
Það vakti atihygli á sínum tíma,
viðhorf Kristjáns og systkina hans,
til eignarjarðarinnar og foiældra
þeirra. Öll vildu þau veg þeirra
sem mestan og beztan á efn ár
unum og öll vildu þau hefja ætt-
arbýlið úr rýrum hlut í tölu góð
býla. Fram eftir æskuárunum
unnu þau öll að þessum hugðar
efnum sínum í félagi, og með sam-
stilltum kröftum. Það eru því í
raun og veru engar skarpar marka
línur um byrjun félagsbúskapar
þeirra Björns og Kristjáns, í St.
Sandfelli, né framkvæmdir þeirra
þar, en samstarfið hefur aldrei
rofnað og alla tíð verið hið bezta.
Hin systkinin leystu hins vegar fé-
lagsböndin, er þau stofnuðu sín
eigin heimili. Síðasta stóra félags-
átakið var íbúðarhúsið, fullgert
1930. Þá voru komin stór slétt
tún, gripahús og heygeymslur.
Kristján var aðalmaður við alla
smíði, jafnt íbúðarhúss sem úti-
húsa. Hann smíðaði einnig vönd-
uð húsgögn á hefilbekk sínum
heirna í Sandfelli, sem þóttu setja
þægilegan og stílihreinan svip á
þessa nýju íbúð.
Kristján kvæntist árið 1950 Sig-
urborgu Guðnadóttur, kaupm. frá
Eskifirð. Sigurborg er hin bezta
húsmóðir. Hlý í viðmóti og æðru-
laus, þótt eitthvað á móti blési og
manni sínum samhent um gest-
risni og myndarskap í öllu heim-
áilishaldi. Má með sanni segja að
hún hafi verið hinn góði andi þessa
heimilis frá því fyrst hún kom í
St. Sandfell.
Börn þeirra Kristjáns og Sigur-
borgar eru eftir aldursröð: Alda
Vilborg f. 1951, María Fanney f.
1953, Sigrún Birna f. 1954, Guðni
f. 1957 og Jóhanna f. 1960.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu eru systkinin öll á æsku-
skeiði og í skólanámi. Elzta syst-
irin, Alda Vilborg (er varð 19 ára
jarðarfaradag pabba síns) við nám
og störf í Svíþjóð. María Fanney
og Sigrún Birna á Alþýðuskólan-
um á Eiðum. Guðni og Jóhanna i
barnaskólanum á Hallormsstað.
Þegar Sigurborg kom í Sandfell
átti hún ungan son Bjarna Hagen,
sem þar hefur alizt upp. Hann er
nú lærður vélvirki og var að mestu
farinn að heiman.
Kristján var ekki mikið rlöinn
við opintoer mál, hafði þó
góða hæfileika þar til, því
að hann var bæði athug-
ull og gjörhugull. Björn bróð-
ir hans hefur aftur á móti verið
framámaður í flestum félagsmál-
um sveitarinnar um áratugi, svo
áhrifa Kristjáns hefur óbeint gætt
þar líka.
Kristján var vel máli farinn og
kom til dyranna eins og hann var
klæddur. Hugsaði sig um og setti
svo mál sitt fram með skýrum og
föstum rökum. Þó var hann aldrei
einstrengingslegur í málflutningi,
né skilningsvana á andstæðar
skoðanir. Hann var sýslunefndar-
maður sveitarinnar s.l. 20 ár. Ann-
ar af +veim virðingarmönnum
Brunabótafélags fslands og ýmis-
legt fleira.
Bræðrabúið í St. Sandfelli hef-
ur iengst af verið með beztu og
traustustu gjaldstofnum sveitar-
innar. Góður áfallalaus búskapur
og stöðugar ræktunarframkvæmd-
ir hefur einkennt það. öðru frem-
ur.
Kristján átti ekki margar hvíld-
arstundir um ævina. Margbreýtileg
störf í æsku á fátæku bændabúi
og síðar við þrotlausar fram-
kvæmdir og uppb'"™1"-'” síns
eigin heimilis, þó St. Sand-
fell II sé falleg jörð. á
hún þó mannshöndinni bað
að þakka, að hún er nú í tölu
stórbýla. Kristján var nær aldrei
iðjulaus, einn af bpi"-1
sem alltaf sá næg verk-
efni, utan húss og innan
og ósérhlífni hans. skyldu-
rækni og kappgirni. jaðraði sjálf-
sa.gt oft við ofurkapp.
Fyrir allmörgum árum tók
heilsa Kristjáns að bila. Mjaðma-
kölkun þjáði hann stórlega og fór
svo að hann lá mikið úr vetri á
sjúkratoúsi í Reykjavík. Fékk þar
nokkurn bata, en þoldi illa að
ganga að hinum lýjandi bústörf-
um á stóru heimili með þeim
átouga og skapgerð er honum var
svo eiginleg.
Ekki dró þó þessi sjúkleiki
Kristjáns til dauða, heldur kom
annað til, en vissulega var hann
búinn að lama heilsu hans og við-
námsþrótt. Er á þetta minnzt til
að sýna, að hann gekk ekki heill
til leiks síðari árin. En hann var
geiglaust karlmenni, sem gaf sig
ekki fyrr en allt um þraut. „Fyrr
en nokkurn varir er ævi mannsins
öll“.
Kristján Guðnason er sigldur
yfir landamæri lífs og dauða. Sveit
ÍSLENDiNGAÞÆTTIR
17