Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 19

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 19
Það er vottur af snilligáfu i þér og stjörnurnar sýna, að ef þú þroskar hæfi- leika þina, geturðu náð langt. Þér finnst gaman að ferðast og munt að likindum heimsækja mörg af dularlöndum Austursins um ævina. Þér gengur vel að læra tungumál og þú átt ekki i neinum aðlögunarvandræðum, hvar sem þú ert staddur i heiminum. Þú ert frumlegur og uppátækjasamur i eðli þinu og verið getur að þú fáir hug- myndir, sem teljast byltingarkenndar i samtiðinni. Þegar þú ert ekki ánægður með rikjandi ástand, gerir þú það sem þú getur til að breyta þvi. Þér nægir ekki að starfa að hlutunum á yfirborðinu, en vilt leggja hart að þér til að árangur náist. Þú ert mjög ástriðurikur og skynsam- legast af þér væri að giftast ungur til að öðlast tilfinningalegt jafnvægi. Jafnframt verðurðu að vera reiðubúinn að styðja maka þinn i námi eða þess háttar. Þér þykir vænt um hrós frá þeim, sem þér þykir vænt um, og ef þér gengur vel, færðu nóg af þvi. Stjörnurnar sýna, að þú verður vel stæður og kannt lika þá list að láta peningana fjölga sér sjálfum. lí). nóvember. Þú ert úthverfur persónuleiki og vilt vera vinur alls heimsins. Þú verður ánægðastur, ef þú starfar mikið að mál- um almennings. Stjörnurnar hafa útbúið þig með hlýlegan og aðlaðandi persónu- leika. Allt útlit er fyrir að þér gangi sérlega vel i opinberu lifi. Lögfræði, læknisstörf, kennsla og þjóðfélagsstörf henta þér vel, einnig blaðamennska eða löggæzla. Þér getur gengið vel i öllum störfum af þessu tagi. Þú ert sjálfstæður i hugsun og fram- kvæmd og það er alltaf óhætt að treysta þér. Ef þú hefur lofað að gera eitthvað, er alveg áreiðanlegt, að það verður gert. Þú getur lika þagað yfir leyndarmáli. Tilfinningar þinar eru sterkar og þú verður gott foreldri. Þótt þú alir börn þin upp i aga, ertu lika rausnarlegur með ást og alúð. Þú talar ekki mikið um tilfinning- ar þinar, en álitur mikilvægara að sýna þær i verki en orðum. I>a (M’uni viö búin meö allt árið o‘4 |)vi lýkuv einkastjörnu- spánni mcö þessu blaöi. jiy.ix IS. nóvember Liklegt er, að þú búir raunverulega yfir hæfileikum, sem geta komið þér á tindinn, en þó með þvi skilyrði að nú nýtir þá sem bezt. Stundum verka þeir á móti hver öðr um, en það lagast, þegar þú eldist og kynnist sjálfum þér betur. Þá er velgengnin tryggð. Þótt þú hafi mjög gott viðskiptavit, gengur þér bezt, ef þú ert i félagi við manneskju, sem getur fylgt eftir hug- myndum þinum i sambandi við fjármálin og hjálpað þér með góðum ráðum og leið- beiningum. Konur fæddar þennan dag reka heimili sin eins og fyrirtæki og eru afskaplega hagsýnar i innkaupum. Þú veizt, hvernig á að fá peningana til að endast og getur sparað án þess að aðrir telji þig nizkan. Þú hefur góða aðlögunar- hæfileika og þú ert afskaplega sveigjan- legur i umgengni við annað fólk. Það er ágætt, ef þú ætlar að ná langt á sviði opin- berra mála. Þú gætir orðið nothæfur stjórnmálamaður. Hvort þú lætur að þér kveða viðar en i byggðamálum, er undir þvi komið, hvað þú leggur mikið á þig. Þér mun að likindum ganga bezt, ef þú staríar við eitthvað, sem er i tengslum við lög og rétt. 20. nóvember 19

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.