Heimilistíminn - 24.10.1974, Síða 14

Heimilistíminn - 24.10.1974, Síða 14
þeir vissu að gamli urriðinn var mjög vitur. Uggi hugsaði i þrjá daga og þrjár nætur um allar að- varanirnar. En þegar hann leit upp og sá hvað allt var dökkt og drungalegt þar og hann fann, hvað honum leið illa i tálknunum, sagði hann við sjálfan sig. — Uss, það er áreiðanlega ekkert hættulegt. Á morgun legg ég af stað. Uggi kvaddi engan. Hægt og rólega synti hann upp ána. Hann vissi, að fyrsti hlutinn var ekkert hættulegur, þvi þar hafði hann átt heima, þegar hann var litið seiði, ásamt mörgum hundruðum annarra urriðabarna. Þá hafði hann tekið margan sprettinn milli steinanna á botninum og leikið sér af hjartans lyst, en nú sá hann bara þrjú urriðabörn sem lágu kyrr og opnuðu og lokuðu munnunum til skiptis móti straumnum. — ó, Uggi hvert ætlarðu? spurði eitt þeirra. — Ég ætla það langt, að ég get séð sólarljósið glampa á steinum i botninum, sagði Uggi. — Viljið þið koma með? — Ó, andvörpuðu urriða- börnin. — Okkur langar til þess, en við treystum okkur ekki til þess. Auk þess erum við of litil til að stökkva upp fossinn. — Já, það er líklega rétt, sagði Uggi og veifaði með sporðinum i kveðjuskyni. — Bless, Uggi! Góða ferð! kölluðu urriðabörnin á eftir honum. Það drundi i höfðinu á Ugga, þegar hann nálgaðist fossinn. Vatnið freyddi yfir klöppina og Uggi herti á sér og stökk Hann komst framhjá foss- inum, en varð að spenna hvern einasta vöðva til að berast ekki niður aftur með vatninu. Andartak var hann kyrr, en svo tókst honum að skjótast á öruggan stað undir steini. Þar hvildi hann sig þar til næsta morgun. Þegar tók að birta, hélt hann áfram. Nú var áin slétt og róleg og það var sef meðfram bökkunum. Uggi var svo svangur, að garnirnar gauluðu og hann var alltaf að svipast um að einhverju æti- legu. Þá sá hann stóran ál, sem hamaðist og sneri upp á sig i allar áttir. — Hvað er að þér, áll? Ertu veikur? — Nei, það er verra en það, svaraði állinn. —p Það er búið að veiða mig. í nótt át ég ána- maðk, en inni i honum var öngull og nú er ég fastur. Svo fór hann að vinda sig og hamast á nýjan leik. Sér til skelfingar sá Uggi, að állinn var dreginn upp úr vatninu á finum þræði. — Bless, Uggi! kallaöi állinn, um leið og hann hvarf — Borðaðu aldrei ánamaðk! Uggi synti áfram, en hann var ekki kominn langt, þegar hann sá stóran og feitan ána- maðk koma fljótandi með straumnum. Ó, hann var svo voðalega svangur, en varð hugsað til ráðsins, sem állinn hafði gefið honum, svo hann snerti ekki maðkinn. Og þegar hann flaut framhjá, sást vel, að hann var i finum þræði. úff, hugsaði Uggi, það var eins gott að gæta sin á þessum slóðum. En eitthvað varð hann að borða og þegar hann kom auga á flugu i vatnsborðinu, stökk hann upp og gleypti hana. Þetta var sú alversta fluga, sem hann hafði nokkurntima bragðað. Hún stakk hann i munninn og svo fór hún allt i einu að draga hann að landi. — Þarna! hrópaði maður, sem stóð á bakkanum með veiðistöng. — Þarna fékk ég loksins fisk. Uggi streittist á móti, en það stoðaði ekkert. Hann var dreginn nær og siðan slengt í boga gegn um loftið og loks datt hann spriklandi niður á jörðina. Maðurinn beygði sig niður til að gripa hann, en i sama bili og stór hnefinn lokaðist um hann, tók hann kipp og skrapp úr hnefa mannsins þegar hann ætlaði að fara að stinga honum í pokann sinn. Uggi datt aftur i grasið, en þegar hann sá, að hann var nálægt ánni fór hann að hamast eins og állinn hafði gert, til að reyna að ná vatn- inu. Maðurinn varpaði sér á hann, en Uggi tók enn mikinn kipp og lenti á ánni. Hann leit ekki við, en synti eins hratt og hann gat upp ána. Gamli urriðinn i tjörninni hafði sannarlega haft rétt fyrir sér þarna. Áin var hættu- leg. í tvo daga hvíldi Uggi sig i sefinu, en nú var hann orðinn svo hræddur við að borða, að hann snerti hvorki ánamaðka né flugur og meira að segja litlu krabbana lét hann i friði, þó þeir væru það bezta sem hann fékk. Nú miðaði honum verr er hann hélt áfram ferðinni. Hann varð horaðri með hverj- um deginum og kraftarnir minnkuðu. Einn daginn kom hann að tjörn. Kannske ég geti sezt að hér, hugsaði hann, þvi nú get ég varla komizt lengra. En þar sem hann var og kastaði mæðinni, sá hann að stór skuggi féll á botninn. Hann leit við og sá þá risa- stóra geddu horfa á sig. 14

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.