NT - 27.04.1984, Blaðsíða 23
Itl'
Föstudagur 27. apríl 1984 23
Suður-Afríka:
Urðu að ganga
13 hundruð km
Skæruliðar UNIT A sleppa
89 útlendingum úr haldi
Jóhannesarfoorg-Reuter
■ Uppreisnarmenn, sem
berjast gegn stjórnvöldum í
Angóla, létu í gær úr haldi 89
fanga frá ýmsum löndum.
Uppreisnarmennirnir, sem
tilheyra UNITA-hreyfing-
unni, tóku flesta fangana í
febrúar síðastliðnum. Meðal
fanganna voru 19 börn. Flest-
ir þeirra voru Portúgalir, sem
höfðu verið að vinna í Ang-
óla, en í hópnum voru einnig
15 Filipseyingar og trúboðar
víðs vegar að.
Fangarnir komu í gær til
Jóhannesarborgar í Suður-
Afríku með flugvél eftir að
hafa gengið tæplega þrettán
hundruð kílómetra vega-
lengd frá búðum skærulið-
anna. Peir virtust flestir vera
við góða heilsu þrátt fyrir
hina löngu göngu en margir
þeirra höfðu fengið snert af
malaríu og öðrum sjúkdóm-
um á leiðinni.
í hópnum varm.a. japönsk
nunna sem hafði komið til
Angóla fyrir tíu árum. Þegar
skæruliðarnir handtóku hana
í desember á síðasta ári var
hún látin ganga 300 km áður
en hún komst í farartæki sem
flutti hana til búða skæruliða.
UNITA-skæruliðar halda
ennþá 37 útlendingum í gísl-
ingu, þar af 16 Bretum. Pað
er ekki vitað hvenær þeir
verða látnir lausir.
Sprenging kveikti
í risaolíuskipi
á Persaflóa
Baharin-Rcuter
■ 179 þúsund tonna olíu-
flutningaskip logaði glatt í
fyrrinótt og gær um 70 mQur
frá Khargeyju í Persaflóa.
Skipið er skráð í Saudi-Ara-
bíu en gert út af sænska
fyrirtækinu Salenivest.
Sprenging varð í skipinu er
það var á siglingu á svæði
sem írakar hafa lýst sem
hættusvæði. Khargeyja er
aðalolíuútflutningshöfn ír-
ana og var skipið fullfermt
hráolíu sem fara átti til
Frakklands.
Pótt ekki hafi borist ná-
kvæmar fréttir af sprenging-
unni er talið líklegt að hún
hafi verið hernaðaraðgerð af
hálfu íraka, en þeir hafa áður
ráðist á skip á þessari sigling-
arleið.
33 manna áhöfn var á
skipinu og var eins þeirra
saknað en hinum bjargað. í
skipinu voru 300 þúsund tonn
af olíu og tíundi hluti farms-
ins var kominn í sjóinn í
gærkvöldi. Pá stóðu góðar
vonir til að takast mætti að
ráða niðurlögum eldsins.
íranir hafa hótað að loka
Hormutssundi ef írakar
stöðva útfiutninginn frá
Khargeyju. Fyrir mynni
Persaflóa eru bandarísk,
bresk og frönsk herskip sem
eiga að sjá svo um að sundinu
verði ekki lokað hvað sem
það kostar.
Forseti Kína, Li Xiannian, býður Reagan að drekka með sér te eftir komuna til Peking.
Símamynd-Polfoto
„Upp skal
girðingin“
-segja Indverjar
Nýja Delí-Reuter
■ Indverjar segjast ætla að
halda áfram við smíði girðingar
á landamærum Indlands og
Bangladesh þrátt fyrir mótmæli
stjómvalda í Bangladesh og
átök við hermenn frá Bangla-
desh sem hafa reynt að hindra
griðingarsmíðina.
Indversk yfirvöld segja að
endanlega eigi girðingin að ná
yfir öll landamæri ríkjanna en
þau eru samtals um 3200 km
löng. Bæði Indverjar og
Bangladeshmenn eru sagðir
hafa sent liðsauka til landa-
mæranna þar sem til átaka
kom síðastliðinn þriðjudag.
Stjörnvöld í Bangladesh
segja að girðingin sé brot á
fyrri samningum sínum við
Indverja og nú síðast hafa þeir
ásakað Indverja fyrir að rjúfa
lofthelgi sína.
Reagan stoltur af góðum
tengslum við Kínverja
Peking-Reuter
■ Forseti Bandaríkjanna,
Ronald Reagan, sem kom til
Peking í gær sagði í ræðu, sem
hann hélt í matarboði sem
haldið var honum tU heiðurs,
að hann væri stoltur yfir þeim
árangri sem náðst hefði í sam-
skiptum ríkjanna frá árínu
1972 en þá tóku Bandaríkja-
menn og Kínverjar upp sam-
skipti sín í milli eftir 20 ára
ijandskap.
