Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1974, Qupperneq 14
Jónas Jóhannesson
tryggingafulltrúi
f. 4/2 15)04
(I. 15/2 11174.
Siðast sá ég Jónas á sjötugasta af-
mælisdegi hans. Þá duldist mér ekki
að samferða yrðum við ekki öllu leng-
ur i þessu lifi. Langvarandi vanheilsa
hafði loks unnið bug á þrótti hans og
lifsþorsta.
jafnan er þegar vinir manns hverfa.
Aðstandendur hans eiga allir um sárt
að binda. og ekki sist öldruð og las-
burða fósturmóðir hans. er hann
hlynnti að eftir getu frá þvi hún missti
manninn á siðasta hausti. Einvera
hennar er mikil nú.
Gunnþór var lika mikill afi. og sár-
astur er kannski harmur barnabarn-
anna. ekki sist Lilju, svo sterkum
böndum sem þau voru tengd. Nú þarf
ekki að opna fyrir honum afa meir.
Hann kemur ekki oftar. En i hugum
okkar mun minning hans lifa og þar
mun hann verða áfram með okkur.
Þökk fyrir mig og mina.
Hjalteyri, 24. febr. 1974
Jón frá Fálmholti.
t
Gunnþór Bjarnason var fæddur i
Miðfiröi, Skeggjastaðahreppi, Norður-
Múlasýslu. Foreldrar hans voru
Bjarni Oddsson frá Felli og Guðrún
Vaklimarsdóttir hreppstjóra á Bakka.
l>egar á l- ári tók fööurbróðir Gunn-
þórs. Gunnar Oddsson, Gunnþór i fóst-
ur og ólst hann siðan upp hjá Gunnari
og Þórunni Kristinscjóttur konu
hans. Þegar Gunnþór var 5 ára komu
þau til Reykjavikur og bjuggu lengi á
Bragagötu. Má segja að Gunnþór hafi
verið Reykvikingur siðan. Gunnþór
stundaði almenna verkamannavinnu
meöan heilsan leyfði, var m.a. lengi
hjá Rikisskip. Kona Gunnþórs var
Valgeröur Ólafia Þórarinsdóttir og
áttu þau 4 mannvænleg börn, sem nú
eru upp komin.
Þrátt fyrir það var það hans einlægi
vilji, að þessa dags skyldi minnzt með
fagnaði i hópi vina og venzlamanna.
Við þessi leiðarlok er mér efst i huga
þakklæti til þín fyrir hálfrar aldar
samleið og órofa vinarþel. Ég þekkti
þig að þvi, að vera litt gefinn fyrir
skjall og raup. En ég stend i þakkar-
skuld. Þess vegna verður þú að fyrir-
Undirritaður knntist ekki Gunnþóri
fyrr en fyrir örfáum árum, en þá tók
Gunnþór að sér innheimtustörf fyrir
Letur s/f og sá um þau störf með trú-
mennsku og ósérhlifni þótt heilsan
væri farin að bila, einkum s.l. ár, en þá
var Gunnþór lengi frá vinnu vegna
hjartasjúkdóms, sem nú hefur dregið
hann til dauða. Gunnþór var drengur
góður, vildi öllum vel og stóðst ekki
reiðari en ef okkur vinum hans varð á
að hallmæla öðrum. Hann vildi aö
menn væru frjálsir að þvi að sinna
hugðarefnum og var ekki laust við að
stundum væri hin ..frjálsa sam-
keppni” rædd af kappi i okkar hóp, er
saman unnum. Sýndist þá sitt hverjum
eins og gengur. en sannast mála er að
beztu eiginleikar Gunnþórs voru ekki
af þvi taginu, sem nýtast til aö troðast
fram úr öðrum eöa láta kné fylgja
kviði. Þótt við vinnufélagarnir höfum
e.t.v. ekki i oröi kveönu aöhyllzt sömu
hugsjónirnar eða stjórnmálastefnur
að öllu leyti er þaö trúa min að virð-
ingin fyrir einstaklingnum — hinum
smáa órofa hluta heildarinnar — hafi
verið rauður þráður i hugmyndum
Gunnþórs eins og flestra sannra al-
þýðumanna. í samfélagi framtiðar
munu hæfileikar manna eins og Gunn-
þórs fá að njóta sin betur en nú um
sinn.
Samstarfsfólk Gunnþórs þakkar
honum samfylgd i starfi og striði lifs-
ins og sjálfur vil ég sérstaklega þakka
honum góða viðkynningu,einlæga vin-
áttu og trúmennsku i starfi, sem ekki
var alltaf þakkað sem skyldi.
Sigur jón Þorbergsson.
gefa mér, aö ég legg þetta litla blað á
leiði þitt. Auk þess yljar það mér, að
láta hugann reika til gamalla daga.
Þær systur sorg og gleði knúðu dyra
þinna, sem annarra, á langri æfi. En
þér var ekki tamt að bera tilfinningar
þinar á torg, eða iþyngja öðrum,væri
þér eitthvað mótdrægt. Hitt var þér
meira i mun að koma færandi hendi.
,,Ei vitkast sá sem verður aldrei
hryggur
hvert viskubarn á sorgar
brjóstum liggur’.’
Gunnþór Bjarnason var fæddur i
Miðfirði i Skeggjastaðahreppi 25.
ágúst 1925, og dáinn 16. febrúar 1974.
Foreldrar hans voru Bjarni Oddsson
búfræðingur og Guðrún Valdemars-
dóttir Magnússonar hreppstjóra.
Þorbjörg móðir Guörúnar var
Þorsteinsdóttir, Þorsteinssonar rika á
Bakka i Skeggjastaðahreppi, og Gunn-
hildur móðir Bjarna, Bjarnadóttir
borgara á Raufarhöfn, Þorsteinssonar
rika á Bakka. Foreldrar Gunnþórs
voru þvi þremenningar.
Bjarni og Guðrún áttu 10 mannvæn-
leg börn, sem öll komust til þroska.
Gunnþór ólst upp hjá Gunnari Odds-
syni og konu hans Þórunni Kristins-
dóttur. Hann var sem þeirra barn.
Gunnþór var svo sem ættmenn hans
grandvar um náungann i tali og prúð-
ur. Hann vann ýmist á sjó og landi og
nú siðast við innheimtu hjá ..Letur
hf ”.
Kona hans og móðir fjögurra barna
þeirra, var Valgeröur Þórarinsdóttir.
ftg votta aðstandendum hans inni-
lega samúð.
Blessuð sé minning hans.
Þórarinn
fró Steintúni
14
islendingaþættir