Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 3
Elsku Alvitur minn.
Ég hef heyrt að svitaspray geti
verið hættulegt og jafnvel valdið
krabbameini undir höndunum. En
með hverju á maður þá að fjarlægja
svitalykt?
Sveitt.
svaf: Þetta er áreiðanlega della og
vitleysa. Þú skalt bara halda áfram
að nota svitasprayið þitt. Annars er
það misskilningur, að þetta fjarlægi
svitalyktina, það er aðeins hægt að
fyrirbyggja hana með þvi að nota
sprayið eftir rækilegan þvott. Sé svita-
lykt komin, dugar ekkert nema vatn
og sápa, og siðan svitaspray. Annars
eru lika til rúllur og svitameðul i öðru
formi.
Alvitur.
Kæri Alvitur.
Mig langar að spyrja þig nokkurra
spurninga, sem ég vonast til að fá svar
við.
1. Hvers vegna eru kýr sóignar i plast?
2. Er hægt aö taka bflpróf áður en
inaður er 17 ára?
3. Hvar er hægt að læra vélritun?
4. Hvað kosta einfaldir trúlofunar-
hringar nú til dags?
5. Hvernig eiga steingeitarstelpa og
tviburastrákur saman?
6. En steingeitarstelpa og ljónsstrák-
7. Hvernig er skriftin og hvaö heldur
þú að ég sé gömul?
Svo þakka ég fyrir gott blað og sér-
staklega góðar smásögur. b B B
svar: 1. Eg hafði ekki hugmynd um að
þær væru það, enda var ekki til plast i
minni sveit i gamla daga. Það hlýtur
að vera eitthvert bragð að þvi, sem er
aðlaðandi fyrir kúabragðlauka.
2. Nei.
3. Til dæmis heima hjá sér, eftir
kennslubókum fyrir sjálfsnám, en þá
má ekki svikjast um að æfa sig, þó það
sé drepleiðinlegt. Svo þarf auðvitað að
eiga ritvél til þess.
4. Þeir allra ódýrustu munu kosta um
24 þúsund krónur, en það er svolitið
breytilegt eftir stærðinni, þvi gullið er
selt eftir vigt.
5. Þau geta átt vel saman, ef hún gætir
þess að segja honum ekki fyrir verk-
um, heldur lofar honum að ráða flestu.
6. Ljónsstrák hættir til að bera heldur
litla virðingu fyrir finustu tilfinningum
steingeitarstelpu.
7. Skriftin er ágætis skólaskrift, laus
við persónuleika, en það lagast von-
andi með timanum. Þú ert svona 13 til
14 ára.
Alvitur.
Konulu sæli, Alvitur!
Mig langar til að biðja þig aö svara
eftirfarandi spurningum:
1. Er til eitthvað við miklum hárum á
handleggjunum?
2. Geta göt I eyrum gróið aftur ef mað-
ur tekur eyrnalokkana úr þeim i
nokkra daga, ef þau hafa gróið áður?
3. Hvað á ég að vera þung, ef ég er 146
cm há?
4. Er fiskur fitandi?
5. Finnst þér fallegt að vera með göt i
eyrunum?
6. Ertu karl eða kona?
Hvernig er stafsetningin og skriftin
og hvað lestu úr henni? Hvað heldurðu
að ég sé gömul?
Ein spurul.
svar: 1. Háreyðingarkrem er bezt, ef
þú nennir ekki að plokka hárin.
2. Þau gera það vist á sumum, en öðr-
um ekki. Ef þau hafa gróið saman áð-
ur á þér, þá máttu búast við að þau
geri það aftur.
3. Það fer eftir aldri og beinabyggingu,
en ætli 40—45 kiló sé ekki nálægt þvi
mátulega.
4. Nei, ekki eintómur, en kartöflur og
annað dót, sem haft er með honum, er
það hins vegar oftast.
5. Nei, en ef I þeim eru eyrnalokkar,
sem fara manneskjunni vel, eða hárið
hylur götin, hef ég ekki yfir neinu að
kvarta.
6. Það skiptir ekki nokkru máli og alls
ekki á þessu ári. Stafsetningin gæti
verið talsvert betri og skriftin er við-
vaningsleg, en það getur lagazt. Úr
skriftinni les ég helzt, að þú sért dálitið
uppátækjasöm og jafnvel biræfin á
stundum. Þú ert svona 12—13 ára.
Alvitur.
Meðal efnis í þessu blaði:
GuglielmoMarconi.......................Bls 4
Eldhúskrókurinn, Pylsur................— 8
Gamli frakinn er verndargripur
Colúmbos................................ — 10
Pop— Roger Daltrey.......................— 12
Hún sá 40 þúsund manns deyja.............— 13
Einhver til aðtala við, smásaga..........— 15
Spé-speki ...............................— 17
Einkastjörnuspáin .......................— 18
Börnin teikna............................— 20
Borðrenningur og klukkustrengur..........— 22
Byltingintekuraldrei enda................— 24
Myndin, smásaga..........................— 25
Hvað veistu?.............................— 25
Fallegasti fugl íheimi, barnsaga.........— 26
Sjónarhornið, Ijóð...................... — 28
Föndurhornið, skíðasleði.................— 29
Gægst i heimspressuna....................— 30
Eru þær eins?.......................... .— 31
Vaktavinna veldur f jölskylduvandamálum.— 32
Magnús i hættu (13) .................... — 33
Aðeinseinn kostur (sögulok)..............— 35
í ævintýraleit (1).......................— 36
Pennavinir.............................. — 38
Ennfremur krossgáta, Alvitur svarar og skrýtl-
ur. Forsiðumyndina tók Gunnar V. Andrésson í
haustblíðunni á Seltjarnarnesi.