NT - 27.04.1984, Side 7
3 $>3®r Irass .t£ lugBbute&l I i'J
Mi' Fóstudagur 27. apríl 1984 7
IlL Fréttir
Handlækningastöðin:
Sjúklingurinn
beint heim
og 70% kostn-
aðar sparast
■ Handlæknastöðin, nefnist
nýtt fyrirtæki í heilbrigðisþjón-
ustu sem hóf feril sinn um
síðustu mánaðamót. I Hand-
læknastöðinni eru framkvæmd-
ar ýmsar minni háttar hand-
læknisaðgerðir sem hingað til
hafa að mestu verið fram-
kvæmdar á sjúkrahúsum. Forr-
áðamenn stofnunarinnar boð-
uðu blaðamenn á sinn fund til
að kynna þeim starfsemina og
sögðu þá meðal annars að um-
talsvert fé ætti að geta sparast
með þessu nýja fyrirkomulagi.
Fóstbræður syngja
■ Karlakórinn Fóstbræður
heldur árléga tónleika fyrir
styrktarfélaga sína í Háskólabí-
ói laugardaginn 28. apríl kl. 15.
Á efnisskránni eru lög frá
ýmsum löndum, mörg vel þekkt
og vinsæl. Söngstjóri er Ragnar
Björnsson en Jónas Ingimund-
arson annast píanóundirleik.
Sem dæmi um sparnaðinn
nefndi Víglundur Pór Porsteins-
son, að með veigameiri aðgerð-
um sem þeir gætu framkvæmt,
kostaði hjá Handlæknastöðinni
samtals um 4.800 krónur en
væri aðgerðin framkvæmd á
sjúkrahúsi, væri sjúklingurinn
yfirleitt lagður inn í þrjá daga
og aðgerðin kostaði því trygg-
ingakerfið samtals tæplega
fimmtán þús. krónur.
Á móti þessu kemur þó að
sjúklingar Handlækinastöðvar-
innar þurfa sjálfir að greiða
nokkurn hluta kostnaðarins,
Víglundur kvað þetta þó ekki
stærri fjárhæðir en svo að flestir
ef ekki allir væru tilbúnir að
greiða þær ti! að losna við
biðina eftir sjúkrahúsvist.
Víglundur benti að lokum á
að bandarískar rannsóknir
hefðu leitt í Ijós að um 45%
allra aðgerða sem yfirleitt væru
framkvæmdar á sjúkrahúsum
mætti hæglega gera á stofnun
sem þessari.
■ Hljóðhimnuaðgerð í einni af skurðstofum Handlækningastöðvarinnar. Eftir aðgerðina fer
sjúklingurinn beint heim og losnar við þriggja daga dvöl á sjúkrahúsi.
Sumar-
búðir
■ Sumarbúðir Pjóð-
kirkjunnar verða star-
fræktar í Laugagerðis-
skóla á Snæfellsnesi í
sumar. Hver flokkur verð-
ur 12 daga í búðunum og
hefst starfsemin 18. júní.
Innritun fer fram hjá
Æskulýðsfulltrú Þjóð-
kirkjunnar, Klapparstíg
27, sími 12445.
Grásleppuhrogn:
Kílóiðá29kr.
■ Verðlagsráð sjávarút-
vegsins hefur ákveðið nýtt
verð ágrásleppuhrognum,
29 krónur kílóið.
Verðið miðast við að
gert sé að grásleppunni
fljótlega og hún afhent við
hlið veiðiskips.
Garðabær:
Ungu fólki boðnar lóðir
■ Garðabær hefur ákveðið að
leggja skerf til að leysa hús-
næðisvandræði unga fólksins.
Auglýstar hafa verið til umsókn-
ar 17 einbýlishúsalóðir og 15
raðhúsalóðir, og það er einungis
fólk 30 ára og yngra sem á
möguleika á úthlutun. í ofaná-
lag verða umsækjendur að hafa
átt lögheimili í Garðabæ í
a.m.k. 3 ár, eða hafa flutst úr
bænum á sl. 4 árum og hafa þá
átt heima þar í 5 ár á undan.
Alls verða 120 einbýlis- og
raðhúsalóðir á þessu svæði við
Bæjargil. Til að mæta unga
fólkinu hefur verið ákveðið að
hafa talsverðan sveigjanleika á
greiðslum gatnagerðargjald-
anna. Þá er byggingrreiturinn
hagstæður og jarðvinnsla ódýr,
og einnig hefur bærinn þrenns
konar teikningar á boðstólnum,
sem húsbyggjendur geta valið
úr. Lækkar það hönnunarkostn-
að. Loks verður leyft að byggja
á mun lengri tíma en almennt er
í skilmálum.
_ -----------skipulagsnefndar í Garðabæ kynnir nýja byggingar-
svæðið.
LITAVER LITAVER LlTAVER LlTAVER LITAVER lITAVER LlTAVtR LITAVER
dPLUAVER Opnum í dag
útsölumarkað
/ nýju skemmunni okkar við Fellsmúla
24-26. Þar munum við byrja að bjóða
Gólfteppi
og Gólfdúka
á hreint
ótrúlegu verði
Verðlækkun fyrir þá sem eru að byggja
breyta eða bæta. Opið til kl. 20 í kvöld
og til kl. 16 laugardag.
Líttu við í Litaver
því það hefur ávallt borgað sig
HMi V
Grensásveg 18
Hrey,i|shúsinu q2444
LITAVER — LITAVER - LITAVER - LITAVER - LITAVER LITAVER — LITAVER LlTAVER