Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 26

Heimilistíminn - 20.11.1975, Blaðsíða 26
Fallegasti fugl íheimi Hefurðu heyrt um fallegasta fugl i heimi? Kannski ekki en þá bætum við úr þvi. Fallegasti fugl i heimi átti heima i trjátoppi, langt Iangt i burtu frá okkur. Hann hafði fallega vængi og stórt stél, sem var eins og blævængur i laginu og regnbogi á litinn. Annars var fuglinn þakinn logagylltum fjöðrum. Það væri gaman fyrir ykkur að teikna þennan fugl, en þá þurfið þið lika að nota alla litina ykkar. Jæja, en fallegasti fugl i heimi flaug um allan daginn ogsafnaði fæðu. Hann borðaði ávexti og drakk lindarvatn og flaug síðan aftur upp i trjá- toppinn. Þar sat hann hátt uppi og horfði út yfir heiminn. Svo var það að keisari einn frétti um þennan fugl og vildi endilega eignast hann. Hann ætlaði að setja hann í búr og horfa á hann á hverjum degi. — Ég er keisari i voldugu riki og þá á ég að eiga þennan fugl, sagði hann. Siðan lét hann tilkynna, að sá, sem gæti náð fuglinum fyrir sig, skyldi fá fullan sekk af gullpeningum. Allt fólkið i rikinu talaði um fuglinn og gullið. Auðvitað 26 langaði alla að reyna að ná fuglinum. í útjaðri stóra skógarins áttu heima tveir bræður. Þeir hétu Nila og Nola og ræktuðu landið og áttu tvær kýr og eitt naut. Dag einn, þegar Nila kom úr borginni, sagði hann Nola frá boðskap keisarans um fuglinn. — Sekk af gullpeningum! sagði hann. — Það var þó eitt- hvað! Þetta hlýtur að vera fallegasti fugl i heimi. Þeir bræður töluðu lengi um fuglinn og gullið og kom loks saman um að reyna að ná fuglinum. — Hann á heima úti i Stóra- skógi, i hæsta trjátoppnum, þvi það hafi Nila heyrt I borginni. í riki keisarans átti enginn önnur vopn en boga og spjót. Margir höfðu farið inn i Stora- skóg og að hæsta trénu, en i hvert sinn, sem einhver lædd- ist til að beina ör að fallegasta fugli i heimi, flaug hann burt. Hann flaug langt burt og skildi alla eftir vonsvikna. En þó reyndi einhver á hverjum degi. En alltaf flaug fuglinn burt. Hvert? Nei, það vissi enginn. Nila og Nola kom saman um, að Nila, sem var eldri, skyldi halda af stað, en Nola vera heima og gæta búsins. Nila setti brauð og vatnskrukku i nestispokann sinn, tók bogann og örvarnar og lagði af stað. Nola ofundaði hann svolitið. Hann gaf dýrunum, spennti nautið fyrir plóginn og fór að plægja. Hann var að hugsa um að það væri gaman bara að fá að sjá þennan fallegasta fugl i heimi. Ég mundi ekki skjóta hann og ekki gefa keisaranum hann, bara klappa honum og tala við hann. Nola gekk á eftir plógnum og hugsaði um fuglinn, en þá heyrði hann einhvern þyt yfir höfði sér og það dimmti i lofti. En birtan kom aftur og stór fallegur fugl settist á akurinn beint fyrir framan hann. Nola neri augun. Hvers konar fugl var nú þetta? — Þú hlýtur að vera fallegasti fugl i heimi, sagði hann. — Ertu svo kominn til min af öll- um mönnum? Þá sá hann, að það var eitthvað að fuglinum i öðrum fætinum. Hann gekk varlega og athugaði fótinn. Litirnir i fuglinum voru svo sterkir, að hann fékk næstum ofbirtu i augun. — Á ég að hjálpa þér með fótinn? spurði hann og fallegasti fugi í heimi horfði á hann eins og hann skildi og kinkaði kolli. Nola spennti nautið frá plógnum og fór inn i húsið. Þar fann hann tuskur, sem hægt var að nota sem bindi. Hann fann lika tvo mjóa pinna fyrir spelkur. Siðan vafði hann fót fuglsins sem sat

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.