Heimilistíminn - 20.10.1977, Page 3

Heimilistíminn - 20.10.1977, Page 3
Kæri Alvitur! Þetta er i fyrsta sinn, sem við skrifum þér, og vonum við að bréfið iendi ekki i þinni „víðfrægu rusia- körfu.” 1. Hvernig eiga tveir einstaklingar lir voginni saman? 2. Hvernig eiga vatnsberinn og hrút- urinn saman? Hvaða merki eiga bezt við þessi merki? 3. Þarf stúdentspróf til að verða flugfreyja? 4. Hvað tekur snyrtinám mörg ár? 5. Heldur þú, að strákur sé hrifinn af stelpu, ef hann biður hana að sofa hjá sér, og hættir ekki fyrr en hún hefur sofið hjá honum? 6. Þarf sérstaka þyngd og hæð til að verða flugfreyja? Tvær spurular vinkonur 1-2. Ekki er rétt fyrir tvo einstak- linga úr vogarmerkinu, að hugsa til hjúskapar, samkvæmt stjörnufræði- legum útreikningum. Vatnsberar og tviburar hæfa vogarmerkinu bezt. Vatnsberi ætti að velja sér tvibura eða vogarmerki, og hrútur ætti að velja sér ljón eða tvibura. 3. Flugfreyjur þurfa að hafa góða þekkingu i tungumálum, og að minnsta kosti hér áður fyrr, þóttu stúlkur með stúdentspróf yfirleitt nokkuð hæfar til sliks starfs. Þetta getur annars verið mjög einstaklings- bundið, og margt þarf að taka með i reikninginn. 4. Ekki held ég að strákur, sem vill sofa hjá stelpu þurfi nauðsynlega að vera sérlega hrifinn af henni, eða ást- fanginn, ef ég mætti frekar nota það orð. 6. Flugfreyjur eru yfirleitt nokkuð spengilegar, svo þyngdin skiptir eflaust nokkru um ráðningu, þó nokkur kiló til eða frá geti ekki ráðið úrslitum, ef allt annað er á þann veg, sem talið er bezt, hæfileikar og þekking t.d. Kæri Alvitur Geturðu sagt mér, hvað litill og góð- ur gitar kostar, og hvar hann fæst? Tónlistarunnandi Hjá Hljöðfæraverzlun Pauls Bern- burg fengum við þær upplýsingar, að börn og unglingar, sem væru.að byrja að læra á gitar keyptu gjarnan gitar sem kostar 22.200 krónur. Reyndar eru þar til ódýrari gitarar, en þeir eru ekki taldir jafngóðir. Sæll og blessaður Alvitur Mig langar mjög mikið til þess að fá svör við nokkrum spurningum. 1. Hvar i veröldinni er Brunei? 2. Er það eyja, borg eða land? 3. Hvers vegna eruö þið hættir að hafa prjónauppskriftir i blaðinu? 4. Kemst maöur I Kennaraháskólann ef maður er með stúdentspróf úr Sam- vinnuskólanum? 5. Kemst maður beint upp i Kennara- háskólann, ef maður fer á uppeldis- braut I Fjölbrautaskóla? Jæja, Alvitur, þakka fyrirfram birt- inguna, og svo ykkar frábæra blað. Mér firnist þið æætuð hafa krossgátur fyrir yngri börnin. óska ykkur góðs gengis og vona að blaðið haldi áfram að batna, eins og mér finnst það alltaf gera. Sigrún 1.-2. Bruneier riki, sem nýtur verndar Breta á Norðurströnd eyjarinnar Borneó, og liggurSarawak, aðildarriki eða Malasiu, að þvi á allar hliðarnema strandhliðina. Landið er um 5.800 fer- ki'lómetrar að stærð og ibúar eru á annað hundrað þúsund. 3. Ekki er það nú rétt, að við séum hætt að hafa prjónauppskriftir i blað- inu, þótt þær séu ekki I hverju blaði. Okkur hefur fundizt rétt, aö hafa einn- ig einhverja aðra grein handavinnu en prjónaskap á siöum Heimilis-Timans, þvi til er þeir sem ekki nenna alltaf að vera að prjóna. Vertu.óhrædd', það eiga eftir að sjást prjónauppskriftir I framtiðinni, eins og verið hefur. 4. Stúdentspróf úr Samvinnuskólan- um á að gilda til inngöngu i Kennara- háskölann, rétteins og önnur stúdents- próf. 5. Ekki hefur enn verið gengið frá þvi, hvort próf Ur fjölbrautaskóla veiti inngöngu i Kennaraháskólann. Alþingi mun eiga eftir að fjalla um þau mál, og marka stefnuna þar um. Meðal efnis í þessu blaði: Sophia Loren og Carlo Ponti Verkfall — íslenzk smásaga Af rísk áhrif í tizkuheiminum . ... Sögur og sagnir Supertramps .... bls. 4 .... bls. 6 .... bls. 8 ... bls. 10 .... bls. 13 Gardenían hæf ir íslenzkum stof um . Baráttan við svef nleysið Vaxlitirnir enn vinsælir Leyndarmál Helenu —nýja f ramhaldssagan . bls. 15 . bls. 20 . bls. 26 . bls. 32

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.