Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 18

Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 18
Mörg hjón þurfa að finna sjólf sig aftur, þegar þau eru búin að ala upp börnin og Ijúka störfum. Sumum tekst það, öðrum ekki. Sum verða hamingju samari en nokkru sinni, en önnur verða að horfast í augu við það, að þau þola ekki lengur aðilann, sem þau hafa lifað öllu lífinu með. AÐ ELDAST SAMAN Iburöarmiklar yfirlýsingar um ást geta hljómað dálltið undarlega. Til dæmis þeg- ar kona segir: — Hann er allt mitt lif, eöa þegar karlmaður segir: — Ég get ekki sofið, þegar hún er ekki hjá mér. Maöur trúir ekki svona nokkru. En þetta hljómar ööruvisi, þegar þeir sem segja þaö eru kannski á sextugs- eöa sjötugsaldri og hafa verið i hjónabandi i 30 eða 40 ár. Þá er það hrifandi — og sannfærandi. Þvi þannig er þaö, þegar fólk hefur veriö saman I svo langan tima, sofiö saman, vaknað saman og gert alla hluti saman, og tilfinningin, sem varð til þess að þetta fóik gifti sig er enn við lýði. Hér fara á eftir úrdrættir úr viðtölum við gamalt fólk og það er sitt af hverju, sem þar kemur fram: — Það er rétt, að tilfinningarnar breyt- ast með árunum. Likamleg ást skiptir ekki svo miklu máli lengur, en manni þykir vænna um hinn aðilann. Ég sé aö konan min er orðin gömul, en mér finnst ég eiga meira i henni nú, þegar aðrir karl- menn hafa engan áhuga á henni lengur. Þvi miöur er^ekki mikið til af þannig hjónum. Flest þurfa að berjast fyrir að halda sambandi sinu nokkurn veginn á- fallalausu um margra ára skeið. Það get- ur gengið af sjálfu sér meðan börnin eru að komast á legg og foreldrarnir þurfa að einbeita sér að þeim, og á meðan fjárhag- ur, vinir og fjölskylda halda öllu saman. Arin liða fljótt, hlutirnir ganga ekki sér- lega vel og ekki heldur sérlega illa, þann- ig að engin ástæða er til skilnaðar. Svo er maður orðinn fimmtugur. Ekki 18

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.