Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 30

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 30
Gægst í heims pressuna Ómanneskjulegt I Bretlandi deyja daglega tvö börn vegna misþyrminga foreldranna. Þetta kemur fram i ársskýrslu samtaka sem berjast gegn grimmd foreldra viö börn sin. Sambandið hefur haft afskipti af 65 þúsund tilfellum og harmar hina miklu aukningu á þeim tilfellum, þegar börn eru skilin eftir ein og skaða sig eða for- eldrarnir berja til óbóta. Sum barnanna eru brennd með sigarettum eða barin með rafmagnssnúrum og i mörgum tilfellum eru þau hálfdauð úr hungri. (Economist, England). Skuldadagar Francesca Chessa, kona á Sardiniu sem slapp við fangelsisvist árum saman með þvi að eignast stöðugt börn, fæddi nýlega það átjánda. Hún var á sinum tima dæmd fyrir svik og falsanir, en samkvæmt itölskum lögum má ekki setja konu i fang- elsi ef hún er ófrisk eða hefur barn á brjósti. En nú er komið að skuldadögum, þvi eiginmaðurinn er orðinn þreyttur á þessu og neitar að eignast fleiri börn. (Saunday Times, England). Aftur til dagblaðsins Burt frá sjónvarpinu, aftur að dagblað- inu — það er nýja stefnan i Bandarfkjun- um. Skoðanakönnun hefur leitt i jós, að 54% lesa dagblað reglulega til að fylgjast með og það er 5% meira en fyrir einu ári. Sjónvarpiðer að mestu talið dægrastytt- ing, 42% horfa á það sem slikt.'en aðeins 8% nota það til að fylgjast með gangi heimsmálanna. Fyrir ári voru hliðstæðar tölur 34% og 9%. (New York Times, USA). Úr öskunni i eldinn Sá sem heldur, að hann minnki hættuna af reykingum með þvi að vera alltaf að kveikja ogslökkva i sömu slgarettunni, er á villigötum. Hannsókn, sem gerð hefur verið á 5500 manns við Thomas-sjúkra- húsið i brezka bænum Stockport, sýndi, að þessi aðferð eykur hættuna á stöðugri berkjubólgu um 15%. Tóbakið nýtist mun betur við þessa skömmtun og enn meiri 30 tjara og nikótin safnast i stubbinn. (Der Kurier, Austurriki). Afram upp ! Evrópumaðurinn árið 2000 getur ósköp vel orðið tveir metrar á hæð, svona meðalmaður, að þvi er rannsóknir i A-Þýzkalandi segja okkur. Samanburður á likamlegum eiginleikum 14 ára drengja frá árinu 1955 og sömu eiginleikum drengja fæddra 30 árum fyrr, leiðir i ljós, að 1955-drengirnireru 10 cm hærri en hin- ir og tiu kílóum þyngri hver. Ef svona heldur áfram, verða risar ekkert sérstakt fyrirbæri árið 2000. Astæðan! Við borðum of mikið og umframmagnið fer til að byggja upp likamann. (Der Morgen,' A-Þýzkalandi). Heimur tækninnar Parisarbúar fá sektir, ef þeir fóðra dúf- ur borgarinnar næsta hálfan mánuð. Þessa daga munu yfirvöldin sjá um að fóðra þær á ornitol, efni sem gerir að verkum, að dúfurnar verpa ófrjóum eggj- um i hálft ár. Nú óhreinka um 70 þúsund dúfur borgina og takmarkið er að fækka þeim niöur i 20 þúsund. Tilraun til að handsama þær og senda út i sveit, var gerð fyrir nokkrum árum, en mistókst gjörsamlega. Nú eru vonirnar bundnar við ornitol, sem komið hefur að góöu gagni i Bandarikjunum. (Paris Soir, Frakklandi). Framsýni Fyrsti kanslari Sambandslýöveldisins Þýzkalands Konrad Adenauer var lika snjall uppfinningamaður. 1 rykugum skúffum með eigum hans hafa fundizt teikningar, sem minna á hinar frægu skissur da Vincis, svo og ýmiss konar tilraunabúnaður. Þegar árið ’904 var þessi frægi stjórnmálamaður að reyna að leysa vandann með að hreinsa útblástur frá bifreiðum og meira en þrjátiu árum siðar sotti hann um einkaleyfi á uppfinn ingu til þess. Adenauer leitaði lika að að- ferðum til að auka geymsluþol pylsna og einnig til að framleiða pylsur úr soja- baunum. Hann lét einnig smiða likan af kaffikönnu með rafhituðum botni. (Sud- deutsche Zeitung, V-Þýzkalandi). Eitthvað að hlakka til Stórkostlegt eldgos, ef til vill fyrir næstu aldamót, vekur hjá visindamönn- um áhyggjur vegna ibúanna i Washington — og Oregonfyljum i Bandarikjunum. ógnunin er 3000 metra hátt eldfjall, Mount St. Heléns, sem er 80 km norðan við Portland, en það er talið virkasta eld- fjall i Ameriku utan Alaska og Hawaii- Hvildartimabil fjalls þessa eru sjaldan lengri en 100 til 150 ár og siðasta gos var 1857. Hraunrannsóknir vitna um tvö stór- gos, árin 1500 f. Kr. og fyrir 4000 árum, þegar meiri aska lagðist yfir N-Ameriku en Vesúvius gaus, þegar Pompei hvarf. (Der Spiegel, V-Þýzkalandi). Öfugþróun i Bretiandi Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs, hefur það komiö i ljós, að i fyrsta sinn siðan manntal hófst i Bretlandi og ef til vill allar götur siðan Svarti dauði herjaði, eru fleiri skráðir látnir en fæddir. Fjölgun hefur ekki orðið að neinu marki siðustu árin og nú fæðast ekki fleiri börn en svo, að rétt dugir til að halda Ibúatölunni i horfinu. Miklaröldur barnsfæðinga gengú yfir landið eftir heimsstyrjaidirnar, svo og á velmegunarárunum um 1960, en ann- ars hefur fjölgunin verið litil i heila öld. Sérfræðingar eru ekki á eitt sáttir um, hvernig þróunin muni verða i þessum málum og yfirvöld vita ekki sitt rjúkandi ráð, hvað verðar áætlanagerð um skóla, sjúkrahús, ibúðabyggingar og matvæla- framleiðslu. (Sunday Times, Englandi)- Mislitt yfirlit Siðustu töur I yfirliti um innflutning Breta, hafa komið sem áfall yfir brezka dýravini. Þær sýna sem sé að eftir undir- ritun alþjóöasamnings um verndun villtra dýra, hafa Bretar flutt inn helmingi fleiri hlébarðaskinn en áður. Árið 1973 fluttu þeir inn 900 skinn, en i fyrra 2121. Á lista dýraverndunarráðsins er hlébarðinn eitt þeirra dýra sem er i mikilli útrýmingar- hættu, en það virðist ekki geta breytt þeirri skoðun Breta, að skinn hans fari þeim betur en dýrinu sjálfu. (Daily Mirr- or, Englandi).

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.