Reagan minntist ekkert á
stuðning Bandaríkjanna við
Taiwan en Kínverjar segja að
sá stuðningur sé aðalhindrun
þess að samskipti Kína og
Bandaríkjanna geti orðið enn
nánari. Kínverskir kommún-
istar telja að hernaðaraðstoð
Bandaríkjanna við þjóðernis-
sinna á Taiwan sé ein helsta
orsökin fyrir því að stjórnvöld
þar neita að ræða við Peking-
Iranir erlendis mót-
mæla klerkaveldi I íran
Reuter
■ íranir efndu í gær til mót-
mælaaðgerða í fimm evrópsk-
um borgum gegn klerkaveld-
inu í íran.
Tíu til tuttugu manna hópar
íranskra ungmenna réðust inn
í sendiráð írana í London,
Haag og Frankfurt þar sem
þeir slógust við sendiráðs-
starfsmenn og máluðu vígorð
á veggi. í París og Vínarborg
■ voru einnig haldnar mótmæla
•aðgerðir en þær fóru friðs-
amlega fram.
Iranirnir voru stuðnings-
menn Fedayeen-samtakanna
en þau voru meðal þeirra sam-
taka sem börðust hvað hat-
rammast í byltingunni 1979.
Fedayeen-samtökin eru vinstri
sinnuð og núverandi stjórn-
völd í íran hafa bannað þau og
handtekið og líflátið ýmsai
helstu forystumenn þeirra.
Mótmælendurnir dreifðu
bréfi þar sem þeir sögðu að af
100.000 pólitískum föngum í
íran væru 10.000 félagar eða
stuðningsmenn Fedayeen-
samtakanna.
stjórnina um endursameiningu
Kína. Kínverskir fjölmiðlar
sýndu óánægju sína vegna
stefnu Reagans í málefnum
Taiwans með því að birta í gær
greinar þar sem vopnasala
Bandaríkjanna til kínverskra
þjóðernissinna var gagnrýnd.
Þrátt fyrir þennan ágreining
hefur ferð Reagans þegar skil-
að nokkrum árangri. Kínverj-
ar undirrituðu þannig í gær
samning við Bandaríkjamenn
um eftirlit með kjarorkuverum
og geislavirkum efnum en Kín-
verjar hafa hingað til ekki
viljað fallast á erlent eftirlit
með notkun sinni á kjarnorku.
Bandarísk fyrirtæki geta nú
selt Kínverjum kjarnaofna
sem notaðir eru við raforku-
framleiðslu í kjarnorkuverum.
Samningamenn Bandaríkj-
anna í þessum viðræðum segja
að Kínverjar hyggist reisa
kjarnorkuver sem geti fram-
leitt 20.000 megawött en það
þýðir að þeir verða að koma
sér upp tíu til tuttugu stórum
kjarnaofnum.
Á fundi sínum með kín-
verskum ráðamönnum í gær
lagði Reagan áherslu á að bætt
samskipti Kínverja og Banda-
ríkjamanna minnki spennu á
Kyrrahafssvæðiu og í Asíu og
stuðli að friði.
Ríkisstjórn sátta
mynduð I Líbanon
■ Gemayel forseti fól í gær Rashid Karami að mynda
samsteypustjórn allra helstu stjórnmála- og trúflokka
landsins. Karami er múhameðstrúar og hefur verið
forsætisráðherra níu sinnum síðan 1955.
Sýrlendingar styðja stjórn undir
forsæti Karamis og er hugmynd
Gemayels sú að samsteypustjórnin
geti komið á eðlilegum stjórnar-
háttum og bundið enda á níu ára
borgarastyrjöld í landinu.
Eftir að Karami féllst á að taka
að sér stjórnarforystu hvatti hann
alla deiluaðila í landinu að leggja
niður vopn og vinna saman að því
að byggja upp þjóðfélagið og efna-
hag landsins.
Hann sagði að stefna ríkisstjórn-
arinnar yrði að koma ísraelum út
úr suðurhluta landsins og koma á
pólitískum umbótum og tryggja
öryggi allra þegna landsins og koma
á réttlæti og jafnrétti.
Olympla CPD 3212
Ein af mörgum fró Olympia
Áreiðanleg og fjölhœf reiknivél sem eyðir ekki
borðplóssi að óþörfu.
4»
OI.VMfHA
Olympia vél sem
reikna má með
þótt annað bregðist.
Leitið nánari upplýsinga.
Kr. 3.700.- stgr.
KJARAINI
ÁRMÚLI 22 - REYKJAVIK - SlMI 83022