Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 10

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 10
Gamli frakkinn er verndargripur Columbos I gærkvöldi sáum við Columbo í fyrsta sinn í sjónvarpinu. Hér er svolítill fróðleikur um hann og ínæstu viku kynnist kynnumst við McCloud hér í blaðinu Peter Falk lét loks telja sig á aÖ leika Columbo, eftir að hafa neitað, eins og Bing Crosby og fleiri þekktir leikarar. Sjálfur var Peter óþekktur, en sem Columbo er hann orðinn heimsfrægur og fær hundruð bréfa á viku. Auk þess er hann orðinn vellauðugur af þessu. Peter Falk fæddist fyrir 46 árum i Ossining i New Yorkriki, þar sem foreldr- ar hans eiga enn vöruhús. Þegar hann var þriggja ára, missti hann annað augað vegna sjúkdóms og hefur siðan notað gerviauga, en það kom ekki i veg fyrir að hann iðkaði iþróttir og væri i flotanum — sem kokkur. Siðan hlaut hann verzlunar- menntun og vildi verða njósnari og sótti um hjá öryggislögreglunni, en þar var hlegið að honum, af þvi hann hafði eitt sinn starfað hjá fyrirtæki, þar sem „bleikur” litur var á hlutunum og svo hafði hann farið i sumarleyfi til Júgó- slaviu. 1 staðinn fór hann i leiklistarskóla. Næstu árin lék hann smáhlutverk á sviði, i sjónvarpi og kvikmyndum, en. svo kom Columbo til sögunnar. Peter Falk eyðir löngum tima i að um- semja handrit höfundarins, þvi hann vill hafa allt fullkomið. Hann munar ekkert um að taka sama atriðið upp 200 sinnum, áður en hann er ánægður með það. Konan hans segir að hann hugsi sig svo lengi um, 10

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.