Heimilistíminn - 20.11.1975, Page 19
Það er vottur af snilligáfu i þér og
stjörnurnar sýna, að ef þú þroskar hæfi-
leika þina, geturðu náð langt. Þér finnst
gaman að ferðast og munt að likindum
heimsækja mörg af dularlöndum
Austursins um ævina. Þér gengur vel að
læra tungumál og þú átt ekki i neinum
aðlögunarvandræðum, hvar sem þú ert
staddur i heiminum.
Þú ert frumlegur og uppátækjasamur i
eðli þinu og verið getur að þú fáir hug-
myndir, sem teljast byltingarkenndar i
samtiðinni. Þegar þú ert ekki ánægður
með rikjandi ástand, gerir þú það sem þú
getur til að breyta þvi. Þér nægir ekki að
starfa að hlutunum á yfirborðinu, en vilt
leggja hart að þér til að árangur náist.
Þú ert mjög ástriðurikur og skynsam-
legast af þér væri að giftast ungur til að
öðlast tilfinningalegt jafnvægi. Jafnframt
verðurðu að vera reiðubúinn að styðja
maka þinn i námi eða þess háttar. Þér
þykir vænt um hrós frá þeim, sem þér
þykir vænt um, og ef þér gengur vel,
færðu nóg af þvi.
Stjörnurnar sýna, að þú verður vel
stæður og kannt lika þá list að láta
peningana fjölga sér sjálfum.
lí). nóvember.
Þú ert úthverfur persónuleiki og vilt
vera vinur alls heimsins. Þú verður
ánægðastur, ef þú starfar mikið að mál-
um almennings. Stjörnurnar hafa útbúið
þig með hlýlegan og aðlaðandi persónu-
leika.
Allt útlit er fyrir að þér gangi sérlega
vel i opinberu lifi. Lögfræði, læknisstörf,
kennsla og þjóðfélagsstörf henta þér vel,
einnig blaðamennska eða löggæzla. Þér
getur gengið vel i öllum störfum af þessu
tagi.
Þú ert sjálfstæður i hugsun og fram-
kvæmd og það er alltaf óhætt að treysta
þér. Ef þú hefur lofað að gera eitthvað, er
alveg áreiðanlegt, að það verður gert. Þú
getur lika þagað yfir leyndarmáli.
Tilfinningar þinar eru sterkar og þú
verður gott foreldri. Þótt þú alir börn þin
upp i aga, ertu lika rausnarlegur með ást
og alúð. Þú talar ekki mikið um tilfinning-
ar þinar, en álitur mikilvægara að sýna
þær i verki en orðum.
I>a (M’uni viö búin meö allt árið
o‘4 |)vi lýkuv einkastjörnu-
spánni mcö þessu blaöi.
jiy.ix
IS. nóvember
Liklegt er, að þú búir raunverulega yfir
hæfileikum, sem geta komið þér á tindinn,
en þó með þvi skilyrði að nú nýtir þá sem
bezt. Stundum verka þeir á móti hver öðr
um, en það lagast, þegar þú eldist og
kynnist sjálfum þér betur. Þá er
velgengnin tryggð.
Þótt þú hafi mjög gott viðskiptavit,
gengur þér bezt, ef þú ert i félagi við
manneskju, sem getur fylgt eftir hug-
myndum þinum i sambandi við fjármálin
og hjálpað þér með góðum ráðum og leið-
beiningum. Konur fæddar þennan dag
reka heimili sin eins og fyrirtæki og eru
afskaplega hagsýnar i innkaupum. Þú
veizt, hvernig á að fá peningana til að
endast og getur sparað án þess að aðrir
telji þig nizkan. Þú hefur góða aðlögunar-
hæfileika og þú ert afskaplega sveigjan-
legur i umgengni við annað fólk. Það er
ágætt, ef þú ætlar að ná langt á sviði opin-
berra mála. Þú gætir orðið nothæfur
stjórnmálamaður. Hvort þú lætur að þér
kveða viðar en i byggðamálum, er undir
þvi komið, hvað þú leggur mikið á þig.
Þér mun að likindum ganga bezt, ef þú
staríar við eitthvað, sem er i tengslum við
lög og rétt.
20. nóvember
19