Heimilistíminn - 20.10.1977, Page 18

Heimilistíminn - 20.10.1977, Page 18
Appelsínukaka með ými og jógúrt Þessikaka, sem þiö fáiö nú uppskriftina aö, er sögð nokkuö óvenjuleg, og hún er meira aö segja holl, hvort sem þið trúiö þvi eða ekki. Hún er mjúk og gómsæt, og geymist vel. Beriö hana fram, hvort sem er með kaffi eða te. 1. dl jógúrt (óbragðbætt), 2 dl ýmir, 3 egg, 3 dl sykur 3/4 dl maisolfa, 4 1/2 dl hveiti, 2 1/2 teskeið lyftiduft. Bleytiö i kökunni meö: safa úr tveimur appelsinum, 2 msk. flórsykri. Skreytiö: mandarinurif. 1. blandiö saman jógurt og ými i skál. Setjiö egg og sykur út I og hræriö vel. Hrærið oliunni saman viö og siðan hveitinu og lyftiduftinu. 2. Hellið deiginu i velsmurt form, sem tekur ca 1 1/2 litra. Bakiö kökuna viö 175 stiga hita i ca 35-40 mi'nútur. 3. Stingið göt i heita kökuna og helliö ufir hana appelslnsafanum meö flórsykr- inum út f. Látiö kökuna standaiforminuá köldum staö. KARRI- FISKUR MEÐ LAUK 4 laukar, 25 grömm smjör, 1—2 tsk. karri, ca 300 grömm rauðsprettuflök, salt, pipar, ofurlitið af timian, sitrónusafi. Kartöflumús búin til úr litlum pakka, eða úr heimasoðnum kartöflum, 1 stór matskeið bráðið smjör, litil mulin tvibaka og 3 matskeiðar af rifnum sterkum osti. Skerið laukinn niður i sneiðar. Bræðið smjörið og látið karriið út i og látiö það hitna snöggvast. Leggið lauksneiðarnar út i og látið þær malla i smjörinu þar til þær eru farnar að mýkjast. Leggið til skiptist I eldfast mót fiskflökin, krydduð með salti, pipar, timian með pressuðum sitrónusafa yfir, og svo laukblönduna. Bragðbætið kartöflumúsina eftir eigin smekk og leggið hana i lag yfir fiskinn. Hellið bræddu smjörinu yfir, og stráið svo mulinni tvibökunni yfir allt saman, og að lokum rifnum ostinum. Látið fiskinn i forminu vera I 30 minútur i 225 stiga heit- um ofni.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.