Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 6

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 6
og menn voru önnum kafnir viö aö setja þessi nýju undratæki i skip. Marconi-stöövar þutu upp um allan heim og Marconi, sem var 28 ára, var þegar heimsfrægur og vellauðugur maður. Frækileg björgunarafrek Það var skipsradióið sem mestrar hylli naut næstu árin. Þúsundum mannslifa var bjargað fyrir tilvist þess. Fyrstu árin notuðu loftskeytamenn bókstafina CQ sem almennt kallmerki ef hætta var á ferðum, var D bætt við. Neyðarkalið var þá CQD og þýddi fólk það þegar „Come Quick, Danger” (Komið fljótt, hætta). En þessir 3 stafir voru langir og leiðinlegir á morsi svo samþykkt var að skipta um og nota i staðin SOS ( ...--...) sem var þýtt „Save Our Souls” (Bjargið sálum okkar). Fyrsta stórkostl. björgunarafrekiö, sem beinlinis mátti þakka loftskeytum Marconis, var 29. janúar 1909, þegar far- þegaskipin Republic og Forida rákust á á Atlantshafi með 1650 manns innanborðs. Areksturinn varð úti fyrir strönd Banda- ríkjanna og loftskeytamanni Republica tókst að ná sambandi við sterka strand- gæslustöð, sem gerði öllum nærstöddum skipum viðvart. 1 myrkri og svartaþoku að auki, tókst með stöðugu loftskeyta- Fyrri kona Marconis, Beatrice O’Brien, sem hann skildi við árið 1924. sambandi að bjarga öllum úr sökkvandi skipunum. Þann 10. april 1912 fór stærsta og full- komnasta farþegaskip heims, Titanic i jómfrúrferð sina. A leiðinni yfir Atlants- hafið átti það að setja hraðamet og vinna hið eftirsótta bláa band. Um borð voru 1316 farþegar og 892 manna áhöfn. Þann 14. april að næturlagi rakst Titanic á borgarisjaka og sökk, skömmu eftir að loftskeytamaðurinn hafði sent út SOS-kall og gefið upp staðarákvörðun skipsins. Þegar björgunarskipin komu, var Titanic sokkið, en það tókst að bjarga 710 manns úr björgunarbátum og braki. An loftskeytanna hefði flest þetta fólk látið lifið og það sýndi Marconi þakklæti sitt með því að gefa honum gullskjöld. í fyrsta sinn, sem lögreglan notaði loft- skeyti, var árið 1910, þegar Kendall skip- stjóri á Montrose grunaði Robinson, nokkurn, þegar hann sá hann láta meira en venjulega vel að syni sinum. Robinson þessi var sláandi likur stroknum morðingja, doktor Crippen og sonurinn gat sem best verið dulbúin vinkona Cripp- ens, Ungfrú Le Neve. Scotland Yard var gert viðvart með loftskeyti, og siðan voru bresku blöðunum daglega sendar fréttir frá skipinu um doktor Crippen og athafnir hans um borð, Árið 1927 kvæntist Marconi siðari konu sinni, Christinu, dóttur eina af embættismönnum Vatikansins. Hann var þá 53 ára, hún 27. 6

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.