Heimilistíminn - 24.10.1974, Page 28

Heimilistíminn - 24.10.1974, Page 28
iklÐINNI Fullmótuð kona — allt tal um jafnrétti drengja og telpna leiðir AAaría hjó sér. MARÍA er aðeins sex ára, en þrátt fyrir það er hún kona. Hún hefur alizt upp hjá nútima foreldum, sem eru þeirrar skoðunar, að drengir og stúlkur eigi að hafa nákvæmlega sömu aðstæður á öllum sviðum, en það hefur ekkert stoðað. Þegar er Maria var tveggja ára, gerði hún foreldrunum skiljanlegt, að hún hefði ekki áhuga á öðrum leikföngum en brúð- um. Þau gátu sjálf haft alla Indiánana, hermennina og bilana, það kærði hún sig ekkert um. Frá sama tima og næstu tvö árin, gekk hún nær alltaf með hárkollu möður sinnar. Maria hafði þunnt ljóst hár, sem ox hægt og hún vildi ekki láta sjá sig með drengjakoll. Það var ekki fyrr en hár hennar tók að vaxa og þykkna, að hún fleygði hárkollunni. Hún hugsaði vel um hárið á sér, þvoði það, setti i það rúllur og sat i hárþurrku, greiddi sér og burstaði. Sjaldan gekk hún i sinum eigin fötum, þegar hún lék sér, en hins vegar vildi hún vera i balletkjólum, siöum sigaunapils- um, og blúndukjólum og helzt gylltum skóm. Hún var iðin við að útvega sér þessi föt sjálf. Eins hefur það verið siðustu árin: Brúður, kvenleg föt, prinsessu- kjólar, gull- eða lakkskór, veski og snyrti- vörur. Hún hefur lært að mála sig og gerir það vel og vandlega. Meira að segja augn- skugga og augnlinu setur hún á sig eins og fullorðin kona. Þegar vinir koma i heim- sókn bregður hún sér inn i herbergi sitt og málar sig, en aðeins ef karlmenn eru meðal gestanna. Hún er ekkert hrifin af konum og nennir ekki að mála sig fyrir þær. Þótt allir félagar Mariu klæðist galla- buxum, vill hún vera i kjól og smekkur hennar er hinn ótrúlegasti. Það eina sem getur fengið hana til að fara i siðbuxur á veturna, er að hún þolir ekki sokkabuxur. Þær stinga hana. Hún daðrar ófeimin við karlmenn og er alltaf skotin i einhverjum strák, en þeir eru svo likir, að foreldrarnir rugia þeim saman. Allir eru þeir grannir, ljóshærðir og tandurhreinir. Hún lætur þann sem hún er skotin i þá stundina bjóða sér sitt af hverju. Hann má auðmýkja hana, slá til hennar, kalla ljótt á eftir henni, en alltaf finnur hún afsökun fyrir hann. Móðir Mariu vinnur úti hálfan daginn og fær konu til að hjálpa sér með hreingerningar einu sinni í viku. En Maria litur það hornauga. Hennar skoðun er að konur eigi að vinna heima hjá sér við að hugsa um börn, þvo og elda mat. Nenni þær þvi ekki, eru þær latar, Hún segir öllum, sem vilja hlusta, að manna hennar nenni ekki að gera hreint. Maria elskar smábörn og er goð við yngri systkini sin og einstök móðir brúðanna sinna sem eru einar 30 talsins,- Flestar þeirra hefur hún keypt fyrir vasa- peningana sina og engin þeirra gleymist. Foreldrar Mariu hafa áhyggjur af henni. Þau hafa alltaf verið þeirra skoðunar, að umhverfið hefði mest áhrif á persónuleika barna, en þau trúa þvi ekki lengur. Liklega er ekki svo auðvelt að breyta meðfæddum eiginleikum barna. 28 V

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.