Heimilistíminn - 12.08.1976, Qupperneq 28
itölsk eggjakaka
1 þessan rétt, sem á ttaliu er kallaður „La
Frittata di Verdura” er hægt að nota
ýmsar tegundir af soðnu grænmeti,
gjarnan afganga, til dæmis blómkál, gul-
rætur, baunir, laukur og kartöflur. Hafið
það mikið af grænmetinu að pannan sé
nær full upp aö brún. Skeriö 200-300 gr af
fleski i ræmur og steikiö þaö stökkt á
pönnunni, bætið siðan söxuðu grænmetinu
28
i. Kryddið og snúiö viö, þannig aö græn-
metiö steikist nokkuö jafnt. ÞEYTIÐ
SAMAN 5 egg og 1/2 dl af rjóma og hellið
yfir grænmetið. Látið eggjakökuna stikna
við hægan hita. Snúið henni meö þvi að
nota lok, þegarhún er steikt öörum megin
og^steikið hana lika hinum megin. Stráið
saxaðristeinselju yfir. Beriðkökuna fram
kalda eöa heita.
Kálbögglar með sumarsvip
kálhöfuð (1 kg eða svo)
Fylling:
300 gr hakk,
2 dl soðin hrísgrjón,
1 laukur,
2 rif hvitlaukur,
2 dl kjötsoð
1 egg,
1 tesk paprikuduft,
1 resk timian,
2 msk söxuð steinselja,
2-3 msk olia til steikingar.
Sósa:
4 tómatar,
1 laujur,
1 rif hvitlaukur,
2-3 dl kjötsoð
svolitið timian.
Skerið stilkinn úr kálhöfðinu og látið þa®
liggja i sjóðandi vatni i 10 mlnútur. Takið
blööin varlega af og iátið vatniö ranna af
þeim. Saxið laukinn og steikið hann i
smjöri eða oliu og hrærið hann siðan
saman við allt hitt, sem fer i fyllinguna-
Hnoðið vel saman og vætiö með meira
soði, ef það er nauðsynlegt. Leggiö 2 msk
af deiginu á hvert kálblað og vefjið þv*
utan um. Brúnið kálbögglana á báðun>
hliðum á pönnu.
Skerið laukinn I sósuna i báta og afhýðiÖ
tómatana með þvi að dýfa þeim fyrst i
sjóöandi vatn. Leggiö laukinn og
tómatana með kálbögglunum á pönnuna
og látið allt malla við hægan hita I u.þ b.
45 minútur.